Handbolti

Teitur kallaður inn í lands­liðið vegna meiðsla

Aron Guðmundsson skrifar
Teitur Örn í leik með íslenska landsliðinu
Teitur Örn í leik með íslenska landsliðinu Vísir/Getty

Teitur Örn Einarsson, leikmaður Gummersbach í Þýskalandi, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðið í handbolta fyrir leikinn gegn Úkraínu á morgun vegna meiðsla Einars Þorsteins Ólafssonar.

Frá þessu greinir HSÍ í færslu á samfélagsmiðlum núna í kvöld en Ísland mætir Úkraínu í fyrsta leik undankeppni EM 2028 hér heima í Laugardalshöll á morgun. 

Einar Þorsteinn er leikmaður HSV í Þýskalandi en hann meiddist í síðasta leik liðsins fyrir landsleikjapásuna og mun því ekki geta beitt sér á morgun. 

Eftir leikinn gegn Úkraínu heldur íslenska landsliðið til Eistlands þar sem að liðið mætir heimamönnum á sunnudaginn næstkomandi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×