Skoðanakannanir

Fréttamynd

Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarn­veigar dvína

Sjálfstæðisflokkurinn er kominn með ríflega fjögurra prósentustiga forskot á Samfylkinguna í Reykjavík í kosningaspá Vísis. Sjöundi maður hans á nú meiri líkur á að komast inn en sjötti maður Samfylkingar. Líkur sósíalista að ná inn manni hafa aukist en Flokks fólksins dalað.

Innlent
Fréttamynd

Bilið á milli turnanna breikkar

Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í Reykjavíkurborg og eykur forskot sitt á Samfylkinguna. Flokkurinn mælist með ríflega tuttugu og fimm prósenta fylgi í borginni í nýrri könnun Maskínu og hefur farið upp um fjögur prósentustig síðan í mars.

Innlent
Fréttamynd

Út­lit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni

Það verður flókið að mynda meirihluta í borgarstjórn í vor miðað við nýuppfærða kosningaspá Vísis að mati stjórnmálafræðings. Stóru tíðindin nú séu þau að það mikla sóknarfæri sem opnast hafi á vinstri væng íslenskra stjórnmála sé byrjað að fyllast, sérstaða Vinstrisins sé miklu skýrari en ella.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hlutinn fallinn sam­kvæmt nýrri könnun

Meirihlutinn er fallinn í borginni ef marka má nýja könnun Gallups. Vinstrið er með sterka innkomu og bæta Miðflokkurinn og Viðreisn töluvert við sig frá síðustu kosningum. Á sama tíma missa Framsókn, Píratar og Sósíalistaflokkurinn mikinn hluta síns fylgis. Stór hluti svarenda gaf ekki upp afstöðu sína eða kaus að skila auðu.

Innlent
Fréttamynd

Flestir vilja leiguþak

Mikill meiri hluti svarenda í nýrri könnun er hlynntur því að sett verði lög um leiguþak á húsnæðismarkaði, eða 68 prósent. Aðeins átján prósent eru andvígir leiguþaki.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri and­vígir aðild nú en í fyrra

Fleiri Íslendingar eru andvígir aðild að Evrópusambandinu nú en fyrir ári síðan miðað við árlega könnun sem Maskína gerir fyrir utanríkisráðuneytið. 46 prósent segjast vera andvíg aðild í dag en sá fjöldi var 39,8 prósent þegar könnunin var framkvæmd á svipuðum tíma í fyrra. Þá hefur stuðningur við aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu ekki mælst hærri.

Innlent
Fréttamynd

Á brattann að sækja fyrir aðildarsinna

Nýjustu kannanir benda til þess að þeir sem vilja halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið standi frammi fyrir erfiðu verkefni. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir þó ekki hægt að tengja það beint við vaxandi óánægju með ríkisstjórnina.

Innlent
Fréttamynd

Fram­sókn næði ekki inn á þing

Framsóknarflokkurinn mældist ekki inni á þingi ef gengið yrði til kosninga í dag samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn mælist með 4,7 prósenta fylgi, sem er nærri tveimur prósentustigum minna en í síðasta þjóðarpúlsi. 

Innlent
Fréttamynd

Úr­vals­deild og neðri deild en restin í vand­ræðum

Samfylking og Sjálfstæðisflokkur eiga í einvígi í Reykjavík að mati prófessors í stjórnmálafræði en flokkarnir eru nær hnífjafnir samkvæmt nýrri könnun. Línur séu teknar að skýrast og skipta megi flokkunum upp í þrjár deildir. Líklega verði hægt að mynda meirihluta til vinstri eða hægri.

Innlent
Fréttamynd

Vinstrið á blússandi siglingu

Fylgi Vinstrisins, nýs framboðs í Reykjavík undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, eykst um rúm þrjú prósentustig milli kannanna. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn keppast enn um efsta sætið.

Innlent
Fréttamynd

Fylgi Sam­fylkingar ekki verið minna í eitt ár

Fylgi Samfylkingarinnar dregst saman í nýrri könnun Maskínu og mælist um tuttugu og fimm prósent. Fylgið hefur ekki verið minna í eitt ár og hefur minnkað um sex prósentustig frá því að flokkurinn flaug hæst í september í fyrra. Samfylkingin er þó enn langstærst og á eftir henni er Miðflokkur sem mælist með um átján prósent.

Innlent
Fréttamynd

Um 44 prósent hlynnt for­gangs­röðun í samgönguáætlun

Um 44 prósent eru hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun og 31,6 prósent eru andvíg. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu en töluvert hefur verið rætt um forgangsröðun í samgönguáætlun og þá sérstaklega í tengslum við jarðgangagerð.

Innlent
Fréttamynd

Sam­fylkingin og ríkis­stjórnin lækka flugið

Samfylkingin tapar fylgi milli mánaða á meðan Framsókn og Vinstri græn bæta við sig. Þetta sýna niðurstöður nýs Þjóðarpúls Gallups en stuðningur við ríkisstjórnina minnkar frá því í janúar. Miðflokkurinn mælist áfram stærri en Sjálfstæðisflokkurinn.

Innlent
Fréttamynd

Græningjar teknir fram úr Verka­manna- og Íhalds­flokki

Umbrot í stjórnmálalandslagi Bretlands halda áfram ef marka má nýja skoðanakönnun þar sem Græningjar mælast næstvinsælasti flokkur landsins og stærri en bæði Verkamanna- og Íhaldsflokkurinn. Græningjar njóta mest stuðnings fólks sem er yngra en fimmtugt.

Erlent