Fjarskipti

Fréttamynd

Mega kaupa Öryggis­miðstöðina og Opin kerfi

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Ása, áður Símans, á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum. Samþykkið er þó háð því skilyrði að Öryggismiðstöðin bjóði ekki betri kjör á öryggisþjónustu ef kaupandi er í fjarskiptaviðskiptum við Símann.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tekjur Nova í hæstu hæðum

Nova Klúbburinn skilaði hæstu tekjum í sögu sinni á þriðja ársfjórðungi, en þetta er fyrsti heili fjórðungurinn eftir að félagið Ofar kom inn í samstæðuna. Tekjur námu 5,8 milljörðum króna og hagnaður jókst um 24 prósent milli ára.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ein­skiptis­kostnaður skyggir á af­komu­bata í rekstri Ása

Uppgjör Ása, áður Símans, fyrir þriðja ársfjórðung sýnir merki um bata í undirliggjandi rekstri samstæðunnar en einskiptiskostnaður vegna yfirtaka og skipulagsbreytinga setti hins vegar talsvert mark á afkomuna, að sögn hlutabréfagreinenda. Tekjuvöxtur í fjarskiptastarfseminni reyndist meiri en vænst var og kostnaðaraðhald hefur batnað.

Innherjamolar
Fréttamynd

Í­hlutun SKE sögð „varpa skugga“ á vaxtará­form Ása

Óvissa um möguleg inngrip Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum varpar skugga á sókn félagsins, að mati greinenda IFS, sem segja íhlutun eftirlitsins koma á óvart. Verðmat á félaginu helst óbreytt og er það talið talsvert undirverðlagt á markaði.

Innherjamolar
Fréttamynd

Saka Símann um undir­boð með áskriftarpakka

Samkeppniseftirlitið hefur tilkynnt móðurfélagi Símans að það telji fyrirtæki hafa brotið samkeppnislög með skaðlegri undirverðlagningu á áskriftum að fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu. Félagið segist ætla að taka til fullra varna í málinu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Á­fall og tjón að missa skyndi­lega teljarann

Vilborg Arnarsdóttir missti son sinn í bílslysi á Súðavíkurvegi fyrir 25 árum. Fjórum árum eftir andlát hans lét hún draum sinn rætast og opnaði leikvöllinn Raggagarð, á Súðavík. Teljari var settur upp í garðinum fyrir sjö árum svo hún myndi vita hversu margir heimsæktu garðinn. Teljarinn hætti skyndilega að virka í lok maí þegar slökkt var á 2G og 3G netinu.

Innlent
Fréttamynd

Auknar tekjur og minni kostnaður

Tekjur Sýnar jukust um 2,8 prósent á milli ára á sama tíma og rekstrarkostnaður lækkaði um 2,3 prósent á milli ára. Forstjóri fyrirtækisins segir tap á ársfjórðungnum skýrast af afskriftum á sýningarréttum. Starfsfólki hefur fækkað um 47 á milli ára.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum

Míla hefur lokið mikilvægu skrefi í orkuskiptum fjarskiptainnviða landsins með uppsetningu rafgeymakerfis, sólarsella og vindmyllu á fjarskiptastaðnum Slórfelli á Möðrudalsöræfum. Slórfell var síðasti fjarskiptastaður fyrirtækisins þar sem dísilrafstöð hafði verið í samfelldum rekstri allan sólarhringinn, svokölluð síkeyrsla. Með nýju orkukerfi hefur tekist að draga verulega úr olíunotkun og losun gróðurhúsalofttegunda.

Innlent
Fréttamynd

Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar

Kaup Ása hf. á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hf. verða ekki að veruleika. Frestur til að ganga frá endanlegum kaupsamningi er liðinn án þess að samningur hafi verið undirritaður en ákveðið var að falla frá viðskiptum eftir viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Síminn orðinn Ásar hf

Hluthafafundur Símans hf. samþykkti í dag að breyta nafni samstæðunnar í Ásar hf. Félagið hefur staðið í stórræðum síðasta árið en í desember síðastliðnum var tilkynnt um kaup þess á bæði Opnum kerfum og Öryggismiðstöð Íslands. Það var svo í júlí síðastliðnum sem kaup Ása á Greiðslumiðlun Íslands gengu í gegn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Alin upp við að skrifa frekar skila­boð en að hringja

Embla Bachmann, rithöfundur og dagskrárgerðarkona, segir mörgu ungu fólki þykja þægilegra að svara skilaboðum en símtölum því það hafi þá tíma til að hugsa svar sitt. Sjálf þjálfaði hún sig í símtölum og þykir þau ekki tiltökumál í dag. Embla var til viðtals í Bítinu um símtalafælni ungs fólks.

Innlent
Fréttamynd

Styrkja fjar­skipta­kerfið fyrir almyrkvann

Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu. Þá hefur Neyðarlínan einnig gefið út varanúmer sem hægt er að hringja í ef ekki næst samband við 112. 

Neytendur
Fréttamynd

Mörk réttarríkisins og frið­helgi einkasamskipta

Þann 9. júlí sl. fór fram önnur umræða á Evrópuþinginu um svokallaða Chat Control 1.0-reglugerð. Reglugerðin framlengir tímabundna undanþágu frá reglum um trúnað rafrænna fjarskipta og heimilar áfram ákveðna sjálfvirka skimun einkasamskipta.

Skoðun
Fréttamynd

Hættu­á­stand skapist eftir frá­hvarf 3G

Byggðaráð Múlaþings lýsir þungum áhyggjum af skerðingu fjarskipta í sveitarfélaginu í kjölfar þess að slökkt var á 2G og 3G sendum. Sveitarfélagið er sérlega víðfeðmt og teygir sig frá Borgarfirði eystri suður á Djúpavog.

Innlent
Fréttamynd

Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum

Forstjóri Fjarskiptastofu segir að nokkrar kvartanir og ábendingar um verra símasamband eftir lokun 2G og 3G kerfanna hafi borist. Hann segir ákvörðunina um að loka gömlu kerfunum alfarið á ábyrgð fjarskiptakerfanna sem eigi og reki kerfin og nú sé boltinn hjá þeim að bregðast við kvörtunum viðskiptavina. 

Innlent