Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar 10. júní 2026 10:30 Ef verðið fyrir 0,8 prósent lægri verðbólgu væri 4 prósentustigum meira atvinnuleysi, myndir þú taka því boði? Verðbólga birtist í tölum á verðmiðum, sem sýna að við getum látið minna eftir okkur. Atvinnuleysi birtist við eldhúsborð fjölskyldna sem missa afkomu sína, með tilheyrandi tekjumissi og óvissu. Verðbólga er óþægileg. Atvinnuleysi getur verið lífsbreytandi áfall. Í umræðu um mögulega aðild að ESB er oft látið í veðri vaka að þar með útrýmum við verðbólgu, án frekari fórna. En er það svo? Nýleg samantekt á gögnum Eurostat sýnir þetta með sláandi hætti. Ragnar Már Gunnarsson, Flateyringur og talnaspekúlant hefur rýnt þetta og sett fram í þessari mynd: Mynd: Bláa súlan sýnir mun á verðbólgu milli Íslands og Evrusvæðisins. Sé hún yfir núlli er verðbólga hærri á Íslandi. Appelsínugula súlan sýnir mun á atvinnuleysi. Sé hún undir núlli er atvinnuleysi meira á evrusvæðinu en á Íslandi. Vart verður þetta skýrara. Á árunum 2011–2025 var verðbólga á Íslandi að meðaltali um 0,8 prósentustigum hærri en á evrusvæðinu. Á sama tíma var atvinnuleysi hér á landi að meðaltali 4,1 prósentustigum lægra. Tölurnar kalla fram einfalda spurningu: Hvort viltu heldur örari verðhækkanir eða aukið atvinnuleysi? Þetta er ein þeirra spurninga sem við þurfum að svara þegar við greiðum atkvæði um aðild að ESB. Auðvitað vill enginn verðbólgu. Hún étur upp kaupmátt, skekkir verðmyndun og veldur óvissu. En atvinnuleysi er ekki síður skaðlegt. Fyrir einstaklinginn sem missir vinnuna er það ekki tölfræði heldur lífsgæði. Það er missir tekna, sjálfsvirðingar, tengsla og tækifæra. Þess vegna hefur Ísland um áratugaskeið farið aðra leið en margar Evrópuþjóðir. Með eigin gjaldmiðili getum við leyft hagkerfinu að bregðast hraðar við áföllum. Við tökumst á við sveiflur og náum þannig að halda atvinnuþátttöku með því hæsta sem þekkist í heiminum. Á sama tíma hafa margar Evrópuþjóðir búið við lægri verðbólgu en einnig við mun meira atvinnuleysi, sérstaklega meðal ungs fólks. Í sumum ríkjum hefur heil kynslóð alist upp við það að atvinnuleysi sé eðlilegt ástand. Það þýðir ekki að við eigum að sætta okkur við verðbólgu. Þvert á móti. Markmiðið á alltaf að vera stöðugleiki. En þegar fólk ber saman Ísland og Evrópu verður að bera saman alla myndina, ekki aðeins þann hluta sem hentar málstaðnum hverju sinni. Hagkerfi er ekki mælt í prósentum. Það er mælt í störfum. Í tækifærum. Í fjölskyldum sem geta staðið á eigin fótum. Í fólki sem vaknar á morgnana með tilgang og verkefni. Þess vegna mun ég alltaf telja að samfélag sem heldur fólki í vinnu hafi valið réttari leið en samfélag sem fórnar atvinnu á altari fullkomins verðstöðugleika. Lægri verðbólga er góð. Atvinna er betri. Höfundur er bæjarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elliði Vignisson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar