Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Kjartan Kjartansson skrifar 21. janúar 2026 15:45 Alfreð Tulinius, stjórnarformaður Vélfags, í fjölmiðlaviðtali. Myndin er tekin af Facebook-síðu Vélfags. Vélfag Lykilstjórnendur hjá Vélfagi hafa unnið að því að halda starfsemi gangandi í nýju félagi með því að kaupa búnað þess ódýrt. Þá hafa þeir fjarlægt tölvur úr húsnæði fyrirtækisins sem innihalda teikningar af vélum. Nokkrir starfs- og stjórnarmenn Vélfags voru handteknir í aðgerðum saksóknara í dag.
Héraðssaksóknari gerði húsleit í höfuðstöðvum Vélfags á Akureyri í morgun. Hún er sögð tengjast rannsókn á starfsemi fyrirtækisins sem hefur sætt viðskiptaþvingunum vegna tengsla eiganda þess við rússneska aðila frá því síðasta sumar. Alfreð Tulinius, stjórnarformaður Vélfags, var handtekinn í morgun og er sagður hafa stöðu sakbornings. Að minnsta kosti fjórir aðrir stjórnar- og starfsmenn Vélfags hafa einnig verið handteknir samkvæmt heimildum Vísis. Arion banki frysti fjármuni Vélfags í sumar á grundvelli þvingunaraðgerða Evrópusambandsins vegna tilrauna Rússlands til þess að grafa undan stöðugleika í Evrópu. Ivan Kaufmann, meirihlutaeigandi Vélfags, er talinn leppur eigenda rússnesks útgerðarfélags sem tengist svonefndum skuggaflota Rússa. Félagið átti áður meirihluta í Vélfagi. Með leyfi frá Kaufmann til að eignast starfsemina fyrir „slikk“ Ekki liggur fyrir að hverju rannsókn héraðssaksóknara beinist sérstaklega. Alfreð, Silfá Huld Bjarmadóttir, markaðsstjóri Vélfags og dóttir stofnenda fyrirtækisins, og Elvar Stefánsson, eiginmaður Silfár og framleiðslustjóri Vélfags, hafi unnið að því á bak við tjöldin að stofna nýtt félag til að halda starfseminni áfram, að sögn starfsmanns Vélfags sem vill ekki láta nafns síns getið. Ekki hefur náðst í þremenningana í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Lager og tæki fyrirtækisins ættu þau að eignast fyrir „slikk“ með leyfi Kaufmann. Viðskiptaþvingunum er ætlað að koma í veg fyrir að aðili á þvingunarlistanum hagnist á fyrirtækinu. Tölvur fjarlægðar sem „varúðarráðstöfun“ Þá segir heimildarmaður Vísis að Elfar og Alfreð hafi fjarlægt tölvur sem á voru teikningar af vélum sem eru hugverk Vélfags eftir að starfsemin var stöðvuð og starfsmönnum var sagt upp í nóvember. Þetta hafi starfsmenn orðið varir við eftir að starfsemin var stöðvuð um miðjan nóvember þegar utanríkisráðuneytið framlengdi ekki undanþágu Vélfags frá þvingunaraðgerðunum. Starfsmönnum var síðan tilkynnt að tölvurnar hefðu verið fjarlægðar sem „varúðarstöfun“. Tölvunum hefði ekki verið skilað aftur fyrr en í fyrstu viku janúar, rétt áður en starfsmenn á uppsagnarfresti voru kallaðir til vinnu til að klára að framleiða vélar og afgreiða pöntun sem Alfreð fullyrti við starfsmenn að hann hefði heimild til að gera. Starfsmenn lögðu niður vinnu eftir að í ljós kom að þeir væru ekki lengur tryggðir þar sem Vélfag hefði ekki greitt gjöld undanfarna mánuði. Alfreð hafi sagt starfsfólki að hann ætlaði að greiða úr flækjunni og í milltíðinni gæti starfsfólk farið heim. Í síðustu viku greindi lögmaður Vélfags svo frá því að Landsbankinn hefði fryst vörslureikning hans með söluvirði rennibekks sem var seldur til verkstæðis í Vestmannaeyjum var lagt inn á. Ætlunin var að greiða starfsmönnum Vélfags vangoldin laun með fénu. Utanríkisráðuneytið veitti síðan undanþágu til að greiðslan gæti farið fram. Fréttin hefur verið uppfærð. Í upphaflegri útgáfu hennar var fornafn Elvars Stefánssonar misritað.
Viðskiptaþvinganir gegn Vélfagi Rússland Sjávarútvegur Tækni Evrópusambandið Akureyri Mest lesið Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Fleiri fréttir Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Sjá meira