Aftur stríð í Eþíópíu Samúel Karl Ólason skrifar 24. september 2026 15:04 biy Ahmed Ali, forsætisráðherra Eþíópíu. Sjö fylkingar sem standa gegn honum hafa gert bandalag og ætla að velta honum úr sessi. AP/Sergei Bulkin, Sputnik Nýtt stríð virðist hafið í Eþíópíu þar sem leiðtogar Frelsisfylkingarinnar svokölluðu í Tigray-héraði og bandamenn þeirra ætla að velta ríkisstjórn landsins úr sessi. Leiðtogar Frelsisfylkingarinnar segjast vera að heyja varnarstríð gegn ríkisstjórninni og eru þeir sagðir hafa gert umfangsmikla sókn víðs vegar um norðurhluta landsins.
Friður hefur ríkt á svæðinu í fjögur ár en þar áður stóðu yfir grimmileg átök milli sömu fylkinga. Undanfarna mánuði hefur spennan aukist mikið aftur á svæðinu. Um síðustu helgi lýstu leiðtogar Frelsisfylkingarinnar því yfir að þeir hefðu gert bandalag við sex aðrar fylkingar víða um Eþíópíu gegn ríkisstjórninni, með því markmiði að velta ríkisstjórninni í Addis Ababa úr sessi. Í kjölfarið hófu þeir svo árásir á sveitir ríkisstjórnarinnar í vikunni. Ethiopia 🇪🇹: In Amhara state Fano rebels ambushed ENDF troops near the village of Injafat.Amhara sources claim the capture and destruction of 10 military vehicles. Visual evidency so far confirms the destruction of one. pic.twitter.com/aHDx9mQCYb— Thomas van Linge (@ThomasVLinge) September 23, 2026 Leiðtogar Frelsisfylkingarinnar stjórnuðu Eþíópíu á árum áður, þar til Abiy Ahmed tók við embætti forsætisráðherra landsins árið 2018. Sú ríkisstjórn var endurkjörin í kosningum í sumar, en þær kosningar voru hunsaðar af stjórnarandstöðuflokkum landsins. Árið 2020 blossuðu upp átök milli ríkisstjórnarinnar og Frelsisfylkingarinnar og voru stríðandi fylkingar sakaðar um grimmileg ódæði. Samið var um frið í nóvember 2022 en talið er að um hálf milljón manna hafi dáið í átökunum og vegna afleiðinga þeirra. Reuters hefur eftir ráðgjafa Abiy, sem tilheyrði áður Frelsisfylkingunni, að uppreisnarsveitir hefðu tekið stjórn á flugvöllum ríkisstjórnarinnar í Tigray-héraði og gert árásir á stjórnarhermenn í héraðinu, auk tveggja annarra nærliggjandi héraða. Mahmoud Ali Youssouf, sem stýrir framkvæmdastjórn Afríkusambandsins, hefur hvatt leiðtoga stríðandi fylkinga í Eþíópíu til að hefja viðræður um leið. Hann biður leiðtoga nágrannaríkja Eþíópíu einnig um að forðast það að taka þátt í átökunum og hella þannig olíu á eldinn. Á svæðinu eiga þó nokkur átök sér stað en þau umfangsmestu eru borgarastyrjöldin í Súdan, sem hefur áður teygt anga sína til Eþíópíu. Meðal annars hafa borist fregnir af því að í Eþíópíu hafi verið reistar leynilegar herbúðir á vegum Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Þar munu málaliðar og uppreisnarmenn hafa verið þjálfaðir til að taka þátt í borgarastyrjöldinni og þá gegn ríkisstjórn Súdan. Eritrea er norður af Eþíópíu en hermenn ríkisins börðust með ríkisstjórninni í Addis Ababa gegn Frelsisfylkingunni síðast þegar til átaka kom í landinu. AP fréttaveitan segir að undanfarið hafi ríkisstjórnin sakað leiðtoga Frelsisfylkingarinnar um að reyna að gera eigið bandalag við yfirvöld í Eritreu, gegn ríkisstjórninni. Yfirvöld í Eritreu hafa lýst yfir áhyggjum vegna ummæla Abiys um að hann vilji fá aðgang að Rauðahafi, gegnum Eritreu. Austur af Eþíópíu er svo Sómalía, þar sem óöld hefur ríkt um árabil. Abyiy hefur einnig reitt ríkisstjórn þess lands til reiði með því að reyna að gera samkomulag við stjórnendur Somaliland, sem vilja sjálfstæði frá Sómalíu, um aðgang fyrir Eþíópíu að höfn þar.
Eþíópía Eritrea Súdan Sómalía Hernaður Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Fleiri fréttir Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Sjá meira