Sport

Tíma­bilinu lokið hjá Viktori

Stefán Árni Pálsson skrifar
Viktor Jónas Lúðvíksson verður ekki meira með á tímabilinu. 
Viktor Jónas Lúðvíksson verður ekki meira með á tímabilinu.  vísir/Anton

Stjörnumenn urðu fyrir enn einu áfallinu í þarsíðustu viku þegar unglingalandsliðsmaðurinn Viktor Jónas Lúðvíksson meiddist illa á öxl í leik með KFG á móti Blikum í 1. deild karla í körfubolta.

KFG vann leikinn sannfærandi.

Stjarnan greinir frá því í dag á samfélagsmiðlum að Viktor þurfi að fara í aðgerð á öxl og muni ekki spila meira með Stjörnunni á tímabilinu.

Stjarnan hefur byrjað illa á tímabilinu í Bónus-deildinni en liðið hefur tapað þremur leikjum og unnið einn, nú síðast gegn ÍR. Viktor þykir einn efnilegasti leikmaður landsins og því um mikla blóðtöku að ræða fyrir Garðbæinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×