Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. maí 2026 16:09 Ming Ting hefur verið í gæsluvarðhaldi og farbanni síðan í júní 2025. Vísir/Vilhelm Ming Ting Mancel hefur verið ákærð fyrir að hafa, í samráði með eiginmanni sínum Emeric Xavier Mancel, banað dóttur þeirra á hótelherbergi á Edition-hótelinu síðasta sumar. Hún er einnig ákærð fyrir brot í nánu sambandi.
Í ákærunni sem fréttastofa hefur undir höndum er því lýst hvernig Ming Ting og Emeric eiga að hafa banað dóttur sinni, Catherine Delphine Mancel. Samkvæmt ákærunni eiga þau að hafa haldið henni fastri, meðal annars með því að grípa um hægri upphandlegg hennar. Þá hafi þau brugðið snöru um háls hennar og þrengt að öndunarvegi hennar. Catherine á vegna þessa að hafa hlotið punktblæðingar í andliti og hálsi auk bráðs yfirþans á lungunum. Hjónin eiga síðan að hafa stungið hana tvisvar sinnum með hnífi í brjóstkassann og önnur stungan hæft hjartað hennar. Catherine lést vegna lungnaþembu og rofs á hægri slegli hjartans sem leiddi til blæðingar og blóðfyllu í gollurhúsi hjartans. DV greinir frá því að málið hafi verið þingfest í dag. Ætlaði að svipta sig lífi Þann 14. júní 2025 fundust bæði Emeric og Catherine látin á hótelherbergi á Edition-hótelinu. Ming Ting játaði fyrst á vettvangi að hafa drepið þau og að hún hefði síðan ætlað að svipta sig lífi en ekki lokið við ætlunarverk sitt. Síðar breytti hún framburðinum og neitar sök. Ming Ting var ákærð þann 27. apríl 2026 fyrir manndráp í samráði við Emeric. Þegar lögreglan kom lá Emeric meðvitundarlaus á gólfinu og búið var að breiða yfir hann lak en hann var með tvo stunguáverka á kvið. Catherine lá í rúminu með stunguáverka við brjóst. Töluvert af blóði var á gólfinu auk þess sem blóðug handklæði og fatnaður voru í herberginu. Á leið af vettvangi og á bráðamóttöku tjáði konan lögreglu að líkin væru af eiginmanni hennar og dóttur. Þá sagði hún við hjúkrunarfræðing, þannig að lögreglumaður heyrði til, að eiginmaður hennar væri dauðvona og hún hafi ekki viljað að dóttir þeirra, sem var á þrítugsaldri, yrði ein eftir lifandi.
Manndráp á Reykjavík Edition Lögreglumál Reykjavík Hótel á Íslandi Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Sjá meira