Bretland aftur inn í Reiki í Evrópu hjá Sýn, Símanum og Nova Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. ágúst 2025 10:19 Íslendingar sem ferðast til Bretlands eiga nú kost á því að greiða sama gjald fyrir farsímaþjónustu þar eins og þeir gera heima fyrir. Getty/LightRocket/SOPA/Dinendra Haria Fjarskiptafyrirtækin Sýn, Síminn og Nova hafa bætt Bretlandi aftur inn í svokallaða Reiki í Evrópu þjónustu, þar sem íbúar innan ESB og EES greiða sama gjald fyrir farsímanotkun í Evrópu og þeir greiða heima fyrir.
Bretland datt úr þjónustunni þegar Bretar gengu úr Evrópusambandinu. Innviðaráðuneytið hefur boðað reglugerð til að koma í veg fyrir „óhóflegt gjald“ fyrir farnetsþjónustu yfir landamæri Bretlands og Norður-Írlands. Í athugasemdum í samráðsgátt segir meðal annars að í XX. viðauka við Fríverslunarsamning milli Íslands, Liectensteins, Noregs og Bretlands, sem tók gildi þann 1. júlí 2023, sé að finna ákvæði um að ferðamenn sem fara milli landanna þurfi ekki að borga himin há símagjöld við það eitt að fara yfir landamæri Bretlands. „Samningurinn átti að tryggja þetta. Það hefur hann ekki gert í raun. Aðeins eitt lítið símafyrirtæki hefur nýtt sér þessa sérstöðu á markaðinum en það félag hefur mjög litla markaðshlutdeild. Með reglugerð þessari er lagt til að tryggt verði að símafyrirtækin fari eftir samningi þessum,“ segir í samráðsgáttinni. Neytendasamtökin hafa fagnað boðaðri reglugerð, „enda bæði til þæginda og hagsbóta fyrir almenna notendur“. Vísir er í eigu Sýnar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Fjarskipti Bretland Brexit Íslendingar erlendis Síminn Sýn Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent