Vill gera smokkinn sexí aftur Lovísa Arnardóttir skrifar 5. júlí 2024 12:01 Kolbrún Hrund segir það mikið áhyggjuefni að ungt fólk noti ekki smokkinn þó það eigi hann til. Mynd/Ragnar Visage og Vísir/Getty Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra Jafnréttisskólans í Reykjavík segir áríðandi að gera smokka sexí aftur. Auk þess þurfi að tryggja betra aðgengi að þeim. Í gær var greint frá því að fjölgun hefði orðið í greiningum kynsjúkdóma. Sóttvarnalæknir segir það mögulega tengjast minni notkun smokksins og breyttri kynhegðun ungs fólks. „
Við höfum hjá Reykjavíkurborg, í tengslum við Viku 6, þá bæði bjóðum við upp á fræðslu um af hverju smokkurinn er mikilvægur en líka hvernig á að nota smokkinn. Við sendum öllum nemendum í 10. Bekk alltaf smokk í Viku 6,“ segir Kolbrún Hrund. Auk þess geti nemendur í grunnskóla alltaf nálgast smokka ókeypis í félagsmiðstöðinni sinni. Geyma smokkinn í vasanum Kolbrún segir samt miklu færri stunda kynlíf í 10. bekk en til dæmis í framhaldsskóla. Vandamálið sé að þar sé ekki fræðsla og lítið aðgengi að smokkum. „Í rauninni eru krakkarnir svolítið að stíga sín fyrstu skref kynferðislega með öðrum á framhaldsskóla aldri og þar er lítið sem grípur þau. Þar vantar alveg kynfræðsluna og vantar aðgengi að smokkum. Það sem við höfum haft áhyggjur af er að í samtölum við unga fólkið okkar sem er farið að hafa samfarir eða stunda kynlíf með öðrum er að þó svo að þau séu með smokk eru þau ekki að nota hann. Þau eru stundum að segja okkur frá því að hann sé í vasanum en sé ekki tekinn upp þó þau séu að fara að stunda samfarir eða einhvers konar kynmök.“ Árið 1987 var farið í smokkaátak vegna mikillar fjölgunar HIV smita. Ýmislegt hefur verið reynt síðan til að gera smokkinn vinsælan. Að neðan í fréttinni er myndband úr herferð Ástráðs - Kynfræðuslufélags læknanema frá því í fyrra.Mynd/Landlæknisembættið Hún segir þetta verulegt áhyggjuefni. „Það er þessi mýta að hann sé ekki sexí, að hann sé óþægilegur og að kynlífið sé ekki eins gott fyrir vikið. Ég held að það sé klárlega kominn tími á svona smokkaherferð eins og var hérna um árið. Samfélagslega herferð þar sem við tölum smokkinn upp.“ Hún segir nauðsynlegt að tryggja aðgengi og að þau noti hann, en líka að þau vilji nota hann. „Það er miklu, miklu betra að nota smokk en að nota kynsjúkdóm, til dæmis.“ Dýrt að fá kynsjúkdóm Pakki með tíu smokkum kostar allt frá 600 krónum í lágvöruverslun en um þúsund til 1.500 í apóteki. Smokkar eru fáanlegir í öllum helstu matvöruverslunum, apótekum og víðar. „Ef þú átt peninginn ekki til þá auðvitað er þetta dýrt og það hafa ekki allir tök á því. En það er dýrt að fá kynsjúkdóm þannig kannski ættu ráðuneytin að taka sig saman og taka af kostnað af smokkum þannig þeir séu gjaldfrjálsir fyrir fólk á sama tíma og við förum að festa kynfræðsluna betur í sessi.“ Hún segir það skjóta skökku við að grunnskólanemendur hafi greitt aðgengi að smokkum en ekki ungt fólk á framhaldsskóla- og háskólaaldri. Þörf á smokkaátaki Hún segir að smokkar séu aðgengilegir gjaldfrjálsir til dæmis í Blush en að þeir ættu að vera aðgengilegir og gjaldfrjálsir víðar fyrir ungt fólk. Þá eigi það heldur ekki að vera tabú að nálgast þá. „Þetta er bara eitthvað sem þau ættu ekki að þurfa að hafa ótrúlega mikið fyrir að verða sér úti um. Þetta ætti bara að vera aðgengilegt finnst mér. Svo er það bara að hvetja þau til þess að nota smokk og brjóta þessa mýtu að smokkar séu ekki sexí. Ég held að það sé löngu kominn tími á að við förum í smokkaátak á Íslandi. Við höfum áhyggjur af þessum tölum um kynsjúkdómasmit og við getum gert betur og við ættum að gera það.“ Hún segir þetta hafa verið gert að markmiði hjá Reykjavíkurborg að gera smokka aðgengilega í félagsmiðstöðvum. Það hafi verið stórt og mikilvægt skref. Á sama tíma hafi tíðavörur einnig verið gerðar aðgengilegar. „Þetta eru hlutir sem skipta máli og ég skil ekki af hverju ríki og ráðuneytin gera ekki það sama fyrir framhaldsskólanemendur því það eru þau sem eru að stíga sin fyrstu skref kynferðislega miklu frekar.“
Heilbrigðismál Börn og uppeldi Grunnskólar Framhaldsskólar Háskólar Kynlíf Tengdar fréttir Fólk geti verið með fleiri en einn kynsjúkdóm Mikil aukning hefur orðið á greiningum kynsjúkdómanna lekanda og sárasóttar hérlendis og ekkert dregið úr tíðni klamýdíu. Sóttvarnalæknir segir áríðandi að fólk fari í skoðun og noti viðunandi varnir. Afleiðingar ógreindra sjúkdóma geti verið alvarlegar. 4. júlí 2024 13:00 Mikil fjölgun í greiningum á sárasótt og lekanda Mikil aukning hefur orðið á greiningum kynsjúkdómanna lekanda og sárasóttar hérlendis og ekkert dregið úr tíðni klamydíu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ársskýrslu sóttvarnalæknis fyrir árið 2023. Þar segir að ráðast þurfi í frekari greiningu á hugsanlegum orsökum aukningar lekanda og sárasóttar til að efla forvarnir á markvissan hátt. Sýkingarnar geti haft alvarlegar langtíma afleiðingar. 4. júlí 2024 08:17 Átak til að koma í veg fyrir annan faraldur eftir Covid-19 Smokkurinn datt á einhverjum tímapunkti úr tísku hjá íslenskum karlmönnum að sögn læknanema, sem blása nú til átaks til að vekja athygli á getnaðarvörninni. Hugsunin er að koma í veg fyrir að sóttvarnalæknis bíði að kljást við annan faraldur að loknum kórónuveirufaraldrinum. 2. febrúar 2022 23:30 Vill að smokkum verði dreift til grunnskólabarna Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir aukinn fjölda sárasóttartilfella hér á landi mega rekja til þess að færri noti nú smokk við samfarir heldur en áður fyrr. 14. júlí 2019 20:00 Ekki í tísku að nota smokkinn þótt verð hafi lækkað "Á síðustu tveimur árum hefur orðið veruleg verðlækkun á smokkum. Virðisaukaskatturinn hefur lækkað og við höfum líka lækkað verðið. Við hefðum því viljað sjá aukna sölu,“ segir Halldór Jónsson sem flytur inn Durex smokka. 8. október 2015 11:06 Mest lesið Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Innlent Fleiri fréttir Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Eldur kviknaði í veitingastað í nýja miðbænum á Selfossi Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Tónlistarskólar FÍH og Eddu Borg sameinast í þéttum takti Handtökur í tengslum við ræktun og þrjú skotvopn haldlögð Séra Friðrik fær ekki að rísa strax Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir vertíðina Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Sjá meira
Fólk geti verið með fleiri en einn kynsjúkdóm Mikil aukning hefur orðið á greiningum kynsjúkdómanna lekanda og sárasóttar hérlendis og ekkert dregið úr tíðni klamýdíu. Sóttvarnalæknir segir áríðandi að fólk fari í skoðun og noti viðunandi varnir. Afleiðingar ógreindra sjúkdóma geti verið alvarlegar. 4. júlí 2024 13:00
Mikil fjölgun í greiningum á sárasótt og lekanda Mikil aukning hefur orðið á greiningum kynsjúkdómanna lekanda og sárasóttar hérlendis og ekkert dregið úr tíðni klamydíu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ársskýrslu sóttvarnalæknis fyrir árið 2023. Þar segir að ráðast þurfi í frekari greiningu á hugsanlegum orsökum aukningar lekanda og sárasóttar til að efla forvarnir á markvissan hátt. Sýkingarnar geti haft alvarlegar langtíma afleiðingar. 4. júlí 2024 08:17
Átak til að koma í veg fyrir annan faraldur eftir Covid-19 Smokkurinn datt á einhverjum tímapunkti úr tísku hjá íslenskum karlmönnum að sögn læknanema, sem blása nú til átaks til að vekja athygli á getnaðarvörninni. Hugsunin er að koma í veg fyrir að sóttvarnalæknis bíði að kljást við annan faraldur að loknum kórónuveirufaraldrinum. 2. febrúar 2022 23:30
Vill að smokkum verði dreift til grunnskólabarna Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir aukinn fjölda sárasóttartilfella hér á landi mega rekja til þess að færri noti nú smokk við samfarir heldur en áður fyrr. 14. júlí 2019 20:00
Ekki í tísku að nota smokkinn þótt verð hafi lækkað "Á síðustu tveimur árum hefur orðið veruleg verðlækkun á smokkum. Virðisaukaskatturinn hefur lækkað og við höfum líka lækkað verðið. Við hefðum því viljað sjá aukna sölu,“ segir Halldór Jónsson sem flytur inn Durex smokka. 8. október 2015 11:06