Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Rakel Sveinsdóttir skrifar 1. október 2026 07:02 Án efa munu margir fagna því að heyra um nýju þjónustu Virk - sem gengur út á að ekki þarf vottorð frá lækni eða langtímaveikindaleyfi til að fá aðstoð. Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sviðstjóri forvarna hjá VIRK, segir reynsluna erlendis sýna að það skili margföldum árangri að ná að grípa fólk, áður en komið er í óefni. Vísir/Anton Brink Það munu eflaust margir fagna því – og mögulega finna til léttis – að heyra um að nú sé í boði ný þjónusta hjá VIRK, sem krefst þess ekki að fólk þurfi læknisvottorð til að fá aðstoð. Því þetta er þjónusta til að fyrirbyggja að fólk þurfi að fara í langtímaveikindaleyfi frá vinnustaðnum. „
Við köllum þessa nýju þjónustu Virk í starfi,“ segir Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sálfræðingur og sviðsstjóri hjá VIRK, um þessa nýju þjónustu. Nýja þjónustan er að fyrirmynd þjónustu sem hefur lengur tíðkast erlendis, þar sem forvarnir og snemmtæk inngrip eru að jafnaði þekktari og oft betur nýtt. Við Íslendingar erum meistarar í að taka höndum saman þegar allt er komið í óefni. Við mætum í átök, bregðumst við krísum og hlaupum til þegar skaðinn er skeður. En erum við nógu öflug til að taka eftir hættumerkjunum áður en fólk brennur út og fellur af vinnumarkaði?“ spyr Guðrún. Mannauðsdagurinn 2026 verður haldinn föstudaginn 2. október. Af því tilefni fjallar Atvinnulífið um mannauðsmálin í gær og í dag. Mannauðsdagurinn er stór og fjölsóttur viðburður, dagskrána má sjá HÉR. Litlu skrefin Á Mannauðsdeginum 2026 mun Guðrún halda erindi undir yfirskriftinni Rauðu flöggin sem við sjáum of seint. Enda þörf umræða því síðustu misseri hafa þær fréttir birst reglulega að langvarandi veikindaleyfum fari fjölgandi. Guðrún segir vitað erlendis frá að lítil skref og breytingar í vinnunni geti oft skipt sköpum. „Stundum snýst þetta bara um tímabundinn sveigjanleika – til dæmis ef starfsmaður er að ganga í gegnum erfiðleika í einkalífinu eins og veikindi barns,“ nefnir Guðrún sem dæmi um streituvald. Lítið skref gæti þá verið að fá að hætta fyrr einhverja daga eða tímabundinn aukinn sveigjanleika með vinnutíma. Það sama gildir um aðstoðina sem fólk – sem þó heldur áfram að vera í vinnunni – fær með nýju þjónustu VIRK. „Við erum oft að tala um smá breytingu varðandi grunnþarfirnar, til dæmis næringu og svefn – skoðum og aðstoðum með lítil skref sem geta haft svo stór áhrif til lengri tíma.“ Guðrún segir mikilvægt að vinna með vinnustöðum að þessari aðstoð. Oft sé hún líka tímabundin. „Það er hægt að gera ýmislegt – hvort sem það er að aðlaga starfið tímabundið, skoða kröfurnar og álagið, eða það sem rannsóknir sýna að er mikilvægast: að huga að bjargráðum og leiðum sem fólk hefur.“ Að sama skapi skipti máli að fólk sem er farið að upplifa mikla vanlíðan, einkenni kulnunar eða annað, viti að það séu til leiðir sem ekki allar kalli á að þú þurfir að hætta tímabundið að vinna. „Að þrátt fyrir einhverjar áskoranir sem þú ert að upplifa, að þú hafir einhverjar leiðir til þess að geta samt verið í þinni vinnu og þrifist í vinnuumhverfinu.“ Að líða illa Guðrún segir eitt algengasta merkið um langvarandi álag ekki endilega birtast í fyrstu í líkamlegum verkjum, heldur hugrænni starfsemi. „Ég veit ekki hversu marga ég hef hitt sem telja sig hreinlega vera komna með byrjandi heilabilun eða segja: „Ég hlýt að vera að fá Alzheimer, ég man ekki neitt lengur! “Fólk man ekki hvað rætt var á fundi í gær eða missir einbeitinguna. Þessi hugrænu einkenni eru ótrúlega algeng afleiðing langvarandi streitu og mikils álags á heilann, en með réttum inngripum og hvíld er hægt að snúa þessu við.“ Stærsta mýtan á vinnustöðum sé hins vegar sú að oft sé hugsað út frá 100% starfsgetu eða að fólk sé 100% veikt heima. „Starfsgeta er alls ekki það sama og heilsa. Þótt þú búir við fulla heilsu er ekki sjálfgefið að þú hafir fulla starfsgetu – og mikilvægara: Þótt þú búir ekki við fulla heilsu þýðir það alls ekki að þú hafir enga starfsgetu. Það liggja gríðarlega mikil tækifæri í því að vinna með starfsgetuna inni á vinnustaðnum í stað þess að senda fólk bara heim með vottorð og segja því að finna út úr hlutunum sjálft.“ Frá árinu 2008 hefur þjónusta VIRK að mestu miðað við fólk sem þegar er komið í langtímaveikindaleyfi og þarf umfangsmikla endurhæfingu. Með nýrri þjónustuleið, VIRK í starfi, hefur þessu hins vegar verið snúið við: Ekki þarf læknisvottorð til að fá aðstoð. „Við gerum enga kröfu um að fólk komi í gegnum heilbrigðiskerfið eða sé komið með veikindavottorð. Þetta er léttara inngrip fyrir fólk sem er enn í vinnu en finnur að vinnugetan er að minnka, svefninn er farinn eða álagið orðið of mikið. Í nýju þjónustunni fær fólk persónulegan ráðgjafa í allt að sex mánuði sem vinnur með því og vinnustaðnum að því að efla starfsgetuna. Við erum ekki atvinnumiðlun; markmiðið er að styrkja fólk í því starfi sem það er í.“ Hins vegar er miðað við að önnur úrræði hafi þegar verið nýtt. „Það eru mörg fyrirtæki með ýmiss konar þjónustu og kaupa hana af öðrum aðilum. Við viljum alltaf að það sé búið að reyna á það – að búið sé að leita til stjórnenda og mannauðsfólks, fólk sé búið að fá þá aðstoð sem er í boði. Það er gríðarlega mikilvægt,“ segir Guðrún en bætir við: En stundum er það ekki nóg og svo eru líka sumir vinnustaðir sem bara hafa ekki burði til þess að bjóða upp á mikið af úrræðum, og þá erum við líka að koma til móts við þá vinnustaði.“ Guðrún segir því gott tækifæri til að ræða við mannauðsfólk á föstudag. Hún muni fara betur yfir rauðu flöggin og ræða um hversu mikilvægt það er að stjórnendur séu meðvitaðir um stöðuna og að stundum vanti aðeins lítið upp á. En hvernig á fólk að bera sig að sem vill ræða við ykkur um þessa leið? „Þá er bara að fara á heimasíðuna okkar velvirk.is og í framhaldinu ræða við ráðgjafana og svolítið að meta stöðuna,“ svarar Guðrún og segir fyrstu samskipti oft hefjast með símtali eða tölvupósti. „Við byrjum þá á að spyrja: ‚Ertu búin(n) að athuga hvaða úrræði eru í boði á þínum vinnustað?‘ Þannig að einstaklingurinn fari þá bara aftur svolítið inn í vinnuna og reyni að fá hjálp þar.“ Guðrún segir ánægjulegt að sjá þá þróun að karlmenn séu í auknum mæli að leita líka til VIRK. „Hlutfallið var lengi 70:30, konurnar mun fleiri. En nú er þetta hlutfall að færast nær því að vera 60:40,“ segir hún, þó aðeins til að gefa okkur hugmynd um þróunina. „Karlmennirnir eru að hafa samband. Þótt þeir fari ekki alltaf í langt ferli þá hringja þeir og fá ráðgjöf. Fyrir marga þeirra er þetta í fyrsta skipti á ævinni sem þeir opna sig um eigin líðan og vanda sem þeir hafa burðast með innra með sér árum saman. Þeir fá leiðbeiningar um hvernig best sé að nálgast samtalið við sinn vinnustað. Þessi stuttu samtöl eru oft með því dýrmætasta sem við gerum.