Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Rakel Sveinsdóttir skrifar 23. október 2026 07:02 Fréttir og heimsmál geta haft svo mikil áhrif á okkur að fólk getur jafnvel orðið stressaðra sem fylgist mikið með fréttum, miðað við fólk sem er á staðnum þar sem atburðirnir eru að gerast. Heilinn okkar hatar óvissu en góðu ráð vikunnar beinast að því, hvernig við reynum að finna milliveginn. Fréttamyndir af Vísi Brennandi strætóskýli í París. Grímuklæddir óeirðaseggir í Mílanó. Útgöngubann í hluta franskra borga. Og allt byrjaði þetta með framhaldsskólanemum sem vildu minni bekki.
Það er ekki laust við að fréttir vikunnar hafi komið mörgum í opna skjöldu. Því mótmæli franskra framhaldsskólanema gegn yfirfullum kennslustofum og kennaraskorti hafa á örfáum vikum undið hressilega upp á sig. Nú snúast mótmælin um verðlag og niðurskurð í opinberri þjónustu. Og þau hafa breiðst út: til Ítalíu, Spánar, Portúgals, Belgíu, Grikklands og Albaníu. Og þetta bætist ofan á allt hitt: Stríð geisa. Heimsmyndin hefur verið að breytast hratt síðustu misserin og enginn veit hvað Trump tekur upp á næst. Í ofanálag eru mótmælin nú komin nær heimahögum. Því jú, við tilheyrum Evrópu. Mörg okkar eiga vini, ættingja eða samstarfsfólk í þessum löndum. Sum eru á leið í vinnuferð til Parísar eða haustfrí til Ítalíu. Og flest þekkjum við litlu röddina sem hvíslar: Hvað ef þetta kemur hingað líka? Spurt er: Geta svona heimsfréttir haft áhrif á líðan okkar, einbeitingu og afköst í vinnunni? Stutta svarið er Já. Og rannsóknir styðja það. Ein þekktasta rannsóknin á þessu sviði var gerð af vísindamönnum við Kaliforníuháskóla í Irvine eftir sprengjuárásirnar á Boston-maraþoninu árið 2013. Niðurstaðan vakti mikla athygli: Fólk sem fylgdist með fréttum af árásinni sex klukkustundir eða lengur á dag vikuna á eftir upplifði meiri bráðastreitu en fólk sem var sjálft á staðnum. Lesið þetta aftur: Meiri streitu en þau sem voru á staðnum! Rannsakendur bentu á að þegar við tökum endurtekið inn fréttir af áföllum, klukkutímum saman, getur skammvinn streita orðið að langvarandi streitu. Fjölmiðlar geta þannig dreift áhrifum áfalla langt út fyrir þau samfélög sem verða fyrir þeim. Og það þarf ekki klukkutíma til. Í tilraun sem Shawn Achor og Michelle Gielan sögðu frá í Harvard Business Review horfði annar hópurinn á þriggja mínútna neikvæðar fréttir að morgni en hinn á lausnamiðaðar fréttir. Sex til átta tímum síðar voru þeir sem horfðu á neikvæðu fréttirnar 27% líklegri til að lýsa deginum sem slæmum. Þrjár mínútur. Yfir morgunkaffinu. Og dagurinn í vinnunni litast af því. En hvers vegna eru fréttir eins og þessar svona lýjandi? Hluti skýringarinnar gæti legið í óvissunni. Vísindamenn við University College London létu þátttakendur spila tölvuleik þar sem stundum leyndist snákur undir steini, og ef svo var fengu þátttakendur vægt rafstuð. Í ljós kom að fólk var hvað stressaðast þegar helmingslíkur voru á stuði. Ekki þegar það vissi að stuðið kæmi. Með öðrum orðum: Það er verra að vita ekki en að vita að eitthvað slæmt sé í vændum. Þetta á vel við núna. Við vitum ekki hvernig mótmælin þróast. Hvort þau breiðist enn frekar út. Hvað gerist í stríðunum eða hvaða ákvörðun kemur næst frá Hvíta húsinu. Heilinn okkar hatar einmitt svona stöðu. Hugmyndir um góð ráð: Ekki byrja daginn í símanum. Prófaðu að gera eitthvað annað – hefja daginn þinn – og kíkja síðan á fréttir. Skammtaðu þér fréttirnar og veldu áreiðanlega miðla frekar en þá sem leitast við að sjokkera fólk sem mest. Skrifaðu niður þrjú verkefni sem þú ætlar að klára í dag. Að vera með sýnilegan verkefnalista hjálpar okkur að setja orkuna í okkar eigin mál, frekar en að hafa áhyggjur af heimsmálunum eða jafnvel fólki sem við þekkjum erlendis.
Góðu ráðin Tengdar fréttir Lokanir, lægðir og samviskubit Ekkert okkar er það bjartsýnt fyrir veturinn að stóra lægðin og óveðrið sem hér geisaði í vikunni sé það fyrsta, eina og síðasta sem fram undan er. 16. október 2026 07:03 Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Það létti mörgum þegar samkomulag náðist í höfn á elleftu stundu í gær. Og þegar andrúmsloftið er þungt eða skýjað virðist fram undan er það góð tilfinning að finna létti, upplifa eitthvað jákvætt. 9. október 2026 07:01 Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Á dögunum birtist allt í einu sláandi fyrirsögn á Vísi: Fyrst um að framkvæmdastjóri væri meðal handtekinna í róttækum aðgerðum lögreglu og síðan að sá hinn sami væri framkvæmdastjóri BL. 2. október 2026 07:02 Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Gular viðvaranir, lárétt rigning og morgnar sem líkjast helst miðnætti. Haustið á Íslandi bankar sjaldan kurteislega á dyrnar; það sparkar þeim upp. 25. september 2026 07:00 Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Þessi vikulok helgum við góðu ráðunum því andrúmslofti sem fylgir því þegar verkföll eru yfirvofandi og fólk jafnvel dregið í dilka. Hvað er átt við með því? 18. september 2026 07:02 Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Lokanir, lægðir og samviskubit Úrelt viðhorf: Hraðari breytingar á viðhorfi starfsfólks en stjórnun Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Sjá meira
Lokanir, lægðir og samviskubit Ekkert okkar er það bjartsýnt fyrir veturinn að stóra lægðin og óveðrið sem hér geisaði í vikunni sé það fyrsta, eina og síðasta sem fram undan er. 16. október 2026 07:03
Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Það létti mörgum þegar samkomulag náðist í höfn á elleftu stundu í gær. Og þegar andrúmsloftið er þungt eða skýjað virðist fram undan er það góð tilfinning að finna létti, upplifa eitthvað jákvætt. 9. október 2026 07:01
Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Á dögunum birtist allt í einu sláandi fyrirsögn á Vísi: Fyrst um að framkvæmdastjóri væri meðal handtekinna í róttækum aðgerðum lögreglu og síðan að sá hinn sami væri framkvæmdastjóri BL. 2. október 2026 07:02
Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Gular viðvaranir, lárétt rigning og morgnar sem líkjast helst miðnætti. Haustið á Íslandi bankar sjaldan kurteislega á dyrnar; það sparkar þeim upp. 25. september 2026 07:00
Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Þessi vikulok helgum við góðu ráðunum því andrúmslofti sem fylgir því þegar verkföll eru yfirvofandi og fólk jafnvel dregið í dilka. Hvað er átt við með því? 18. september 2026 07:02