Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. ágúst 2026 13:59 Perez Hilton með móður sinni og þremur börnum. Móðir stjörnubloggarans Perezar Hilton hefur sótt um tímabundna forsjá yfir þremur börnum hans eftir að hann var lagður inn á spítala í kjölfar þess að skaða sjálfan sig í beinu streymi á TikTok. Hilton á þrjú ættleidd börn á aldrinum átta til þrettán ára. Gula pressan vestanhafs greinir frá því að Teresita Lavandeira, móðir bloggarans Mario Armando Lavandeira yngri sem er þekktur undir nafninu Perez Hilton, hafi þriðjudaginn 7. ágúst sótt um tímabundið forræði yfir börnunum hans þremur, hinum þrettán ára Mario, hinni ellefu ára Miu og hinni átta ára Mayte. Hjálp við sjálfsskaða er hægt sækja til heilsugæslu, bráðamóttöku, í hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða hjá Barna og unglingageðdeild í síma 543-4300 Samkvæmt dómsskjölum frá Miami sem dægurmálamiðillinn Page Six hefur undir höndum þá var Perez fús til að veita samþykki við forsjárbeiðninni. „Ég geri mér grein fyrir því að með því að skrifa undir þetta skjal þá veiti ég beiðanda samþykki fyrir því að hafa tímabundið forræði yfir ólögráða börnunum og að það tímabundna forræði sé börnunum í hag,“ sagði í skjölunum. Lavandeira verði þannig kleift að veita börnunum nauðsynlega umönnun, fá aðgang að sjúkrasögu þeirra og námsferilsskrám, sinna menntun þeirra og „gera allt sem er nauðsynlegt fyrir umönnun barnanna,“ sagði einnig í skjöldunum. Hilton kvittaði undir skjölin en þar segir einnig að hann gerir sér grein fyrir að forræðið yfir börnum hans sé tímabundið og hann geti á hverjum tíma beðið dóminn um að veita honum aftur forræði. „Ég skil og geri mér grein fyrir að ég þurfi að verða við beiðni um sanngjarna umskiptaáætlun áður en dómurinn veitir mér forræði á ný,“ sagði meðal annars í skjalinu sem hann skrifaði undir. Á langt í land með að ná fullum bata Perez Hilton var fluttur alblóðugur á sjúkrahús í Miami á þriðjudaginn eftir að hafa skaðað sjálfan sig í beinni á TikTok. Fjölskylda bloggarans greindi nokkrum dögum síðar frá því að hann hefði þurfi að gangast undir aðgerð eftir að hafa „misst mikið blóð“ í útsendingunni. Þá kom einnig fram í síðustu viku að ástand hans væri „alvarlegt en stöðugt“ og hann ætti langt í land með að ná fullum bata. „Við viljum staðfesta að Perez er enn á sjúkrahúsi samkvæmt Baker-lögunum í Flórída,“ kom fram í yfirlýsingu fjölskyldunni en þau eiga við um geðheilbrigðislög sem veita neyðarþjónustu fyrir fólk sem þjáist af geðsjúkdómum, samkvæmt upplýsingum frá barna- og fjölskyldumálaráðuneyti Flórída. Hollywood Bandaríkin Geðheilbrigði Fjölskyldumál Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira
Gula pressan vestanhafs greinir frá því að Teresita Lavandeira, móðir bloggarans Mario Armando Lavandeira yngri sem er þekktur undir nafninu Perez Hilton, hafi þriðjudaginn 7. ágúst sótt um tímabundið forræði yfir börnunum hans þremur, hinum þrettán ára Mario, hinni ellefu ára Miu og hinni átta ára Mayte. Hjálp við sjálfsskaða er hægt sækja til heilsugæslu, bráðamóttöku, í hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða hjá Barna og unglingageðdeild í síma 543-4300 Samkvæmt dómsskjölum frá Miami sem dægurmálamiðillinn Page Six hefur undir höndum þá var Perez fús til að veita samþykki við forsjárbeiðninni. „Ég geri mér grein fyrir því að með því að skrifa undir þetta skjal þá veiti ég beiðanda samþykki fyrir því að hafa tímabundið forræði yfir ólögráða börnunum og að það tímabundna forræði sé börnunum í hag,“ sagði í skjölunum. Lavandeira verði þannig kleift að veita börnunum nauðsynlega umönnun, fá aðgang að sjúkrasögu þeirra og námsferilsskrám, sinna menntun þeirra og „gera allt sem er nauðsynlegt fyrir umönnun barnanna,“ sagði einnig í skjöldunum. Hilton kvittaði undir skjölin en þar segir einnig að hann gerir sér grein fyrir að forræðið yfir börnum hans sé tímabundið og hann geti á hverjum tíma beðið dóminn um að veita honum aftur forræði. „Ég skil og geri mér grein fyrir að ég þurfi að verða við beiðni um sanngjarna umskiptaáætlun áður en dómurinn veitir mér forræði á ný,“ sagði meðal annars í skjalinu sem hann skrifaði undir. Á langt í land með að ná fullum bata Perez Hilton var fluttur alblóðugur á sjúkrahús í Miami á þriðjudaginn eftir að hafa skaðað sjálfan sig í beinni á TikTok. Fjölskylda bloggarans greindi nokkrum dögum síðar frá því að hann hefði þurfi að gangast undir aðgerð eftir að hafa „misst mikið blóð“ í útsendingunni. Þá kom einnig fram í síðustu viku að ástand hans væri „alvarlegt en stöðugt“ og hann ætti langt í land með að ná fullum bata. „Við viljum staðfesta að Perez er enn á sjúkrahúsi samkvæmt Baker-lögunum í Flórída,“ kom fram í yfirlýsingu fjölskyldunni en þau eiga við um geðheilbrigðislög sem veita neyðarþjónustu fyrir fólk sem þjáist af geðsjúkdómum, samkvæmt upplýsingum frá barna- og fjölskyldumálaráðuneyti Flórída.
Hjálp við sjálfsskaða er hægt sækja til heilsugæslu, bráðamóttöku, í hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða hjá Barna og unglingageðdeild í síma 543-4300
Hollywood Bandaríkin Geðheilbrigði Fjölskyldumál Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira