Óttast að útlendingafrumvarpið þjóni ekki tilgangi sínum Oddur Ævar Gunnarsson og Margrét Helga Erlingsdóttir skrifa 28. janúar 2026 20:09 Brynjar Níelsson mætti aftur á þing í dag. Vísir/Vilhelm Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að með breytingartillögu sinni myndi frumvarp dómsmálaráðherra um afturköllun alþjóðlegrar verndar síbrotamanna þjóna tilgangi sínum betur. Þingflokksformaður Samfylkingar segir frumvarpið bæta öryggi innanlands og koma í veg fyrir að örfá skemmd epli geti skemmt fyrir kerfinu.
Þetta er meðal þess sem fram kom í benni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Greint var frá því í dag að Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefði lagt fram breytingartillögu um frumvarpið. Brynjar tók sæti í dag á þingi í fyrsta sinn í þrjú ár en hann kemur inn sem varamaður fyrir Guðlaug Þór Þórðarson. Heimildir séu sjaldan nýttar Frumvarp dómsmálaráðherra um afturköllun alþjóðlegrar verndar síbrotamanna var til umræðu á Alþingi í dag. Ágætis sátt virðist um málið ef umræður á þingi eru bornar saman við tilraunir fyrri ríkisstjórna til að gera breytingar á útlendingalögum. Brynjar lagði hinsvegar til breytingatillögu. „Ég vil breyta því þannig að frumvarpið nái tilgangi sínum betur. Að gera það að skyldu að afturkalla ef um alvarleg brot er að ræða en ekki heimild. Við vitum oft hvernig heimildir eru nýttar, þær eru stundum bara ekkert nýttar,“ segir Brynjar. „Svo bættu menn eiginlega um betur með því að meirihlutinn kom með breytingartillögur um það að hægt væri að veita þeim sem hefur verið afturkallað dvalarleyfi engu að síður. Þannig að þá er nú svona mesta bitið farið úr þessu og það nær ekki tilgangi sínum að mínu viti.“ Hann segir frumvarpið tryggja breytingar í rétt átt. „En svo það nái tilgangi sínum þarf að gera breytingar á því.“ Breytingartillagan sé lagatæknilegt atriði Guðmundur Ari Sigurjónsson segist telja að tillaga Brynjars snúi meira að lagatæknilegu og málsmeðferðatriði. Frumvarpið snúist um að veita stjórnvöldum heimild til að afturkalla alþjóðlega vernd ef einstaklingur brýtur alvarlega af sér eða ítrekað af sér. Af hverju þessi orð, af hverju þarf að ganga svo langt, af hverju þarf svo mikið að ganga á svo hægt sé að grípa inn í? „Í rauninni eru þær heimildir sem við getum beitt er að afturkalla vernd ef einstaklingur brýtur alvarlega af sér. Það eru svona þær heimildir sem eru tilgreindar í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna. Við bætum þarna við líka ítrekuð brot því ef mörg brot eða ef ákveðin minni brot eru framin ítrekað þá í raun og veru eykst alvarleiki málsins og það er líka í dómaframkvæmd að þá er hægt að líta á það sem skipulagða brotastarfsemi eða ítrekaða brotastarfsemi,“ segir Guðmundur. „Þannig í rauninni, það er sama hvort það sé annað hvort alvarlegt brot eða ítrekað brot, þá verður þessi heimild til. Auðvitað ber líka að gæta meðalhófs. Viðkomandi einstaklingur getur brotið einhver lög, fólk lendir í allskonar aðstæðum og þá er mikilvægt að það sé hægt að horfa til þess, að ef þetta er ítrekað, ef þetta er alvarlegt, þá er hægt að afturkalla þessa heimild og þetta er gert til að bæta öryggi hér innanlands en líka til að koma í veg fyrir að örfá skemmd epli geti skemmt fyrir kerfinu.“
Alþingi Hælisleitendur Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira