Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar 11. júní 2026 08:30 Maðurinn óttast fátt meira en eigið frelsi. Eða að minnsta kosti óttast hið opinbera það fyrir mannsins hönd. Margir muna sjálfsagt eftir þeim tíma þegar hugmyndin um að hafa matvöruverslanir opnar á sunnudögum þótti bera vitni um siðferðislegt hrun. Að kaupa mjólkurfernu eða kiwiköku á sunnudegi þótti ávísun á upplausn samfélagsins og jafnvel áttu heilu fjölskyldurnar að sundrast. Því tók ríkið að sér að verja helgidagafriðinn fyrir þessu hættulega neytendafrelsi. Í dag brosum við að þessari forneskju en íslenska stjórnkerfið hefur raunar lítið breyst. Það hefur bara fundið sér ný áhugamál eins og að koma í veg fyrir að fullorðið fólk geti keypt sér vínflösku annars staðar en í ríkisbúð. Ný markaðsrannsókn sýnir að rúmur fjórðungur landsmanna hefur verslað í frjálsri vínbúð – hlutfallið rauk úr 17% í 26% á aðeins einu ári. Fjórðungur þjóðarinnar hefur þegar tekið ákvörðun en löggjafinn stendur eftir líkt og afi gamli sem kann ekki almennilega á internetið. Vídeóhryllingur Þessi örvæntingarfulla tilraun til að stýra daglegu lífi fólks með úreltum boðum og bönnum minnir óneitanlega á þegar ríkið reyndi að vernda þjóðina gegn svokölluðum „vídeóhryllingi“ á níunda áratugnum. Allt frá árinu 1932 rak ríkið nefnilega Kvikmyndaeftirlit sem hafði það mikilvæga hlutverk að horfa á allar kvikmyndir, banna þær alfarið ef þurfa þótti eða hreinlega klippa út djarfar senur áður en fullorðnu fólki var treyst fyrir því að horfa á þær. Þegar vídeóspóluæðið skall á átti þetta sama eftirlit að yfirfara og stimpla hverja einustu VHS-spólu á öllum vídeóleigum landsins. Það tókst auðvitað ekki í framkvæmd en kerfið neitaði að gefast upp og hélt þessari ritskoðun áfram allt til ársins 2006. Að ætla að stöðva netverslun með áfengi í dag er eins og að reyna að þvinga gömlu VHS-lögunum upp á Netflix. Evrópa í orði en ekki á borði Stjórnarflokkarnir, Viðreisn og Samfylking, boða mikla Evrópustefnu og vilja ganga í Evrópusambandið þótt skoðanakannanir bendi til þess að útlit sé fyrir að þjóðin hafni viðræðum í atkvæðagreiðslunni í sumar. En af hverju notar ríkisstjórnin ekki tækifærið til að færa Ísland nær Evrópu með öðrum hætti – til dæmis með því að afnema ofurtolla á landbúnaðarvörur og leyfa þinginu að greiða atkvæði um áfengisfrumvarpið? Það virðist mun auðveldara að halda rómantískar ræður um fegurð Evrópu og lægra verð á kjúklingakjöti en að færa okkur raunverulega nær meginlandinu. Skriffinnskugildra Það má auðvitað færa rök fyrir því að Alþingi hafi hreinlega ekki tíma til að sinna hlutum eins og tollamálum eða frjálsri verslun fyrir almenning. Þingið er nefnilega mjög upptekið. Á yfirstandandi löggjafarþingi urðu einungis 38 prósent af framlögðum frumvörpum að lögum. Burtséð frá því hvort það sé gömul og gróin hefð á Alþingi að klára ekki hlutina þá hlýtur þetta að teljast alveg dæmalaust lélegur árangur. Það væri fróðlegt að vita á hvaða venjulega vinnustað það þætti boðlegt að mæta til vinnu en klára svo einungis 38 prósent af þeim verkefnum sem lögð eru fram. Við Austurvöll þykir þetta hins vegar bara góður árangur. Skýringin á þessari lélegu framleiðni er skriffinnskugildra Alþingis þar sem flest mál lenda og enda sitt líf eða að minnsta kosti taka mjög langan lúr. Að sögn þingmanna er helsta ástæðan fyrir því að mál klárast ekki sú að það þarf að taka á móti svo óskaplega mörgum gestum að það gefst einfaldlega enginn tími til að afgreiða málin. Það er vissulega göfugt að þingnefndir skuli rækta gestrisnina svona vel þótt það kosti að sjálft löggjafarhlutverkið sitji á hakanum. Þegar betur er að gáð og rýnt í þau fáu mál sem raunverulega komast í gegnum þessa gestamóttöku kemur í ljós hvar áhugi kerfisins liggur. Af 71 frumvarpi sem urðu að lögum varða einungis fimm þeirra neytendur og heimili á beinan hátt og aðeins þrjú frumvörp vörðuðu fyrirtæki og atvinnulíf. Afgangurinn og stærsti hluti lagasetningarinnar fer í innleiðingar á EES-reglum og endalaust viðhald á kerfismálum og stjórnsýslu. Það er því gott að vita til þess að á meðan mál sem skipta almenning raunverulegu máli eru jörðuð í kyrrþey snýst kerfið eins og vel smurð vél í kringum sjálft sig. Sjónarspil Hápunktur alls þessa sjónarspils fer þó fram í lokuðum herbergjum fjármálaráðuneytisins þar sem ríkiseinokunin er nú varin af miklum móð gagnvart Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel. Kaldhæðnin gæti vart verið meiri. Fjármálaráðherra er varaformaður flokks sem hefur afnám einokunar á stefnuskrá sinni og forsætisráðherra styður opinberlega sölu áfengis í einkareknum sérverslunum. Samt eyðir ráðuneytið kröftum og fjármunum skattgreiðenda í að berjast gegn eftirlitsstofnuninni til að verja kerfi sem ráðherrarnir sjálfir segjast vilja leggja niður. Það þarf hæfileika til að vinna svona ötullega gegn eigin sannfæringu. Á meðan embættismennirnir reyna að vernda fólk gagnvart sjálfu sér eru landsmenn búnir að taka ákvörðun. ESA á eftir að slá á fingurnar á ríkinu fyrir að mismuna fyrirtækjum, Landsréttur dæmir í svokölluðu Smáríkismáli næsta vor og Hæstiréttur skilar tæplega niðurstöðu fyrr en eftir tvö ár. En af hverju að drífa í hlutunum þegar hægt er að láta dómstóla og erlendar eftirlitsstofnanir sjá um að taka erfiðu ákvarðanirnar? Það er jú mun þægilegra fyrir þingmennina að láta neyða sig til framfara en að sýna sjálfstætt frumkvæði. Hver stjórnar Íslandi? Lýðræði á að heita einfalt í framkvæmd en reynist það sjaldnast. Hér blasir við að þjóðin styður frjálsa verslun, meirihluti þingheims er fylgjandi henni og ráðamenn hafa sjálfir mært frelsið opinberlega. Samt kemst frumvarp um netverslun með áfengi ekki einu sinni á dagskrá til atkvæðagreiðslu. Það er svæft og kæft, dregið á langinn og svæft hinum langa svefni meðan embættismenn verja fortíðina með sinni fortíðarþrá. Þetta snýst ekki lengur um það hvar fólk kaupir rauðvín eða bjór heldur um það hvernig ákvarðanir eru raunverulega teknar í þessu landi. Ef hvorki vilji þjóðarinnar, skýr meirihluti þingsins né yfirlýst stefna ráðamanna dugar til að breyta úreltu kerfi hlýtur maður að spyrja sig hver sé í raun við stjórnvölinn. Höfundur er vínsali. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Áfengi Elías Blöndal Guðjónsson Mest lesið Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir Skoðun Óuppfyllt loforð í húsnæðismálum í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Mannúðin sett í varðhald í brottfararbúðum Rósa Björk Brynjólfsdóttir Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk skrifar Skoðun Mannúðin sett í varðhald í brottfararbúðum Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Óuppfyllt loforð í húsnæðismálum í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg skrifar Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Sjá meira
Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun
Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar
Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun