Innlent

„Við ætlum að tryggja að það verði flogið til Ísa­fjarðar“

Árni Sæberg skrifar
Eyjólfur Ármannsson er samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Eyjólfur Ármannsson er samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Vísir/Rúnar

Samgönguráðherra segir það mjög slæmar fréttir að Icelandair stefni á að hætta áætlanaflugi milli Reykjavíkur og Ísafjarðar eftir sumarið 2026. „Við ætlum að tryggja að það verði flogið til Ísafjarðar eftir lok sumars á næsta ári. Þetta er bara vinna sem ég mun fara í.“

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair sagði í gær að félagið hyggist hætta að fljúga til Ísafjarðarbæjar eftir sumarið 2026. Ástæðan væri sérstaða flugvallarins, sem leiði til þess að einungis litlar vélar geti lent þar og vegna framkvæmda í Grænlandi.

Bæjarstjórinn sleginn

„Við höfum verið að nota þessar Bombardier Dash 200-vélar í flug til Grænlands og Ísafjarðar. Þessar flugvélar hafa hentað mjög vel í Grænlandsflugi en nú sjáum við fyrir endann á framkvæmdum þar. Þá verða lengri flugbrautir tilbúnar í notkun á næsta ári og þá geta stærri vélar flogið inn með lægri sætiskostnaði og þá eru þessar vélar ekki lengur samkeppnishæfar.“ Sagði Bogi.

Áform Icelandair hafa þegar vakið hörð viðbrögð. Til að mynda sagðist Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, í hádegisfréttum Bylgjunnar, vera slegin vegna málsins.

Málið rætt í ríkisstjórn

Eyjólfur Ármannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sagði þetta slæm tíðindi þegar hann ræddi við Berghildi Erlu Berharðsdóttur fréttamann að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.

Hann hafi tekið málið upp á ríkisstjórnarfundinum og skilaboðin hafi verið skýr. 

„Við ætlum að tryggja að það verði flogið til Ísafjarðar eftir lok sumars á næsta ári. Þetta er bara vinna sem ég mun fara í. Hvernig módelið verður eða hvernig það verður gert, það á eftir að koma í ljós. Ég hef óskað eftir fundi með forstjóra Icelandair til að ræða þetta mál.“

Grundvallaratriði fyrir Vestfirði

Eyjólfur bendir í þessu samhengi á að ríkið styrki flug á aðra áfangastaði en farþegafjöldi sem þar um ræðir sé miklu, miklu minni en á Ísafjarðarleiðinni. 30 til 35 þúsund manns fljúgi þá leið

„Þetta er algjört grundvallaratriði fyrir Vestfirðinga og Ísfirðinga, að þessi leið sé flogin, Reykjavík - Ísafjörður.“

Opni mögulega fyrir minni flugfélög

Eyjólfur segir bæði rekstrarlegar og landfræðilegar ástæður liggi að baki ákvörðun Icelandair og skoða verði hvernig hægt sé að bregðast við.

„Kannski opnast aðrir möguleikar fyrir annað flugfélag, að komast inn á þennan markað. Þá á aðra minni staði líka. Það á eftir að koma í ljós en það verður flogið í framtíðinni á flugleiðinni Reykjavík - Ísafjörður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×