Ófrjósemi og andleg líðan Ástdís Pálsdóttir Bang skrifar 13. mars 2026 08:45 Í störfum mínum sem sálfræðingur vinn ég mikið með fólki með ófrjósemisvanda. Á mínum ferlihef ég ítrekað heyrt hversu djúp og flókin sú reynsla getur verið. Í umræðu um ófrjósemi er oft lögð áhersla á læknisfræðilegar hliðar. Það sem fær hins vegar mun minna rými eru sálrænu hliðar ferlisins. Ófrjósemi snýst sjaldnast aðeins um það sem er að gerast í líkamanum. Hún snertir einnig vonir, væntingar og framtíðarsýn fólks. Þegar fólk ákveður að reyna að eignast barn, er það gert í þeirri trú að það sé eðlilegur og sjálfsagður hluti af lífinu. Þegar það gengur ekki eftir getur það kallað fram sterk tilfinningaleg viðbrögð, meðal annars sorg, kvíða, vonbrigði og skömm. Sorgin tengist oft endurteknum vonbrigðum, misheppnuðum tilraunum og meðferðum eða langvarandi óvissu um framtíðina. Þessi sorg er oft lítt sýnileg öðrum. Því getur verið erfitt fyrir fólk að ræða hana opinskátt. Biðin er einnig stór hluti af ferlinu. Það er bið eftir niðurstöðum rannsókna, á milli meðferða og eftir því að vita hvort viðkomandi sé barnshafandi. Slík langvarandi óvissa getur haft áhrif á andlega líðan og gert fólki erfitt fyrir að skipuleggja líf sitt fram í tímann. Á sama tíma heldur lífið áfram hjá öðrum. Mörg þeirra sem eru með ófrjósemisvanda upplifa líf sitt standa í stað miðað við vini og jafnaldra. Þunganir og fæðingar í nærumhverfi vekja oft upp bæði gleði og sorg, sem getur reynst þeim flókið og erfitt að ræða. Af þeim sökum er algengt að sjá þau sem glíma við ófrjósemi einangra sig frá sínum nánustu. Í starfi mínu heyri ég einnig frá mörgum hversu mikil áhrif orð annarra geta haft. Vel meintar athugasemdir eins og „þetta gerist þegar þú hættir að hugsa um þetta“ eða „það er hægt að ættleiða“ er oft sagt með góðum hug, en fyrir þann sem er í miðju ferlinu geta slík orð virst einfalda eða gera lítið úr upplifun viðkomandi. Það á sömuleiðis við um óumbeðin ráð. Rannsóknir sýna að ófrjósemi getur haft veruleg áhrif á andlega líðan. Kvíði, depurð, streita og sjálfsmatsvandi eru algeng viðbrögð við þeirri langvarandi óvissu og endurteknu vonbrigðum sem getur fylgt ferlinu. Ófrjósemi getur sömuleiðis haft mikil áhrif á parasambönd, vinasambönd og tengsl við fjölskyldu. Það er því mikilvægt að sækja sér stuðning í nærumhverfinu eða meðferð hjá viðurkenndum fagaðilum. Ófrjósemi snertir fleiri en margir gera sér grein fyrir. Með aukinni fræðslu og opinni umræðu getum við dregið úr þeirri einangrun sem margir upplifa. Sem samfélag getum við líka lært að mæta þessari reynslu með meiri virðingu og samkennd. Höfundur er sálfræðingur á Samskiptastöðinni og hjá Livio. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Frjósemi Geðheilbrigði Börn og uppeldi Mest lesið Íslendingar sem ég hef hitt þegar ég reyni að tala íslensku Valerio Gargiulo Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar hávaðinn ræður ferðinni Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Engin fyrirtæki engin þjónusta Guðný María Jóhannsdóttir Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við erum í sama liðinu Arnór Tumi Jóhannsson, Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Meirihluti fólks með fötlun í Bretlandi styður rétt til dánaraðstoðar Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Íslendingar sem ég hef hitt þegar ég reyni að tala íslensku Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Öruggt húsnæði jafngildir mannréttindum Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Engin fyrirtæki engin þjónusta Guðný María Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Við erum í sama liðinu skrifar Skoðun Þegar hávaðinn ræður ferðinni Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Gefum loforð í sumargjöf Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar Skoðun Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar Skoðun Græna gangan - göngum fyrir hafið Guðrún Hallgrímsdóttir,Maríanna Traustadóttir skrifar Skoðun 10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar Skoðun Íslensk ofbeldismenning og réttarríkið Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Lykill að jöfnum tækifærum Isabel Alejandra Diaz skrifar Sjá meira
Skoðun Meirihluti fólks með fötlun í Bretlandi styður rétt til dánaraðstoðar Ingrid Kuhlman skrifar
Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar
Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar