Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Áróra L Davíðsdóttir skrifar 26. september 2026 14:21 Alls komu þrjátíu slökkviliðsmenn að leitar- og björgunaraðgerðum á vettvangi. AP/GEORGE VITSARAS Sex eru látnir eftir að íbúðarbygging hrundi í kjölfar sprengingar í gær í Plaka-hverfinu í Aþenu á Grikklandi. Talið er að gasleki hafi valdið sprengingunni.
Sex var saknað skömmu eftir sprenginguna og ráðist var í leitaraðgerðir í rústum byggingarinnar. Lík allra sex fundust síðdegis í dag. Fjórir bandarískir ferðamenn sem dvöldu í skammtímaleiguíbúð í húsinu eru meðal þeirra látnu sem og tveir íbúar hússins, grísk kona og breskur eiginmaður hennar. Enn er unnið á vettvangi við að fjarlægja rústir en um þrjátíu slökkviliðsmenn tóku þátt í aðgerðunum að sögn gríska ríkismiðilsins ERT. Plaka-hverfið í Aþenu er nálægt vinsælum ferðamannastöðum, svo sem Akrapólíshæð og Hofi Seifs.EPA/GEORGE VITSARAS Orsök sprengingarinnar er enn óljós en meðal þess sem er til skoðunar er gasleki. ERT segir tilkynningar hafa borist frá íbúum í kringum gaslykt á svæðinu áður en sprengingin varð. Sprengingin olli einnig skemmdum á byggingum og bílum í næsta nágrenni við íbúðarhúsið sem hrundi. Í nærliggjandi byggingu slösuðust tvær konur lítillega auk eins vegfaranda en þau voru flutt á slysadeild.
Grikkland Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira