Háannatími má ekki vera griðland fyrir leyfislausan rekstur Sigrún Guðmundsdóttir skrifar 15. júní 2026 07:30 Vísir greindi frá því að lögregla og Skatturinn hefðu lokað þremur skemmtistöðum í Reykjavík og Hafnarfirði vegna athugunar á rekstrarleyfum og starfsleyfum öryggisþjónustu, og að á einum stað beindust aðgerðir að hugsanlegu skattalagabroti. Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði gagnrýndu einkum tímasetningu aðgerðanna, en sögðust ekki gera athugasemdir við sakargiftirnar. Lög um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald gera ráð fyrir rekstrarleyfi, eftirliti lögreglustjóra og heimild til stöðvunar leyfisskyldrar starfsemi sem fer fram án tilskilins leyfis. Þegar eftirlitið er gagnrýnt – hver ver þá sem fara að lögum? Það vekur vissulega furðu þegar samtök fyrirtækja á veitingamarkaði bregðast fyrst og fremst við eftirlitsaðgerðum lögreglu og Skattsins með því að gagnrýna tímasetningu þeirra. Enn meiri furðu vekur þó að í umræðunni virðist minna fara fyrir þeim rekstraraðilum sem hafa öll sín leyfi í lagi, standa skil á opinberum gjöldum, greiða launatengd gjöld, sinna kröfum um öryggi, hollustuhætti og ábyrga þjónustu. Og þurfa síðan að keppa við rekstraraðila sem virðast ekki þurfa lúta sömu reglum. Samkvæmt fréttum var þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum lögreglu og Skattsins. Fram hefur komið að aðgerðirnar hafi meðal annars beinst að starfsleyfum öryggisþjónustufyrirtækis sem starfaði á stöðunum og að á einum stað hafi verið grunur um skattalagabrot. Það er alvarlegt mál. Slík atriði eru ekki formsatriði eða smávægileg pappírsvinna. Leyfi, skráning, skattaskil og lögmæt öryggisgæsla eru hluti af þeim ramma sem á að tryggja öryggi gesta, réttindi starfsfólks, eðlilega samkeppni og traust almennings. Auðvitað eiga stjórnvöld að gæta meðalhófs. Auðvitað eiga aðgerðir að byggjast á skýrri lagaheimild. Auðvitað eiga rekstraraðilar að geta borið hönd fyrir höfuð sér ef mistök eru gerð. Það er ekki deilt um það. En það er eitt að ræða réttláta málsmeðferð og hitt að gefa í skyn að eftirlit eigi helst að fara fram þegar það truflar engan, sést ekki og hefur engin rekstrarleg áhrif. Leyfisskyld starfsemi á skemmtistöðum fer ekki fyrst og fremst fram klukkan tíu á þriðjudagsmorgni. Hún fer fram þegar gestir eru á staðnum, þegar áfengi er veitt, þegar dyraverðir eru við störf og þegar raunveruleg áhætta getur skapast. Ef eftirlit með dyravörslu, áfengisveitingum, opnunartíma eða öryggi má aðeins fara fram utan annatíma, þá verður eftirlitið að stórum hluta sýndareftirlit. Það er líka sérkennilegt að tala eins og mesta óréttlætið felist í því að rekstur sé stöðvaður á óheppilegum tíma. Fyrir löghlýðna veitingamenn er óréttlætið daglegt þegar aðrir komast mögulega hjá kostnaði sem þeir sjálfir bera. Það kostar að reka stað löglega. Það kostar að afla leyfa. Það kostar að sinna kröfum heilbrigðiseftirlits, brunavarna, vinnuverndar og lögreglu. Það kostar að greiða virðisaukaskatt, tryggingagjald, lífeyrissjóðsiðgjöld og laun samkvæmt reglum. Það kostar að kaupa þjónustu af aðilum sem hafa tilskilin leyfi. Þeir sem gera þetta rétt eiga ekki að þurfa að sitja undir því að eftirlit með ólögmætum eða vafasömum rekstri sé sett fram sem óþægindi fyrir þá sem sæta eftirlitinu. Þvert á móti ættu samtök atvinnugreinarinnar að vera fyrstir til að krefjast þess að allir sitji við sama borð. Það er ekkert atvinnufrelsi fólgið í því að fá að reka leyfisskylda starfsemi án tilskilinna leyfa. Það er ekki heilbrigð samkeppni að geta lækkað kostnað með því að fara á svig við reglur. Það er ekki hagsmunagæsla fyrir veitingamarkaðinn í heild að draga úr trúverðugleika eftirlitsaðila þegar þeir sinna lögbundnu hlutverki sínu. Hagsmunir greinarinnar felast ekki í því að gera eftirlit ósýnilegt. Þeir felast í því að eftirlit sé faglegt, samræmt, fyrirsjáanlegt og virkt. Þeir felast í því að þeir sem reka staði löglega, njóti verndar gegn þeim sem gera það ekki. Þeir felast í því að gestir geti treyst því að staðir sem taka á móti þeim séu með rekstur, öryggisgæslu og leyfi í lagi. Það má vel ræða framkvæmd eftirlits. Það má spyrja hvort upplýsingakerfi stjórnvalda séu nægilega góð, hvort eftirlitsaðilar samræmi aðgerðir sínar nægilega vel og hvort hægt sé að draga úr óþarfa raski þegar rekstraraðilar hafa sannanlega allt sitt á hreinu. En sú umræða má ekki verða skjól fyrir þá sem skortir leyfi, sinna ekki skyldum sínum eða standa ekki skil á opinberum gjöldum. Spurningin sem blasir við er einföld: Hver ver þá veitingamenn sem gera hlutina rétt? Það ætti að vera hlutverk samtaka á veitingamarkaði að gera það. Að standa með þeim sem reka fyrirtæki sín löglega. Að krefjast jafnræðis í samkeppni. Að styðja virkt eftirlit með leyfislausri starfsemi. Að minna á að reglur eru ekki settar til höfuðs atvinnurekendum heldur til að tryggja öryggi, heilbrigði, sanngjarna samkeppni og eðlileg opinber skil. Háannatími getur ekki verið griðland fyrir eftirlit. Ef staður er opinn, tekur við gestum og stundar leyfisskylda starfsemi, þá verður hann að þola að eftirlit fari fram á þeim tíma sem starfsemin er í raun í gangi. Það er ekki árás á veitingamarkaðinn. Það er forsenda þess að markaðurinn sé heiðarlegur. Höfundur er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og ritari Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Veitingastaðir Lögreglumál Reykjavík Næturlíf Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar