Íranir segja engar viðræður við Trump-liða eiga sér stað Samúel Karl Ólason skrifar 23. mars 2026 17:53 Donald Trump og Pete Hegseth, varnarmálaráðherra. Trump sagði á viðburði í dag að Hegseth hefði verið mikil til í að gera árásir á Íran þegar umræðan um það hófst í Hvíta húsinu. AP/Mark Schiefelbein Ýmsir ráðamenn í Íran segja Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hafa sagt ósatt í dag. Þeir segja engar viðræður við Bandaríkjamenn eiga sér stað en fyrr í dag sagði Trump að viðræður hefðu gengið vel á undanförnum dögum og því hefði hann gefið þá skipun að stöðva árásir á orkuinnviði í Íran í nokkra daga.
Seinna í dag hélt Trump því svo fram að viðræður við Írani hefðu staðið yfir um nokkuð skeið og að hann teldi mögulega stutt í samkomulag. „Þeir vilja frið. Þeir hafa samþykkt að koma ekki upp kjarnorkuvopnum, þið vitið, og svo framvegis og svo framvegis, en við sjáum til,“ sagði Trump í dag samkvæmt AP fréttaveitunni. Sjá einnig: Gerir hlé á árásum á Íran Eins og áður segir hafa háttsettir embættismenn í Íran sagt að viðræður hafi ekki farið fram við Bandaríkjamenn. Þingforseti Íran og talsmaður utanríkisráðuneytisins eru meðal þeirra sem hafa haldið þessu fram. Fregnir hafa hins vegar borist af því að ráðamenn í öðrum ríkjum hafi verið að miðla skilaboðum milli Bandaríkjamanna og Írana. Wall Street Journal hefur eftir Trump að Bandaríkjamenn eigi í viðræðum við „háttsettan leiðtoga“ í Íran. Hans fólk hafi haft samband við ríkisstjórn Trumps og sagðist hann telja umræddan leiðtoga þann virtasta í Íran, af þeim sem eru enn lifandi. Hann vildi ekki segja hvern um væri að ræða, þar sem sá ætti á hættu að vera ráðinn af dögum. „Þeir vilja gera samkomulag og við erum mikil til í það,“ sagði Trump. „Við sjáum hvernig þetta fer. Ef þetta fer vel útkljáum við þetta. Annars munum við bara halda áfram að sprengja áfram af hjartans kröftum.“ Þetta sagði hann eftir að honum var bent á að embættismenn í Íran hefðu sagt að viðræður hefðu ekki átt sér stað. Ætlar kannski að stjórna Hormússundi með æðstaklerknum Trump gaf einnig til kynna í dag að ef samkomulag myndi nást, yrði Hormússund opið fyrir skipaumferð á nýjan leik og það gæti gerst mjög fljótt. Þá hélt hann því fram að sundinu yrði stjórnað í sameiningu, kannski. Hann myndi mögulega sjálfur stjórna sundinu með æðstaklerki Íran, sama hver hann væri. Það yrðu einnig alvarleg stjórnarskipti, enda væri búið að ráða flesta ráðamenn í Íran af dögum. Það fæli sjálfkrafa í sér stjórnarskipti. Þá vísaði hann til Venesúela og hversu vel það hefði gengið, eftir að Bandaríkjamenn numu Nicolás Maduro, fyrrverandi forseta, á brott. COLLINS: Who's gonna be in control of the Strait of Hormuz? Who's gonna be in control of that?TRUMP: Uhhhh it'll be jointly controlledCOLLINS: By who?TRUMP: Maybe me. Maybe me. Me and the next ayatollah, whoever that is. There will also be a serious form of regime change.… pic.twitter.com/Q8GcuVixfx— Aaron Rupar (@atrupar) March 23, 2026
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Hernaður Bensín og olía Skipaflutningar Tengdar fréttir Trump og Starmer ræddu Hormuz-sund Ísraelsmenn gerðu umfangsmiklar árásir á Tehran, höfuðborg Íran, í morgun. Sprengingar heyrðust víða í borginni en talsmenn hersins sögðu innviði tengda hryðjuverkum skotmörk árásanna. 23. mars 2026 06:33 „Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Scott Bessent fjármálaráðherra Bandaríkjanna sagði í viðtali hjá NBC fyrr í dag að stundum þyrfti að auka spennuna til að draga úr henni. 22. mars 2026 16:52 Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Donald Trump Bandaríkjaforseti segist gefa Íran 48 klukkustundir til þess að opna Hormússundið að fullu, án nokkurrar ógnar. Verði það ekki gert muni Bandaríkin hæfa og gjöreyða ýmsum orkuinnviðum Írana. 22. mars 2026 08:35 Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna eru sagðir hafa farið fram á við Hvíta húsið að fá tvö hundruð milljarða dala í aukafjárveitingu vegna stríðsins gegn Íran. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, segir þá tölu geta breyst en það þurfi „peninga til að drepa vonda kalla“. 19. mars 2026 13:52 Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Eldur í Stykkishólmi Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Fleiri fréttir Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Sjá meira
Trump og Starmer ræddu Hormuz-sund Ísraelsmenn gerðu umfangsmiklar árásir á Tehran, höfuðborg Íran, í morgun. Sprengingar heyrðust víða í borginni en talsmenn hersins sögðu innviði tengda hryðjuverkum skotmörk árásanna. 23. mars 2026 06:33
„Stundum þarftu að auka spennuna til að draga úr spennunni“ Scott Bessent fjármálaráðherra Bandaríkjanna sagði í viðtali hjá NBC fyrr í dag að stundum þyrfti að auka spennuna til að draga úr henni. 22. mars 2026 16:52
Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Donald Trump Bandaríkjaforseti segist gefa Íran 48 klukkustundir til þess að opna Hormússundið að fullu, án nokkurrar ógnar. Verði það ekki gert muni Bandaríkin hæfa og gjöreyða ýmsum orkuinnviðum Írana. 22. mars 2026 08:35
Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna eru sagðir hafa farið fram á við Hvíta húsið að fá tvö hundruð milljarða dala í aukafjárveitingu vegna stríðsins gegn Íran. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, segir þá tölu geta breyst en það þurfi „peninga til að drepa vonda kalla“. 19. mars 2026 13:52