Viðskipti innlent

Kynna yfir­lýsingu fjár­málastöðug­leika­nefndar

Kjartan Kjartansson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri stýrir kynningunni á yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar í dag.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri stýrir kynningunni á yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar í dag. Vísir/Vilhelm

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans gerir grein fyrir yfirlýsingu sinni sem gefin var út í morgun. Kynningin verður í beinu streymi á Vísi.

Auk yfirlýsingarinnar verður efni ritsins Fjármálastöðugleika kynnt á fundinum sem hefst klukkan 9:30. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, og Flóki Halldórsson, framkvæmdastjóri fjármálastöðguleikasviðs bankans, sjá um kynninguna.

Á meðal þess sem kemur fram yfirlýsingu nefndarinnar er að þörf sé á að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst. Fjármálakerfið standi annars traustum fótum og sé vel í stakk búið að mæta ófyrirséðum áföllum.

Aukin óvissa sé aftur á móti í alþjóðamálum vegna stríðsreksturs Bandaríkjamanna og Ísraela í Íran. Hann hafi leitt til framboðstruflana og verðhækkana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×