Viðskipti innlent

Lækka innlánsvexti um heilt prósentu­stig

Árni Sæberg skrifar
Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri Indó.
Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri Indó. Vísir/Rúnar

Sparisjóðurinn Indó hefur tilkynnt um vaxtalækkanir á bæði inn- og útlánum. Útlánsvextir eru lækkaðir um 0,75 prósentustig, umfram stýrivaxtalækkun gærdagsins. Til þess að mæta því eru innlánsvextir á debetreikningum lækkaðir um heilt prósentustig.

Í fréttatilkynningu frá segir að lækkun á vöxtum á yfirdrætti og sparibaukum taki gildi 3. desember næstkomandi en á debetreikningi þann 21. janúar 2025. Breytingarnar séu eftirfarandi:

  • Debetreikningar: Lækka um 1,00 prósentustig, niður í 2,75%.
  • Sparibaukar: Lækka um 0,50 prósentustig niður í 7,60%.
  • Yfirdráttur í niðurgreiðslu: Lækka um 0,75 prósentustig, niður í 13,50%.
  • Yfirdráttur án niðurgreiðslu: Lækka um 0,75 prósentustig, niður í 15,50%.

Vilja koma til móts við heimilin

Haft er eftir Hauki Skúlasyni, framkvæmdastjóra Indó, að ákvörðunin um að lækka yfirdráttarvexti meira en sem nemur lækkun meginvaxta Seðlabankans sýni skýran vilja sparisjóðsins til að styðja við íslensk heimili.

„Við fögnum því að Seðlabankinn hafi lækkað meginvexti tvisvar í röð. Við höfum ákveðið að taka enn stærra skref með því að lækka útlánavexti meira en sem nemur lækkun Seðlabankans og taka þannig stöðu með heimilum. Þetta er sérstaklega mikilvægt í aðdraganda jóla þegar útgjöld heimila eru oft há.“

Þurfa samt að lækka innlánsvexti meira

Til að mæta þessari lækkun á útlánavöxtum hafi jafnframt verið nauðsynlegt að lækka vexti á veltiinnlánum meira en stýrivextir lækkuðu.

„Við teljum mikilvægt að vaxtabyrði heimila lækki með skýrum og merkjanlegum hætti. Með þessu getum við boðið enn hagstæðari lánakjör og leggjum áherslu á að lækka vexti á debetreikningum frekar en á sparibaukum. Þannig viljum við hvetja áfram til sparnaðar á sama tíma og við lækkum vaxtabyrði af lánunum.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×