Stefnir á að slá heimsmetið aftur í september Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. maí 2026 09:02 Nýtt heimsmet var ekki nóg fyrir Sabastian Sawe, hann stefnir á annað. Alex Davidson/Getty Images Sabastian Sawe varð á dögunum fyrsti maðurinn til að hlaupa maraþona á minna en tveimur klukkutímum og hefur nú gefið það út að hann stefni á nýtt heimsmet í september.
Sawe sló heimsmetið í ótrúlegu maraþoni í Lundúnum á dögunum. Hann kláraði á 1:59:30 og varð þar með fyrstur í sögunni til að hlaupa á undir tveimur tímum. Skammt á eftir fylgdi Yomif Kejelcha og hljóp einnig á undir tveimur tímum. Jabob Kiplimo kom svo þriðji og sló einnig fyrra heimsmetið, 2:00:35, sem Kelvin Kiptum hafði sett árið 2023. Sawe hefur nú tilkynnt að hann ætli að hlaupa maraþon í Berlín í september. Þar er stefnan sett á að slá heimsmetið aftur og þjálfari hans trúir því að tími upp á 1:58:XX sé raunhæfur möguleiki. „Allt er mögulegt. Þetta er bara tímaspursmál,“ sagði þjálfarinn Claudio Beradelli og hitti sannarlega naglann á höfuðið því þetta er mikið tímaspursmál. Berlín hefur sögulega séð verið góður staður til að setja heimsmet í maraþoni. Níu sinnum síðan árið 1998 hefur heimsmet verið sett í Berlínarmaraþoninu. Brautarmetið þar er 2:01:19, sem var á sínum tíma heimsmet þegar Eliud Kipchoge kláraði hlaupið árið 2022. Þetta verður fimmta maraþonið á ferli Sawe en hann hefur fagnað sigri í þeim öllum. Hann mun hlaupa í samskonar skóm, 97 kílógramma Adidas Pro Evo 3 skóm, eins og þegar hann setti heimsmetið í Lundúnum um daginn.
Hlaup Frjálsar íþróttir Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Modric tekur slaginn áfram í Mílanó Leikvangur með gagnsætt þak og yfir tuttugu þúsund bílastæði RFS - Vestri | Ævintýrið heldur áfram „Klopp er tvímælalaust rétti maðurinn“ Arnór í leyfi frá störfum Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Keyrir gamla bíla til að viðhalda ást sinni á Formúlu 1 Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Segir að ítalski fótboltinn þurfi að horfa til Spánar Fyrrum UFC-meistari vinnur fyrir sér sem sendill Barcelona kaupir Adeyemi Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Meiddir Valsmenn, ævintýri Vestra og svar Stjörnunnar Kvennatennisinn tekur upp kynjapróf fyrir alla leikmenn Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar Orri og félagar tolleruðu heimsmeistarann sinn Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Er nýi Haaland íslenskur? Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppnum Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sjá meira