Á skilorði eftir að hafa kýlt, skallað og bitið konu sína Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. janúar 2026 11:00 Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur við Lækjartorg. Vísir/Vilhelm Karlmaður á höfuðborgarsvæðinu hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir endurtekin ofbeldisbrot í nánu sambandi gagnvart þáverandi sambýliskonu sinni. Maðurinn játaði brot sín.
Árásirnar tvær áttu sér stað í júní 2023 og október 2024. Í þeirri fyrri tók hann konuna kverkataki og þrengdi að öndunarvegi hennar þannig að hún átti erfitt með andardrátt og hlaut mar á hálsi. Í síðari árásinni kýldi hann konuna með krepptum hnefa í höfuðið, skallaði í andlitið og beit hana í framhandlegg. Hlaut konan mar og rispur á höfði og andliti, kúlu á enni, bitfar og mar á handlegg. Maðurinn játaði brot sín skýlaust. Hann átti ekki sögu að baki fyrir ofbeldisbrot. Þá var litið til þess að um var að ræða endurtekna og alvarlega háttsemi gagnvart nákomnum aðila í langan tíma þar sem lífi hennar og heilsu var ógnað. Brotin voru framin á sameiginlegu heimili þar sem konan hefði með réttu átt að njóta öryggis og verndar. Þá braut maðurinn gegn trúnaði og trausti með háttsemi sinni auk þess sem brotavilji og ásetningur virðist hafa verið einbeittur. Afleiðingar ofbeldisbrota gegn nákomnum séu miklar og kunni að koma fram á lengri tíma. Var maðurinn dæmdur í skilorðsbundið sex mánaða fangelsi sem þýðir að hann þarf ekki að afplána refsingu nema hann brjóti af sér á næstu tveimur árum.
Heimilisofbeldi Lögreglumál Dómsmál Reykjavík Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Sjá meira