„Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. október 2026 22:09 Örn Þrastarson tók við Selfossliðinu fyrir tímabilið. selfoss handbolti Örn Þrastarson, þjálfari Selfoss, var svekktur með ýmislegt í leik sinna manna eftir sex marka tap liðsins gegn Fram í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. „
Fyrsta tilfinning er að við köstum þessu bara frá okkur á einhverjum tíu mínútna kafla í fyrri hálfleik þar sem við erum bara lélegir,“ sagði Örn í leikslok. „Það sem við gerum til að reyna að bregðast við það bara virkar ekki. Eitthvað eitnbeitingarleysi eða eitthvað, ég veit það ekki. Við vorum allavega ekki klárir í fyrri hálfleik,“ bætti Örn við. „Í seinni hálfleik erum við töluvert beittari, en þá erum við bara búnir að grafa þessa djúpu holu og þá má ekkert út af bera. Við búum samt til leik úr þessu, en köstum því frá okkur með einhverjum ótrúlegum atriðum. Óklókir er kannski bara besta orðið til að lýsa því.“ Selfyssingar fóru oft og tíðum illa með sóknir sínar og enduðu með 19 tapaða bolta. Aðspurður um það nýtti Örn tækifærið og hnýtti létt í dómgæslu deildarinnar. „Ég verð nú bara að segja að mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg. Mér finnst mega vera smá kontakt, en það getur vel verið að þetta hafi allt verið ruðningur. En æi, kommon. Þetta var svo sem eins báðum megin þannig ég get kannski ekkert kvartað yfir því. Ég veit það ekki. Við vorum bara ekki nógu góðir í fyrri hálfleik til að fá eitthvað út úr þessum leik.“ Selfyssingar hafa aðeins náð í eitt stig úr fyrstu átta leikjum tímabilsins. „Ég hefði gjarnan viljað vera með 4-5 stig núna. Við vorum frábærir úti í Vestmannaeyjum og hefðum átt að vinna þar og við vorum með víti og búið til að klára þetta á móti Stjörnunni. Við vorum vissulega ekki nógu góðir í seinni hálfleik á móti Víking. Það er kannski eini hálfleikurinn sem ég sé eftir,“ sagði Örn. „Við erum búnir að spila við toppliðin og erum með fullt af ungum strákum sem við erum að reyna að blóðga. Þó það sé klisja þá erum við bara að horfa á einn leik í einu í þessu og erum að reyna að verða betri. Við vitum að varnarleikurinn sérstaklega er okkar verkefni og vissum það þegar við lögðum af stað. Það á ekkert endilega að þurfa að koma á óvart að við séum ekki með mikið fleiri stig þó ég hefði vissulega viljað vera með allavega fjögur.“ En hvað geta Selfyssingar tekið með sér inn í framhaldið? „Seinni hálfleikurinn í kvöld var flottur að mörgu leyti. Það var flottur andi í okkur og allt það, en á lykilaugnablikum erum við bara ekki nógu klókir. Við þurfum að skoða það vel og reyna að læra af því. Við þurfum að vera sniðugri á erfiðu augnablikunum. Það lærist ekki nema að fá að prófa það. Vonandi kemur það jafnt og þétt og vonandi fer reynslan að detta inn í staðinn fyrir að sjálfstraustið fari. Það er svo sem verkefni sem strákarnir þurfa að sýna mér að þeir ráði við,“ sagði Örn að lokum.
Olís-deild karla UMF Selfoss Fram Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Fleiri fréttir „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sjá meira