Íslenski boltinn

Davíð Smári hættur hjá Njarð­vík

Valur Páll Eiríksson skrifar
Davíð Smári Lamude stýrði Njarðvík aðeins eina leiktíð og liðið hafnaði í fimmta sæti Lengjudeildarinnar.
Davíð Smári Lamude stýrði Njarðvík aðeins eina leiktíð og liðið hafnaði í fimmta sæti Lengjudeildarinnar. vísir/Diego

Davíð Smári Lamude hefur sagt upp störfum sem þjálfari karlaliðs Njarðvíkur í fótbolta eftir eitt ár í starfi.

Davíð Smári staðfestir við Fótbolti.net að hann hafi óskað eftir starfslokum hjá Njarðvíkingum eftir mikla ígrundun.

Samkvæmt frétt miðilsins hafi samkvæmt Davíð, ekki verið samhljómur milli þjálfara og stjórnar hver næstu skref yrðu hjá hans liði.

Davíð Smári tók við Njarðvík síðasta haust og stýrði liðinu í eina leiktíð. Liðið hafnaði í fimmta sæti Lengjudeildarinnar undir hans stjórn í sumar en féll úr leik fyrir Þrótti í undanúrslitum umspils um Bestu deildar sæti.

Davíð hefur áður þjálfað Kórdrengi og Vestra en hann kom Vestra upp í Bestu deildina tímabilið 2024 og stýrði liðinu til bikarmeistaratitils sumarið 2025.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×