Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Kjartan Kjartansson skrifar 14. apríl 2026 14:41 Hekla Lind eftir afskipti tveggja lögreglumanna af henni þegar hún var í geðrofi í Reykjavík árið 2019. Héraðsdómur taldi ríkið ekki bótaskylt þar sem lögreglumennirnir hefðu ekki getað séð fyrir afleiðingar afskipta þeirra af henni. Vísir/Vilhelm Fjölskylda ungrar konu sem lést eftir átök við tvo lögreglumenn þegar hún var í geðrofi árið 2019 áfrýjaði ekki dómi héraðsdóms sem sýknaði ríkið af bótakröfu þeirra.
Hekla Lind Jónsdóttir var 25 ára gömul þegar hún lést eftir að tveir lögreglumenn höfðu afskipti af henni og yfirbuguðu þegar hún var í geðrofsástandi eftir neyslu fíkniefna 9. apríl árið 2019. Foreldrar Heklu Lindar og bróðir töldu íslenska ríkið bótaskylt vegna þess að hún lést eftir að lögreglumennirnir handtóku hana. Lögreglumennirnir hefðu haldið henni handjárnaðri liggjandi á jörðinni með því að þrýsta hnjám sínum á herðablaðasvæði hennar. Þá hefðu þeir barið hana með lögreglukylfum. Á meðan á átökunum stóð hafi Hekla Lind farið í hjartastopp sem leiddi til þess að hún lést. Hún var úrskurðuð látin á sjúkrahúsi nokkrum klukkutímum síðar eftir misheppnaðar endurlífgunaraðgerðir lögreglumannanna og starfsmanna bráðamóttöku. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið af bótakröfunni í síðasta mánuði. Lögreglumennirnir hefðu ekki getað séð það fyrir að Hekla Lind hlyti bana af afskiptum þeirra af henni. Bjarni Þór Sigurbjörnsson, lögmaður fjölskyldunnar í málinu í héraði, staðfestir að dómnum hafi ekki verið áfrýjað til Landsréttar.
Dómsmál Lögreglan Lögreglumál Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést í starfsmannaferð Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira