Viðskipti innlent

Nýtt veitingasvæði rís í austur­enda Smára­lindar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
image

Fasteignafélagið Heimar hefur sett af stað umfangsmiklar framkvæmdir í austurenda Smáralindar en þar á að rísa nýtt veitingasvæði. Áætlað er að þrettán veitingastaðir verði opnaðir á þessu nýja svæði í Smáralind fyrir lok árs 2025. Um verður að ræða allt frá skyndibita yfir í fínni veitingastaði sem einnig verða opnir á kvöldin.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heimum. Breytingarnar eru sagðar hluti af stefnumörkun Heima um að þróa Smáralind sem kjarna þar sem fólk sæki ólíka afþreyingu, mæli sér mót og eigi notalegar stundir með góðum mat. 

„Kannanir meðal íbúa og þeirra sem starfa í nágrenni Smáralindar hafa leitt í ljós að eftirspurn er eftir slíkum áfangastað á svæðinu. Miklar breytingar hafa orðið á þeim ríflega tuttugu árum sem Smáralind hefur starfað. Sem dæmi má nefna að tugþúsundir fermetra af atvinnu- og íbúðarhúsnæði hafa verið byggðir á síðustu fimm árum í næsta nágrenni.“

Hönnun nýja veitingasvæðisins er í höndum Basalts arkitekta, sem meðal annars hönnuðu veitingasvæðið Hafnartorg Gallery sem staðsett er í miðbæ Reykjavíkur. 

„Yfir ein milljón gesta hefur heimsótt það frá opnun þess fyrir tveimur árum síðan. Heimar telja að þessar breytingar geti hjálpað til við að höfða til nýrra viðskiptavinahópa og styrkt tengsl Smáralindar við nærumhverfið. Þá falla þær vel að stefnu Heima um að þróa kjarna þar sem fólk starfar, býr og sækir þjónustu.“

Baldur Már Helgason er framkvæmdastjóri viðskipta Heima. 

„Austurendi Smáralindar hýsti áður Vetrargarðinn og það svæði hefur nánast ekkert verið endurbætt frá upphafi Smáralindar. Við hönnun nýja veitingasvæðisins hefur mikil áhersla verið lögð á að skapa hlýlegt og glæsilegt umhverfi. Með nýja veitingasvæðinu styrkist veitinga- og afþreyingaflóra Smáralindar enn frekar þar sem veitingastöðum í Smáralind fjölgar, úrval veitinga verður fjölbreyttara og mun höfða til ólíkra hópa í mismunandi erindagjörðum, allt frá hröðum og aðgengilegum mat yfir í hágæða matarupplifun.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×