Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Samúel Karl Ólason skrifar 24. mars 2026 18:02 Hermenn úr 82. herdeild Bandaríkjahers við æfingar. Þeir eru þjálfaðir á þann veg að hægt sé að senda þá hvert sem er í heiminum á minna en átján klukkustundum. Bandaríski herinn/Aiden O'Marra Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna eru sagðir undirbúa það að senda um þrjú þúsund fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda. Hlutverk þeirra yrði að styðja við aðgerðir gegn Íran. Einnig er verið að senda landgönguliða á svæðið.
Um er að ræða stórfylki (Brigade) úr 82. herdeild (Division) fallhlífarhermanna. Þetta stórfylki hefur verið þjálfað og búið þannig að hægt eigi að vera að senda meðlimi þess hvert sem er í heiminum með 18 klukkustunda fyrirvara. Hermennirnir eru sérstaklega þjálfaðir til að stökkva úr flugvélum og taka mikilvæga innviði eins og flugvelli. Heimildarmenn Wall Street Journal innan bandarískra stjórnvalda segja von á því að skipunin verði gefin út á næstu klukkustundum. New York Times hafði einnig sagt frá því að þetta stæði til. Hermennirnir yrðu þá sendir til viðbótar við um 2.500 landgönguliða sem eru þegar á leið til Mið-Austurlanda. Í frétt WSJ segir að ekki sé búið að ákveða að senda hermenn inn í Íran. Kharg-eyja Hormússund JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR Vera hermannanna á svæðinu fjölgar þó kostum Donalds Trump, forseta, þegar kemur að því að opna Hormússund aftur, taka stjórn á Kharg-eyju eða jafnvel að senda hermenn inn í Íran til að reyna að sækja það auðgaða úran sem finna má þar. Bandaríkjamenn skemmdu flugvöllinn á Kharg í nýlegum loftárásum og því sagði sérfræðingur sem blaðamenn NYT ræddu við að líklegra væri að landgönguliðarnir yrðu sendir til að taka eyjuna. Þeir gætu svo gert við flugvöllinn og þá væri hægt að senda liðsauka, ef slíkt þyrfti. Fallhlífarhermennirnir gætu þá komið landgönguliðunum til aðstoðar. Bretar og Frakkar skoða að aðstoða við opnun sundsins Þá hafa fregnir borist af því í dag að ráðamenn í Bretlandi og Frakklandi séu að leggja línurnar að því að senda flota til Persaflóa. Sá floti ætti að koma að því að opna Hormússund á nýjan leik. Um fimmtungur allrar olíu heims er fluttur í skipum um Hormússund, auk mikils magns af jarðgasi. Olían og gasið er að mestu flutt til Asíu og Evrópu. Frá því árásirnar gegn Íran hófust hafa Íranir gert árásir á nokkur skip og hefur dregið verulega úr ferðum þeirra um sundið. Áhafnir hundruð skipa bíða sitt hvoru megin við sundið eftir því að komast í gegn. Þetta hefur haft mikil áhrif á verð olíu og gass í heiminum og hefur Trump farið mikinn gegn bandamönnum Bandaríkjanna, fyrir að neita að koma Bandaríkjunum til aðstoðar við að opna sundið. Á sama tíma hefur hann ítrekað haldið því fram að Bandaríkjamenn þurfi enga hjálp. The Times sagði frá því í dag að Bretar væru að skoða það að senda herskip eða mögulega leigja skip og senda það til Persaflóa. Skipinu yrði ætlað að vera einskonar móðurskip fyrir drónabáta og annan búnað sem notaður yrði til að finna tundurdufl og granda þeim. Seinna meir kæmi til greina að senda tundurspilla til að fylgja olíuflutningaskipum um sundið. Samkvæmt heimildum Times myndu Frakkar, Bandaríkjamenn og aðrir koma að þessu verkefni. Hormússund er mjög mjótt og myndi það líklega reynast erfitt að opna það og koma í veg fyrir árásir á skip sem siglt er þar um. Siglingaleiðirnar gegnum Hormússund eru eingöngu tveggja sjómílna breiðar og þarf að beygja skipum á milli tveggja eyja sem Íranir stjórna annars vegar og fjalllendis hins vegar, þar sem hersveitir Írana geta fundið mikið skjól gegn loftárásum. Hefðbundnum herskipum Írana hefur flestum verið sökkt af Bandaríkjamönnum en Íranir hafa margar leiðir til að loka sundinu. Með notkun sjálfsprengidróna, eldflauga, tundurdufla, smárra fjarstýrðra kafbáta, sæþotna og hefðbundins stórskotaliðs, svo eitthvað sé nefnt, geta Íranar gert áhöfnum olíuflutningaskipa mjög hættulegt að sigla þarna um. Skipin eru risastór og fara hægt um sundið, sem gerir þau að tiltölulega auðveldum skotmörkum.
Bandaríkin Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Skipaflutningar Bretland Frakkland Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Sjá meira