Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Sif Sigmarsdóttir skrifar 21. maí 2026 07:02 Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. Vísir/Sara Rut Þjálfari enska fótboltaliðsins Arsenal var gagnrýndur fyrir að fagna of ákaft sigri á spænska liðinu Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í byrjun mánaðar – Arsenal var ekki búið að vinna bikarinn.
Tveim dögum síðar fóru fram sveitarstjórnarkosningar í Bretlandi. Var frambjóðendum Verkamannaflokksins bannað að gráta í nærveru sjónvarpsmyndavéla yfir fyrirséðu stórtapi flokksins. Kjósenda beið þó langtum hvimleiðara sjónarspil en tár flokksmanna. Í kjölfar arfaslaks gengis í kosningunum fóru flokksfélagar Verkamannaflokksins í sjálfsagða naflaskoðun. Svo virðist hins vegar sem þeir hafi ruglast á líkamshlutum og endað með höfuðið svo langt uppi í eigin afturenda að þeim var ófært að hugsa um annað en eigin rass. Þjónar almenningur stjórnmálastéttinni? Tæp tvö ár eru liðin frá því að Verkamannaflokkurinn vann stórsigur í þingkosningum og formaður flokksins, Keir Starmer, varð forsætisráðherra. Aðgerðaleysi hefur einkennt valdatíð flokksins, sem einkum skýrist af eilífum innanbúðarátökum um stefnumál ríkisstjórnarinnar. En nú hefur stjórn landsins alfarið verið sett á ís í þágu Verkamannaflokksins. Pólitískir hrægammar, sem ágirnst hafa stól forsætisráðherra frá upphafi stjórnartíðar hans, túlkuðu atkvæði kjósenda í sveitarstjórnarkosningum sem eftirspurn eftir sjálfum sér. Breska pundið hrundi við fréttir af því að einn þeirra, heilbrigðisráðherrann Wes Streeting, hefði sagt af sér ráðherraembætti og hygðist hrinda af stað formannskosningu innan flokksins. Streeting er ekki einn um hituna. Ráðabrugg Andy Burnham, borgarstjóra Manchester, veldur nú ringulreið á Norður-Englandi. Burnham situr ekki á þingi og getur því ekki orðið formaður, en hann hefur fengið flokksfélaga sinn til að segja af sér þingmennsku svo að boða þurfi til auka kosninga þar sem Burnham hyggst gefa kost á sér. Andy, Keir og Wes - eða Gísli, Eiríkur og Helgi eins og þeir kynnu að vera kallaðir á íslensku.GETTY Lánshæfnismat Bretlands snarlækkaði í vikunni. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varaði Breta við áhrifum þess að víkja frá núverandi efnahagsstefnu. Almenningur óttast stýrivaxtahækkun. Allt vegna þess að stjórnmálastéttin, sem á að þjóna almenningi, virðist telja almenning þjóna sér. Þeir sem þykjast heyra skýrt Margir höfðu ærna ástæðu til að fagna í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna hér á landi um síðustu helgi. Velta má fyrir sér hvort sumir hafi þó – eins og þjálfari Arsenal – fagnað aðeins of ákaft. Sjálfstæðisflokkurinn náði glæstum árangri víða um land, ekki síst í Reykjavík þar sem flokkurinn, undir leiðsögn Hildar Björnsdóttur, var ótvíræður sigurvegari. Bæði Hildur og Arsenal eru á sigurgöngu.VÍSIR/VILHELM Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, lét sér þó ekki nægja að fagna sigri í tilteknum kosningum. Kvað hún niðurstöðuna áfellisdóm yfir forsætisráðherra og ríkisstjórninni og sagði þjóðina hafa „talað mjög skýrt.“ Sú pólitíska atburðarás sem á sér nú stað í Bretlandi sýnir hins vegar að þeir sem telja sig heyra „mjög skýrt“ skilaboð almennings í margslungnum kosningum leggja oft ekki sérlega vel við hlustir. Rislítil framganga Tölfræði gefur ekki endilega tilefni til að túlka kosningu í Reykjavík sem áfellisdóm yfir ríkisstjórninni. Ríkisstjórnarflokkarnir þrír, Samfylking, Viðreisn og Flokkur fólksins fengu samanlagt betri kosningu nú en í sveitarstjórnarkosningum árið 2022. Samfylkingin má þó líta í eigin barm. Þótt hún hafi haldið fimm borgarfulltrúum sínum hlaut hún ívið lægra hlutfall atkvæða nú en árið 2022. Voru úrslit sveitarstjórnarkosninganna dulin skilaboð til Kristrúnar Frostadóttur?VÍSIR/ANTON BRINK Verið getur að einhver hluti tapaðra atkvæða séu skilaboð til forsætisráðherra Kristrúnar Frostadóttur. Líklegt er þó að stór hluti fylgistapsins skýrist af óánægju með sjálfan borgarstjórnarflokkinn, sem staðfastasta Samfylkingarfólk gat varla fengið sig til að kjósa, eftir rislitla framgöngu síðustu missera. Hættuleg refskák Guðrún er – eins og þjálfari Arsenal – sigurreif. Pólitískir spekúlantar segja hana hafa styrkt stöðu sína. En dramb er falli næst. Breskur almenningur kann þeim pólitísku hrægömmum innan Verkamannaflokksins litlar þakkir, sem láta eins og þeir hlýði óskum almennings er þeir svala eigin valdafíkn og steypa landinu í margra mánaða óvissuástand. Hyggist Guðrún nota niðurstöður sveitarstjórnarkosninga til að kynda undir óstöðugleika á sviði landsmálanna ætti hún að hugsa sig tvisvar um. Því refskák fer ekki alltaf eins og lagt var upp með. Guðrún Hafsteinsdóttir hefur lagst í bollaleggingar um niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna.VÍSIR/VILHELM Wes Streeting hefur ekki enn tekist að afla stuðnings 81 þingmanna sem þarf til að skáka sitjandi formanni Verkamannaflokksins. Áhyggjur aukast hratt yfir því að Andy Burnham muni tapa aukakosningunum fyrir popúlistaflokknum Reform. Það sem hófst eins og þáttur í Game of Thrones líkist æ meira Klaufabárðunum. Hver voru skilaboðin? Erfitt getur verið að túlka atkvæði kjósenda. Var niðurstaða borgarstjórnarkosninganna stuðningsyfirlýsing við Guðrúnu Hafsteinsdóttur? Áfellisdómur yfir Kristrúnu Frostadóttur? Kannski. Þeir sem seilast svo langt í bollaleggingum um hug kjósenda gætu einnig spurt sig: Var framúrskarandi gengi Sjálfstæðisflokksins í borginni undir leiðsögn Hildar Björnsdóttur skilaboð um að flokkurinn hafi loks fundið sér þann skörulega formann sem hann hefur leitað svo lengi?
Samhengið með Sif Arsenal FC Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Kosningar í Bretlandi Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bretland Efnahagsmál Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn Sjálfstæðisflokkurinn Borgarstjórn Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Viðreisn Flokkur fólksins Tengdar fréttir Bíður þetta böl lands og þjóðar? Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan. 14. maí 2026 07:01 Tapaði ellefu milljónum David Attenborough verður hundrað ára á morgun. Attenborough er dáður um heim allan fyrir náttúrulífsþætti sína. Minnstu munaði hins vegar að veröldin yrði af hæfileikum hans. 7. maí 2026 07:00 Stór brjóst eru stór Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti. 30. apríl 2026 07:00 Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Þegar ég fullyrti við breskan vin minn að Ísland væri spilltasta ríki Norðurlanda skellihló hann. Honum fannst lítið til áþjánar landsmanna koma og sagði: „Að vera spilltasta ríkið á Norðurlöndum er eins og að vera lauslátasta nunnan í klaustrinu.“ 23. apríl 2026 07:00 Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hverjum þykir sinn fugl fagur. Að sama skapi virðist hverri kynslóð finnast eigin mótunarár hafa verið hápunktur vestrænnar siðmenningar. 16. apríl 2026 07:02 Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Það hafði verið fróm ósk barnanna að við færum á frumsýningu nýju Super Mario myndarinnar í páskafríinu. Þar sem ég gekk út úr bíósal í London og hugsaði „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ barst mér tilkynning í símann. Kvikmyndagagnrýnandi dagblaðsins The Times hafði birt harðorðan dóm um myndina. Kallaði hann verkið innantóma markaðssetningarælu sem sýndi hversu undirseld hórdómi vinsældanna við værum orðin. Gaf hann myndinni núll stjörnur. 9. apríl 2026 07:00 Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft. 2. apríl 2026 07:02 Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma. 26. mars 2026 07:01 Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. 19. mars 2026 07:02 Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Fyrrverandi sjónvarpsmaðurinn, Pete Hegseth, sem nú fer með hlutverk varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig glaðhlakkalegur á fréttamannafundi í síðustu viku um stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Sagði hann Írani búna að vera – eða eins og upptendraður unglingur sem spilaði tölvuleiki með vinum sínum í stofunni hjá mömmu sinni myndi orða það eftir aðeins of margar dósir af Pepsi Max: Hann sagði að þeir væru „toast“. 12. mars 2026 07:00 Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Árið 2002 heyrði Andrew Norfolk, blaðamaður málefna Norður-Englands hjá The Times, orðróm um skipulagða misnotkun á ungum hvítum stúlkum af hálfu karlmanna af pakistönskum uppruna. Kvað þingkona í Yorkshire sjö mæður af svæðinu hafa sagt menn sitja um dætur þeirra, misnota þær kynferðislega og láta þær ganga á milli manna sem þeim var sagt að sofa hjá. 5. mars 2026 07:01 Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni Að skrifa þessa pistla er stundum eins og að vera með harðlífi. Sama hvað ég rembist við að kreista fram hugmyndir koma þær ekki. Það verður því að teljast gráglettið, að fátt losar hraðar um ritstífluna en að þurfa að standa upp til að fara á klósettið. 26. febrúar 2026 07:03 Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur. 19. febrúar 2026 07:00 Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns? 12. febrúar 2026 07:01 Drengurinn sem dó Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir. 5. febrúar 2026 07:01 Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða. 29. janúar 2026 07:00 Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Ég sat skömmustuleg við eldhúsborðið og skrollaði á Facebook yfir afgöngum af jólakonfekti – þar fór súkkulaði- og samfélagsmiðlabindindi janúarmánaðar fyrir bí – þegar mér svelgdist skyndilega á. 22. janúar 2026 07:01 Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Ert þú sama manneskja í dag og þú varst í gær? Samkvæmt bandaríska félagssálfræðingnum Daniel Gilbert nálgumst við framtíðarútgáfuna af sjálfum okkur eins og börnin okkar. 15. janúar 2026 07:00 Ný skólína frá Nike: Air Inga – „just do it“ Ég ætlaði að byrja árið á jákvæðu nótunum. Staðreyndin er hins vegar sú að það borgar mér enginn laun fyrir að breiða út gleði. Eitt er það sem ég þoli verr við janúar en veðrið og Vísa-reikninginn. Ég hef skömm á öllum dálksentímetrum dagblaðanna sem fara undir völvu ársins. 9. janúar 2026 07:02 Mest lesið Hvað veistu um... flugvelli? Lífið Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lífið Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Menning Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Lífið Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Lífið samstarf Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Lífið Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Lífið Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Bíó og sjónvarp Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Lífið Fleiri fréttir Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Valgerður og Kjartan Vald eiga von á barni Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Alma himinlifandi með soninn sem lofar 45 prósenta fylgi næst Sigurræða Ásdísar: Ætlaði allt að koll um keyra þegar Ásdís mætti Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Eurovision Stjörnuleikarar sendu yfirlýstum aðdáanda kveðju Ljóðelskir frambjóðendur sýna hvað í þeim býr Sjá meira
Bíður þetta böl lands og þjóðar? Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan. 14. maí 2026 07:01
Tapaði ellefu milljónum David Attenborough verður hundrað ára á morgun. Attenborough er dáður um heim allan fyrir náttúrulífsþætti sína. Minnstu munaði hins vegar að veröldin yrði af hæfileikum hans. 7. maí 2026 07:00
Stór brjóst eru stór Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti. 30. apríl 2026 07:00
Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Þegar ég fullyrti við breskan vin minn að Ísland væri spilltasta ríki Norðurlanda skellihló hann. Honum fannst lítið til áþjánar landsmanna koma og sagði: „Að vera spilltasta ríkið á Norðurlöndum er eins og að vera lauslátasta nunnan í klaustrinu.“ 23. apríl 2026 07:00
Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hverjum þykir sinn fugl fagur. Að sama skapi virðist hverri kynslóð finnast eigin mótunarár hafa verið hápunktur vestrænnar siðmenningar. 16. apríl 2026 07:02
Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Það hafði verið fróm ósk barnanna að við færum á frumsýningu nýju Super Mario myndarinnar í páskafríinu. Þar sem ég gekk út úr bíósal í London og hugsaði „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ barst mér tilkynning í símann. Kvikmyndagagnrýnandi dagblaðsins The Times hafði birt harðorðan dóm um myndina. Kallaði hann verkið innantóma markaðssetningarælu sem sýndi hversu undirseld hórdómi vinsældanna við værum orðin. Gaf hann myndinni núll stjörnur. 9. apríl 2026 07:00
Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft. 2. apríl 2026 07:02
Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma. 26. mars 2026 07:01
Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu. 19. mars 2026 07:02
Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Fyrrverandi sjónvarpsmaðurinn, Pete Hegseth, sem nú fer með hlutverk varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig glaðhlakkalegur á fréttamannafundi í síðustu viku um stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Sagði hann Írani búna að vera – eða eins og upptendraður unglingur sem spilaði tölvuleiki með vinum sínum í stofunni hjá mömmu sinni myndi orða það eftir aðeins of margar dósir af Pepsi Max: Hann sagði að þeir væru „toast“. 12. mars 2026 07:00
Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Árið 2002 heyrði Andrew Norfolk, blaðamaður málefna Norður-Englands hjá The Times, orðróm um skipulagða misnotkun á ungum hvítum stúlkum af hálfu karlmanna af pakistönskum uppruna. Kvað þingkona í Yorkshire sjö mæður af svæðinu hafa sagt menn sitja um dætur þeirra, misnota þær kynferðislega og láta þær ganga á milli manna sem þeim var sagt að sofa hjá. 5. mars 2026 07:01
Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni Að skrifa þessa pistla er stundum eins og að vera með harðlífi. Sama hvað ég rembist við að kreista fram hugmyndir koma þær ekki. Það verður því að teljast gráglettið, að fátt losar hraðar um ritstífluna en að þurfa að standa upp til að fara á klósettið. 26. febrúar 2026 07:03
Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur. 19. febrúar 2026 07:00
Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns? 12. febrúar 2026 07:01
Drengurinn sem dó Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir. 5. febrúar 2026 07:01
Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða. 29. janúar 2026 07:00
Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Ég sat skömmustuleg við eldhúsborðið og skrollaði á Facebook yfir afgöngum af jólakonfekti – þar fór súkkulaði- og samfélagsmiðlabindindi janúarmánaðar fyrir bí – þegar mér svelgdist skyndilega á. 22. janúar 2026 07:01
Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Ert þú sama manneskja í dag og þú varst í gær? Samkvæmt bandaríska félagssálfræðingnum Daniel Gilbert nálgumst við framtíðarútgáfuna af sjálfum okkur eins og börnin okkar. 15. janúar 2026 07:00
Ný skólína frá Nike: Air Inga – „just do it“ Ég ætlaði að byrja árið á jákvæðu nótunum. Staðreyndin er hins vegar sú að það borgar mér enginn laun fyrir að breiða út gleði. Eitt er það sem ég þoli verr við janúar en veðrið og Vísa-reikninginn. Ég hef skömm á öllum dálksentímetrum dagblaðanna sem fara undir völvu ársins. 9. janúar 2026 07:02