Atvinnulíf

Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Fréttir og heimsmál geta haft svo mikil áhrif á okkur að fólk getur jafnvel orðið stressaðra sem fylgist mikið með fréttum, miðað við fólk sem er á staðnum þar sem atburðirnir eru að gerast. Heilinn okkar hatar óvissu en góðu ráð vikunnar beinast að því, hvernig við reynum að finna milliveginn.
Fréttir og heimsmál geta haft svo mikil áhrif á okkur að fólk getur jafnvel orðið stressaðra sem fylgist mikið með fréttum, miðað við fólk sem er á staðnum þar sem atburðirnir eru að gerast. Heilinn okkar hatar óvissu en góðu ráð vikunnar beinast að því, hvernig við reynum að finna milliveginn. Fréttamyndir af Vísi

Brennandi strætóskýli í París. Grímuklæddir óeirðaseggir í Mílanó. Útgöngubann í hluta franskra borga. Og allt byrjaði þetta með framhaldsskólanemum sem vildu minni bekki.

Það er ekki laust við að fréttir vikunnar hafi komið mörgum í opna skjöldu. Því mótmæli franskra framhaldsskólanema gegn yfirfullum kennslustofum og kennaraskorti hafa á örfáum vikum undið hressilega upp á sig.

Nú snúast mótmælin um verðlag og niðurskurð í opinberri þjónustu. Og þau hafa breiðst út: til Ítalíu, Spánar, Portúgals, Belgíu, Grikklands og Albaníu.

Og þetta bætist ofan á allt hitt:

Stríð geisa. Heimsmyndin hefur verið að breytast hratt síðustu misserin og enginn veit hvað Trump tekur upp á næst. Í ofanálag eru mótmælin nú komin nær heimahögum. Því jú, við tilheyrum Evrópu.

Mörg okkar eiga vini, ættingja eða samstarfsfólk í þessum löndum. Sum eru á leið í vinnuferð til Parísar eða haustfrí til Ítalíu. Og flest þekkjum við litlu röddina sem hvíslar: Hvað ef þetta kemur hingað líka?

Spurt er: 

Geta svona heimsfréttir haft áhrif á líðan okkar, einbeitingu og afköst í vinnunni? 

Stutta svarið er Já. 

Og rannsóknir styðja það.

Ein þekktasta rannsóknin á þessu sviði var gerð af vísindamönnum við Kaliforníuháskóla í Irvine eftir sprengjuárásirnar á Boston-maraþoninu árið 2013. Niðurstaðan vakti mikla athygli: Fólk sem fylgdist með fréttum af árásinni sex klukkustundir eða lengur á dag vikuna á eftir upplifði meiri bráðastreitu en fólk sem var sjálft á staðnum.

Lesið þetta aftur: Meiri streitu en þau sem voru á staðnum!

Rannsakendur bentu á að þegar við tökum endurtekið inn fréttir af áföllum, klukkutímum saman, getur skammvinn streita orðið að langvarandi streitu. Fjölmiðlar geta þannig dreift áhrifum áfalla langt út fyrir þau samfélög sem verða fyrir þeim.

Og það þarf ekki klukkutíma til.

Í tilraun sem Shawn Achor og Michelle Gielan sögðu frá í Harvard Business Review horfði annar hópurinn á þriggja mínútna neikvæðar fréttir að morgni en hinn á lausnamiðaðar fréttir. Sex til átta tímum síðar voru þeir sem horfðu á neikvæðu fréttirnar 27% líklegri til að lýsa deginum sem slæmum.

Þrjár mínútur. Yfir morgunkaffinu. Og dagurinn í vinnunni litast af því.

En hvers vegna eru fréttir eins og þessar svona lýjandi?

Hluti skýringarinnar gæti legið í óvissunni.

Vísindamenn við University College London létu þátttakendur spila tölvuleik þar sem stundum leyndist snákur undir steini, og ef svo var fengu þátttakendur vægt rafstuð. 

Í ljós kom að fólk var hvað stressaðast þegar helmingslíkur voru á stuði. Ekki þegar það vissi að stuðið kæmi.

Með öðrum orðum: Það er verra að vita ekki en að vita að eitthvað slæmt sé í vændum.

Þetta á vel við núna. Við vitum ekki hvernig mótmælin þróast. Hvort þau breiðist enn frekar út. Hvað gerist í stríðunum eða hvaða ákvörðun kemur næst frá Hvíta húsinu. Heilinn okkar hatar einmitt svona stöðu.

Hugmyndir um góð ráð:

Ekki byrja daginn í símanum. Prófaðu að gera eitthvað annað – hefja daginn þinn – og kíkja síðan á fréttir.

Skammtaðu þér fréttirnar og veldu áreiðanlega miðla frekar en þá sem leitast við að sjokkera fólk sem mest.

Skrifaðu niður þrjú verkefni sem þú ætlar að klára í dag. Að vera með sýnilegan verkefnalista hjálpar okkur að setja orkuna í okkar eigin mál, frekar en að hafa áhyggjur af heimsmálunum eða jafnvel fólki sem við þekkjum erlendis.


Tengdar fréttir

Lokanir, lægðir og samviskubit

Ekkert okkar er það bjartsýnt fyrir veturinn að stóra lægðin og óveðrið sem hér geisaði í vikunni sé það fyrsta, eina og síðasta sem fram undan er.

Fjár­hagsáhyggjur starfs­fólks tvöfaldar: Vinnan og heima

Það létti mörgum þegar samkomulag náðist í höfn á elleftu stundu í gær. Og þegar andrúmsloftið er þungt eða skýjað virðist fram undan er það góð tilfinning að finna létti, upplifa eitthvað jákvætt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×