Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar 18. ágúst 2026 09:01 Getur hjúkrunarheimili verið með of marga sjúkraliða? Sú spurning ætti að vera fjarstæðukennd þegar biðlistar eftir hjúkrunarrýmum lengjast, stór hluti sjúkraliða nálgast eftirlaunaaldur og stjórnvöld vilja fjölga fagmenntuðu starfsfólki. Á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi hafa nýútskrifaðir sjúkraliðar ekki allir fengið ráðningu í sjúkraliðastöður, þótt þeim hafi boðist áframhaldandi starf við heimilið. Ástæðan er ekki sú að verkefni skorti eða ekki sé þörf fyrir starfskrafta þeirra. Skýringin sem gefin hefur verið er sú að hlutfall sjúkraliða á Höfða, um 20%, hafi verið borið saman við 16,39% launakostnaðarforsendu í fylgiskjali við þjónustusamning Sjúkratrygginga Íslands og því talið of hátt. Þannig hefur reikniforsenda um skiptingu launakostnaðar í reynd orðið að ráðningarþaki. Tvær tölur sem mæla ekki það sama Embætti landlæknis gaf árið 2015 út fagleg viðmið um mönnun hjúkrunarheimila. Samkvæmt þeim ætti faglært starfsfólk að vera að minnsta kosti 57,13% þeirra sem sinna beinni umönnun og æskilegt hlutfall er 77,87%. Til faglærðs starfsfólks teljast samkvæmt viðmiðunum hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og félagsliðar. Viðmiðin taka því til stöðugilda við umönnun, ekki heildarlaunakostnaðar heimilisins. Talan 16,39% í fylgiskjali við þjónustusamning Sjúkratrygginga Íslands mælir allt annað. Hún sýnir hlutfallslega skiptingu launakostnaðar milli starfshópa eftir stéttarfélögum. Hlutfallið sem tengist Sjúkraliðafélagi Íslands byggist á gögnum frá árinu 2016 og er notað við verðlagsuppfærslu launahluta greiðslnanna. Þetta er hvorki faglegt lágmark né hámark á fjölda sjúkraliða. Þetta er kostnaðarforsenda sem byggist á því hvernig launakostnaður skiptist fyrir áratug. Ef hún er notuð sem ástæða til að ráða ekki fleiri sjúkraliða er reikniforsenda fjármögnunar orðin að ráðningarþaki. Höfði sýnir þversögnina Sjö starfsmenn Höfða luku sjúkraliðanámi. Fjórum þeirra var boðin sjúkraliðastaða. Hinum þremur var boðið að starfa áfram við umönnun á Höfða, en ekki ráðning í sjúkraliðastöðu. Það eitt að starfsmaður hafi starfsleyfi sem sjúkraliði þýðir ekki sjálfkrafa að hvert starf sem honum býðst þurfi að vera sjúkraliðastarf. Verkefni, ábyrgð og starfslýsing ráða þar miklu. Vinnuveitandi getur hins vegar ekki haft það á báða vegu: sóst eftir starfskrafti og þekkingu sjúkraliðans en hafnað því að ráða viðkomandi sem sjúkraliða á þeirri forsendu að kostnaðarhlutfall stéttarinnar sé orðið „of hátt“. Ef nýútskrifaðir sjúkraliðar eru ráðnir til almennra umönnunarstarfa verður starfslýsing, ábyrgð og launaröðun að samræmast raunverulegu starfi þeirra. Annars skapast hætta á að fagþekking þeirra sé nýtt án þess að menntun þeirra, starfsleyfi og ábyrgð séu viðurkennd. Þetta er sérstaklega skammsýnt nú þegar samið hefur verið um uppbyggingu 60 nýrra hjúkrunarrýma á Akranesi. Rýmum á að fjölga um 80%. Þau verða ekki mönnuð með góðum fyrirætlunum einum saman. Til þess þarf ungt og nýmenntað fagfólk að fá raunveruleg tækifæri til að festa rætur á svæðinu. Hraunbúðir sýna hvers vegna einn mælikvarði dugar ekki Nýleg úttekt Embættis landlæknis á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum er ekki beinn samanburður við stöðuna á Höfða. Gögnin hafa annan tilgang og annan nefnara. Úttektin sýnir þó hvers vegna meta verður bæði umfang mönnunar og faglega samsetningu hennar. Á Hraunbúðum voru 4,1 stöðugildi hjúkrunarfræðinga, 4,87 stöðugildi sjúkraliða og 24,58 stöðugildi ófaglærðs starfsfólks við umönnun. Hjúkrunarfræðingar voru 12% mannaflans, en lágmarksviðmiðið er 20%. Faglært starfsfólk var 27% þeirra sem sinntu umönnun, en lágmarksviðmiðið er 57% og æskilegt hlutfall 78%. Umönnunarklukkustundir voru 5,02 á íbúa á sólarhring. Það er yfir lágmarksviðmiðinu, 4,65 klukkustundum, en undir æskilega viðmiðinu, 5,34 klukkustundum. Heildarfjöldi umönnunarklukkustunda náði því lágmarki en fagleg samsetning mönnunarinnar gerði það ekki. Embætti landlæknis taldi að ónóg fagmönnun gæti ógnað gæðum þjónustunnar, aukið álag og leitt til þess að ófaglært starfsfólk tæki of mikla ábyrgð án nægrar þekkingar og þjálfunar. Þetta er ekki gagnrýni á ófaglært starfsfólk heldur á aðstæður sem tryggja því ekki nægan faglegan stuðning. Dæmin frá Höfða og Hraunbúðum eru ekki tölfræðilega sambærileg. Þau varpa hins vegar ljósi á sama stefnumótunarvandann frá sitt hvorri hlið: Fjármögnun og fagleg mönnunarviðmið tala ekki nægilega skýrt saman. Kostnaðarhlutfall getur hvorki skilgreint faglega mönnun né réttlætt ráðningarþak, fremur en heildarfjöldi umönnunarklukkustunda getur einn sagt til um hvort rétt fagþekking sé til staðar. Gömul gögn og óskýr ábyrgð Viðmið Embættis landlæknis eru orðin ellefu ára gömul og byggðust meðal annars á mönnunargögnum frá árinu 2010. Þau hafa hvorki lagalegt gildi né reglugerðarígildi og eru ekki felld inn í kröfulýsingu ráðuneytisins fyrir hjúkrunarheimili. Fimmtán manna sérfræðihópur vann að gerð þeirra. Í honum sátu fjórtán hjúkrunarfræðingar og einn mannauðsstjóri, en enginn fulltrúi sjúkraliða. Þetta gerir viðmiðin ekki gagnslaus. Þau hafa þvert á móti sýnt mikilvægi sitt, meðal annars í úttektinni á Hraunbúðum. Aldur þeirra, samsetning sérfræðihópsins og breytingar á menntun og ábyrgð sjúkraliða kalla hins vegar á heildarendurskoðun. Samningsgrundvöllurinn leysir vandann ekki. Í kröfulýsingunni segir aðeins að starfsemin skuli ætíð vera mönnuð „nægilega mörgum faglærðum og ófaglærðum starfsmönnum“. Þar er ekki skilgreint með mælanlegum hætti hvað nægileg fagmönnun er. Eftirlitsaðilinn styðst því við fagleg mönnunarviðmið en kaupandi þjónustunnar við kostnaðarforsendur. Rekstraraðilar eiga síðan að túlka hvað telst „nægilegt“. Afleiðingin getur orðið sú að fjármögnun ráði faglegri samsetningu mönnunar en ekki þjónustuþörf íbúanna. Viðmiðin verða að tala sama tungumál Það er tímabært að stjórnvöld, Embætti landlæknis, Sjúkratryggingar Íslands, rekstraraðilar og fagfélög endurskoði sameiginlega mönnunarviðmið og fjármögnun hjúkrunarheimila. Ný viðmið þurfa að byggjast á núverandi hjúkrunarþörf og nýjustu upplýsingum um mönnun. Skilgreina þarf lágmarksfagmönnun með skýrum og mælanlegum hætti og tryggja raunverulegt og skilgreint hlutverk sjúkraliða. Fjármögnunin má ekki refsa heimilum fyrir að ráða fagmenntað starfsfólk. Launakostnaðarforsenda frá árinu 2016 má ekki verða að ráðningarþaki sjúkraliða árið 2026. Ef fjármögnunin gerir hjúkrunarheimili ókleift að ráða fagmenntað fólk sem stendur því til boða er vandinn ekki að heimilið sé með of marga sjúkraliða. Vandinn er að fjármögnunarkerfið endurspeglar ekki faglega mönnun. Nýútskrifaðir sjúkraliðar eiga ekki að fá þau skilaboð að vinnuframlag þeirra sé vel þegið en menntunin, starfsleyfið og starfsheitið séu óþægilegur kostnaðarauki. Hjúkrunarheimili er ekki „ofmannað“ sjúkraliðum vegna þess að prósentutala í gömlu reiknilíkani segir það. Mönnun er fullnægjandi þegar hún tekur mið af þörfum íbúanna, tryggir gæði þjónustunnar og verndar öryggi íbúa og starfsfólks. Það er mælikvarðinn sem á að ráða. Höfundur er formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sandra B. Franks Hjúkrunarheimili Heilbrigðismál Embætti landlæknis Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun