Tvöfalt fleiri karlar en konur kjósa Miðflokkinn Lovísa Arnardóttir skrifar 27. febrúar 2026 08:53 Kristrún Frostadóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í Kryddsíld um áramót. Samkvæmt könnunum eru þeirra flokkar stærstir á þingi, Samfylking og Miðflokkur. Vísir/Anton Brink Samkvæmt nýrri könnun Prósents á fylgi flokka er Samfylkingin með mesta fylgið, eða 30,1 prósent. Miðflokkurinn er þar næststærsti flokkurinn með 19,6 prósenta fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn nánast með sama fylgi, 13,7 og 13,5.
Af þeim sem tóku afstöðu þá myndu 30,1 prósent kjósa Samfylkinguna, 19,6 prósent Miðflokkinn, 13,7 prósent Sjálfstæðisflokkinn, 13,5 prósent Viðreisn, 7,7 prósent Flokk fólksins, 5,9 prósent Framsóknarflokkinn, 3,6 prósent Pírata, 3,3 prósent Vinstri græn, 2,4 prósent Sósíalistaflokkinn og 0,2 prósent Lýðræðisflokkinn. Fylgi flokka samkvæmt könnun Prósents. Prósent Niðurstöðurnar eru ólíkar þeim sem komu í könnun Maskínu fyrr í vikunni en þar var Samfylkingin með 27,2 prósenta fylgi, Miðflokkurinn með 19 prósenta fylgi og Sjálfstæðisflokkurinn með 16,2 prósenta fylgi. Samkvæmt niðurstöðum er fylgi Samfylkingarinnar marktækt meira hjá konum en körlum, eða 34 prósent á móti 26 prósentum. Fylgi Miðflokksins er marktækt meira hjá körlum en konum, eða 25 prósent á móti 13 prósentum. Fylgi eftir kyni. Prósent Þá segir að fylgi Viðreisnar sé marktækt meira hjá einstaklingum á aldrinum 35 til 54 ára en 65 ára og eldri og 25 til 34 ára. Fylgi Framsóknarflokksins er marktækt meira hjá 25 til 34 ára en 18 til 24 ára. Fylgi Flokks fólksins er marktækt meira hjá 55 ára og eldri en hjá þeim sem yngri eru. Fylgi Pírata er marktækt meira hjá 18–24 ára en hjá þeim sem eru 35 ára og eldri. Fylgi eftir aldri. Prósent Niðurstöður eru einnig greindar eftir búsetu og samkvæmt því er fylgi Samfylkingarinnar marktækt meira hjá þeim sem búa í Reykjavík en hjá þeim sem búa í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur og á landsbyggðinni. Fylgi Miðflokksins er marktækt meira hjá þeim sem búa í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur en hjá þeim sem búa á landsbyggðinni eða í Reykjavík. Fylgi Viðreisnar er marktækt meira hjá þeim sem búa í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum en hjá þeim sem búa á landsbyggðinni. Fylgi eftir búsetu. Prósent Fylgi Flokks fólksins er marktækt meira á landsbyggðinni en í þeim sem búa í Reykjavík og í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur. Fylgi Framsóknarflokksins er marktækt meira hjá þeim sem búa á landsbyggðinni en í þeim sem búa í Reykjavík eða nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur. Fylgi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs er marktækt meira í Reykjavík en í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur og fylgi Sósíalistaflokksins er marktækt meira í Reykjavík en í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur og á landsbyggðinni. Gögnum var safnað frá 21. janúar til 16. febrúar 2026 í netkönnun meðal könnunarhóps Prósents. Úrtak var 3.900 og var svarhlutfall 50 prósent. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga í dag?
Skoðanakannanir Alþingi Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Viðreisn Píratar Lýðræðisflokkurinn Sósíalistaflokkurinn Flokkur fólksins Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Sjá meira