Samfylkingin
1 2 3 4 5 6 … 77 ›
Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Miðflokksmenn hafa skipst á að koma í pontu í þingsal í dag til að ræða þingsályktunartillögu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ljóst þykir að meirihlutanum liggur á að koma málinu í gegnum þingið svo fyrirhuguð dagsetning atkvæðagreiðslu standist. Innlent 27.5.2026 21:00
Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá „Okkur langar að koma Reykjavík í fremstu röð í skólamálum“, segir verðandi forseti borgarstjórnar og oddviti Viðreisnar. Oddviti Framsóknar ætlar við stjórn borgarinnar að leggja áherslu vilja almennings, Ari Edwald íhugar tilboð sem Líf Magneudóttir vildi fá. Innlent 27.5.2026 19:01
„Þetta vita Einar og Björg“ Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segist óttast að fyrirætlanir nýs meirihluta um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins muni fela í sér miklar tafir á framkvæmdum og viðhalda umferðarhnútum í borginni til næstu ára. Hann segist ekki sjá handbragð Viðreisnar í meirihlutasáttmálanum og furðar sig á því að Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar vilji nú endurskoða samgöngusáttmála sem hann hafi skrifað undir fyrir átján mánuðum síðan. Innlent 27.5.2026 14:54
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Listi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks hafa náð saman um myndun meirihluta í Suðurnesjabæ en samstarfssamkomulag flokkanna var undirritað fyrr í kvöld. Til stendur að ráðið verði í stöðu bæjarstjóra. Innlent 26.5.2026 21:37
Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði kynntu fyrir stundu málefnasamning sinn undir kjörorðunum: „Frelsi, ábyrgð, velferð og lífsgæði.“ Innlent 26.5.2026 20:55
Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Þórður Þórarinsson er nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Þórður er ráðinn af nýjum meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingarinnar. Innlent 26.5.2026 17:58
Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking hafa boðað til kynningarfundar klukkan 18:10, þar sem málefnasamningur nýs meirihluta verður kynntur auk nýs bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Innlent 26.5.2026 17:42
Kveðjustund í ráðhúsinu Síðasti fundur borgarstjórnar á kjörtímabilinu fór fram í dag. Gríðarleg endurnýjun er í borgarstjórn en sextán borgarfulltrúar hverfa á braut og sextán nýir koma inn í þeirra stað. Lífið 26.5.2026 15:34
Heiða greinir frá morðhótunum Heiða Björg Hilmisdóttir fráfarandi borgarstjóri hefur verið hótað lífláti og fengið herta öryggisgæslu síðan hún tók við embættinu. Hún segir gengið hafa á ýmsu og segist hugsi yfir því hvernig talað sé um kjörna fulltrúa hér á landi. Innlent 26.5.2026 13:17
Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknarflokksins og fráfarandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir síðustu daga hafa verið krefjandi og ýmislegt hafi verið sagt sem hann taki nærri sér. Um þúsund hafa mótmælt nýjum meirihluta og að Framsókn sé ekki með í honum. Nýr meirihluti kynnir sáttmála sinn í dag. Innlent 26.5.2026 07:55
Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf í Hafnarfirði. Til stendur að kynna meirihlutasáttmála flokkanna á félagsfundum þeirra á morgun. Í kjölfarið hyggjast oddvitar undirrita sáttmálann og kynna efni hans á blaðamannafundi í Hamranesi. Innlent 25.5.2026 18:17
„Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist taka umfjöllun um dýrt og fágað úr sem hún á létt. Sjálf fylgist hún ekki með fréttum af þessu tagi og veltir því upp hvort Davíð Oddsson hafi ekki átt álíka fínt armbandsúr á sinni embættistíð án þess að því hefði verið slegið upp í Morgunblaðinu. Lífið 24.5.2026 14:02
„Hvað hafa þau að fela?“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vera „já, kannski“-manneskja hvað aðild Íslands að Evrópusambandinu varðar. Hún myndi aldrei tala fyrir samþykkt óásættanlegs samnings. Innlent 24.5.2026 12:36
Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Bæjarstjórnarflokkar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf næstu fjögur árin. Innlent 23.5.2026 17:26
Hvað myndir þú gera við auka milljón á ári? Nú ræðum við um þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þjóðin fær tækifæri til að ákveða hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það er mikilvægt að hafa í huga að ef þjóðin segir já við því verður önnur þjóðaratkvæðagreiðsla haldin þegar samningur liggur fyrir. Þá fyrst verður tekin afstaða til þess hvort Ísland gangi í Evrópusambandið eða ekki. Skoðun 23.5.2026 15:01
Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar í Hafnarfirði segir ólíka túlkun á handabandi snurðan á þræði meirihlutaviðræðna. Hann telur þó alla vinna af heilindum og vonast til að Framsókn komist aftur að borðinu. Innlent 22.5.2026 20:32
„Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íbúi skammt frá Miðbakka segir það fullreynt að hafa parísarhjól á svæðinu og kallar eftir því að borgarbúar endurheimti útivistarsvæði. Undirskriftarlisti hefur verið stofnaður til að mótmæla áformunum. Innlent 22.5.2026 20:02
„Þetta parísarhjól sökkar“ Fréttir af því að parísarhjól á Miðbakka muni líklega rísa á ný hafa fallið í grýttan jarðveg. Margir undra sig á ákvörðun borgarinnar um að ganga til viðræðna við rekstraraðila hjólsins og syrgja körfuboltavöllinn og hjólabrettasvæðið sem var þar áður. Formaður borgarráðs segir að ekki hafi fundist tími til að finna eitthvað annað fyrir svæðið og að tilvonandi meirihluti hafi ekki sett sig upp á móti framlengingunni. Menning 22.5.2026 16:31
Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hittust á óformlegum fundi í morgun til að ræða mögulegt meirihlutasamstarf. Fundurinn gekk vel og munu þeir hittast aftur til þess að ákveða næstu skref. Innlent 22.5.2026 13:20
Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Svo virðist sem parísarhjólið muni rísa á Miðbakka í Reykjavíkurhöfn í þriðja sinn í sumar. Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt tillögu þess efnis að bjóða Taylors Tivoli Iceland ehf. til viðræðna um framlengingu samnings um afnot af svæðinu til að reka parísarhjól, þrátt fyrir mótmæli Samfylkingar. Innlent 22.5.2026 11:13
Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði útilokar samstarf við Framsóknarflokkinn eftir að oddviti flokksins tilkynnti þremur mínútum áður en fréttatilkynning um formlegar viðræður Framsóknar og Sjálfstæðisflokks barst að ekkert yrði af samstarfi Framsóknar, Samfylkingar og Viðreisnar. Innlent 21.5.2026 12:35
Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Þjálfari enska fótboltaliðsins Arsenal var gagnrýndur fyrir að fagna of ákaft sigri á spænska liðinu Atletico Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í byrjun mánaðar – Arsenal var ekki búið að vinna bikarinn. Lífið 21.5.2026 07:02
Sjálfstæðisflokkurinn enn á flugi Fylgi Sjálfstæðisflokksins á landsvísu er áfram á uppleið samkvæmt nýrri könnun Maskínu og fer úr átján prósentum í tæp tuttugu. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur frá áramótum aukist um ríflega sex prósentustig. Innlent 20.5.2026 18:51
„Er forsætisráðherra ánægð með hagstjórnina?“ Sjálfstæðismenn mættu í vígahug í fyrirspurnartíma eftir hlé sem gert var á þingstörfum meðan sveitarstjórnarkosningarnar fóru fram, fullir sjálfstrausts eftir kosningaúrslitin. Þeir vildu þjarma að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og spurðu hana út í efnahagsstjórnina. Kristrún varðist fimlega. Innlent 20.5.2026 17:01
Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Sá á kvölina sem á völina hefur sjaldan átt eins vel við og um þá stöðu sem Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, er í nú um stundir. Fulltrúar annarra flokka bíða þess sem verða vill, misrólegir. Innlent 19.5.2026 14:01
„Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segist aðallega velta fyrir sér meirihlutasamstarfi með Miðflokki annars vegar eða Viðreisn og Framsókn hins vegar. Hún hefur rætt við alla kjörna oddvita í dag en kveðst ekki hafa tekið ákvörðun. Nú ætli hún að tala við sitt fólk um stöðuna sem upp er komin. Innlent 18.5.2026 19:51
Stuð í kosningavökum flokkanna Stjórnmálaflokkar héldu kosningavökur um land allt á laugardagskvöldið til að fagna niðurstöðum sveitarstjórnarkosninga. Fréttastofa Sýnar kíkti í fjölmargar kosningavökur á höfuðborgarsvæðinu og var gríðarleg stemming víða. Lífið 18.5.2026 16:46
Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar og oddviti Hafnarfjarðar, hefur ákveðið að stíga til hliðar og hætta í pólitík. Hann gerir því skóna að nýr varaformaður flokksins verði valinn á næstunni á flokksráðsfundi. Innlent 18.5.2026 14:46
Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ljóst að Samfylkingin þarf að byggja upp traust á ný í Reykjavík. Samfylkingin hafi hlotið næstmest fylgi á landsvísu og flokkurinn hafi fjölgað fulltrúum í sveitarstjórnum. Það sé samt sem áður alvarlegt að fjöldi jafnaðarmanna hafi kosið aðra flokka. Innlent 18.5.2026 13:01
Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Meirihlutaviðræður eru hafnar á þó nokkrum stöðum, meðal annars á Akureyri og í Skagafirði, þar sem útlit er fyrir að Framsóknarflokkurinn verði ekki í meirihluta í fyrsta sinn um árabil. Oddviti Framsóknar segir tíðindin koma sér í opna skjöldu. Innlent 18.5.2026 12:02