“ Guðrún segir Finna og Svía sérstaklega langt komna í að sýna að snemmtæk íhlutun borgi sig margfalt. „Stjórnendur eru oft hræddir um að stíga yfir strikið eða gera meira úr vandanum en efni standa til ef þeir nefna VIRK. En þetta þurfa alls ekki að vera stór eða flókin inngrip. Stundum snýst þetta bara um tímabundinn sveigjanleika – til dæmis ef starfsmaður er að ganga í gegnum erfiðleika í einkalífinu eins og veikindi barns. Að fá smá svigrúm, laga vinnutíma eða endurskoða kröfur um stundarsakir getur komið í veg fyrir margra mánaða fjarveru síðar meir,“ segir Guðrún og bætir við: „Við verðum að hætta að bíða og vona að hlutirnir lagist af sjálfu sér.“
Mannauðsmál Stjórnun Tengdar fréttir Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Það er viss varnarleikur í gangi hjá mannauðsfólki þessa dagana. 21. maí 2026 07:02 Íþróttafræðin inn á vinnustaðinn: Yfirmenn ekki lengur alvitri einhyrningurinn Við sjáum það oft í hillingum að yfirfæra íþróttafræðin og keppnisandann yfir á vinnustaðina. Enda er gaman að leita í reynslubrunn Daða Rafnssonar, íþróttasálfræðiráðgjafa og afreksþjálfara, fagstjóra Afrekssviðs Menntaskólans í Kópavogi og doktorsnema við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík. 2. október 2025 07:03 Gjörbreyttar kröfur og vinna ekki lengur aðeins til að hafa í sig og á Sigrún Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs, samtaka mannauðsfólks á Íslandi, segir mannauðsmál í heiminum standa á tímamótum. Mikilvægt sé þó að horfa ekki til framtíðar sem fjarlæga ógn, heldur ævintýri sem við mótum saman. 1. október 2025 07:00 Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi „Gigghagkerfið er að vaxa hægar á Íslandi en á Norðurlöndunum og í Evrópu, sem að mínu mati skýrist meðal annars af því að hér er þríhliða vinnumarkaðsmódelið enn svo sterkt,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir, stjórnunarráðgjafi og eigandi Dokkunnar. 17. september 2026 07:03 Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Fyrstu viðbrögðin okkar hljóta að vera: Það eru engir sýnilegir múrar á mínum vinnustað. Bara hinna. 22. maí 2026 07:01 Mest lesið Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Sjá meira
Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Það er viss varnarleikur í gangi hjá mannauðsfólki þessa dagana. 21. maí 2026 07:02
Íþróttafræðin inn á vinnustaðinn: Yfirmenn ekki lengur alvitri einhyrningurinn Við sjáum það oft í hillingum að yfirfæra íþróttafræðin og keppnisandann yfir á vinnustaðina. Enda er gaman að leita í reynslubrunn Daða Rafnssonar, íþróttasálfræðiráðgjafa og afreksþjálfara, fagstjóra Afrekssviðs Menntaskólans í Kópavogi og doktorsnema við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík. 2. október 2025 07:03
Gjörbreyttar kröfur og vinna ekki lengur aðeins til að hafa í sig og á Sigrún Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs, samtaka mannauðsfólks á Íslandi, segir mannauðsmál í heiminum standa á tímamótum. Mikilvægt sé þó að horfa ekki til framtíðar sem fjarlæga ógn, heldur ævintýri sem við mótum saman. 1. október 2025 07:00
Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi „Gigghagkerfið er að vaxa hægar á Íslandi en á Norðurlöndunum og í Evrópu, sem að mínu mati skýrist meðal annars af því að hér er þríhliða vinnumarkaðsmódelið enn svo sterkt,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir, stjórnunarráðgjafi og eigandi Dokkunnar. 17. september 2026 07:03
Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Fyrstu viðbrögðin okkar hljóta að vera: Það eru engir sýnilegir múrar á mínum vinnustað. Bara hinna. 22. maí 2026 07:01