Löggan bankaði upp á á skírdag Bjarki Sigurðsson skrifar 25. apríl 2026 15:30 Aðalgeir Axelsson er eigandi Kalt og gott á Akureyri. Vísir/Bjarki Sífleiri versla áfengi hjá netverslunum á Akureyri eftir að ÁTVR færði vínbúð bæjarins úr miðbænum á Norðurtorg í Þorpinu. Á skírdag lokaði lögreglan öllum afhendingarstöðum áfengis í bænum og kallar eigandi netverslunar eftir skýrari lagaramma.
Á skírdag heimsótti lögreglan á Akureyri þrjá afhendingarstaði áfengis og lét loka þeim þar sem óheimilt er að afhenda áfengi á helgidögum þjóðkirkjunnar. Eigendur staðanna sinntu fyrirmælum lögreglu og voru þeir einnig lokaðir á föstudaginn langa, páskadag og annan í páskum. Gott samstarf með lögreglunni Aðalgeir Axelsson, eigandi Kalt og gott á Akureyri, segir löggjöfina óskýra hvað varðar netverslanir með áfengi. „Auðvitað er þetta á gráu svæði og óskýr löggjöf. Við teljum okkur vera innan lagarammans. En þegar lögreglan kemur inn og bendir á þetta viljum við vinna með henni og gerum það að sjálfsögðu,“ segir Aðalgeir. Skýrari reglur Hann kallar eftir því að stjórnvöld uppfæri áfengislöggjöfina. „Ég held að það séu allir sammála um það, sama hvort það eru við eða fólkið í landinu. Það þarf að hafa þetta skýrara,“ segir Aðalgeir. Umdeildir flutningar ÁTVR Í fyrra flutti ÁTVR verslun sína úr miðbæ Akureyrar á Norðurtorg í Þorpinu. Aðalgeir segir marga Akureyringa ekki ánægða með tilfærsluna. „Auðvitað voru skiptar skoðanir á þessu, Akureyringurinn er vanafastur þannig þetta var sjokk fyrir einhverja. Með þessari verslun hjá okkur erum við að mæta þörfum fólks í bænum. Svo er fólk hinum megin í bænum sem er helvíti lengi að fara upp eftir,“ segir Aðalgeir.
Neytendur Akureyri Verslun Netverslun með áfengi Áfengi Lögreglumál Mest lesið Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Lífið samstarf Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira