Fimm forgangsmál í faraldrinum Logi Einarsson skrifar 28. júlí 2021 08:01 Sú fjölgun smita sem orðið hefur síðustu daga er högg fyrir þjóðina sem hefur loksins notið ferðalaga og langþráðra samvista við vini og fjölskyldu í sumar og hlakkað til betra lífs eftir að hafa lagt mikið á sig og sýnt gríðarlegan samtakamátt og styrk. Vissulega er hægt að gagnrýna ýmsar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar, svo sem að fara of geyst í afléttingar á landamærum og að hætta að skima bólusetta ferðamenn. Aðalatriðið nú er samt að taka engu sem gefnu í þessari erfiðu viðureign, og reyna að læra af mistökum stjórnvalda. Samfylkingin hefur staðið við bakið á sóttvarnaryfirvöldum og þríeykinu í gegnum faraldurinn og það munum við gera áfram. Við viljum einnig sýna framlínufólki aukinn stuðning. Veruleiki okkar næstu misserin mun mótast af umgengni við veiruna. Þá verðum við að sameinast um þá þætti samfélagsins sem eru okkur dýrmætastir og verja þá af alefli. Við megum ekki hætta að berjast fyrir farsælli framtíð til langs tíma í þessu erfiða stundarstríði. Næstu tvær vikur munu leiða í ljós hversu vel núgildandi takmarkanir duga til að hemja útbreiðslu smita og hversu margir koma til með að veikjast alvarlega þrátt fyrir bólusetningar. Næstu ákvarðanir hljóta að byggja á yfirveguðu og raunsæju mati á stöðunni. Við getum ekki látið framlínustarfsfólkið eitt um að stytta sumarleyfin sín til að takast á við afleiðingar aukinna smita. Í baráttunni við þetta nýja afbrigði þarf skýr markmið og aðgerðir. Því þótt óvissa ríki um veiruna er hægt að ráðast strax í ýmis verkefni. Fimm aðgerðir Í fyrsta lagi verðum við að styrkja heilbrigðiskerfið til að það geti tekist á við óvænt áföll eins og það sem við upplifum nú. Það verður ekki lengur beðið með að bregðast við ítrekuðu ákalli heilbrigðisstarfsfólks um það. Það er líka skýrt að ef sá niðurskurður sem ríkisstjórnin boðar í fjármálaáætlun sinni til næstu fimm ára þótti óraunsær þegar stjórnarmeirihlutinn samþykkti hana í vor, þá er hann augljóst glapræði nú. Þvert á móti þarf að styrkja mun betur ýmsa þætti heilbrigðisþjónustunnar. Þá er nauðsynlegt að tryggja starfsfólki umbun fyrir þær fórnir sem það færir í faraldrinum, t.d. með sérstökum álagsgreiðslum til þeirra sem nú eru kölluð heim úr sumarfríi til að tryggja öryggi okkar. Í öðru lagi verðum við að gera allt sem hægt er til að tryggja að skólastarf geti hafist með sem minnstu raski nú í ágúst. Mannleg samskipti og félagsleg færni eru grundvallaratriði í þroska barna og ungmenna. Menntun verður að vera í forgangi auk þess sem áframhaldandi takmarkanir á félagslífi í landinu geta haft slæmar afleiðingar fyrir félagsþroska og andlega heilsu ungmenna. Hagsmunir barna og ungmenna verða að vega mjög þungt við val á aðgerðum í baráttunni við veiruna. Liður í því getur verið að setja kennara og aðra þá sem sinna kennslu, tómstunda- eða félagsstarfi barna, í forgang þegar kemur að því að velja hópa í viðbótarskammt af bóluefni í ágúst. Í þriðja lagi verður að tryggja lífsafkomu fólks sem verður fyrir áfalli vegna veirunnar. Atvinnuleysi er hér enn með því hæsta í Evrópu, og ef við og löndin í kringum okkur horfum fram á áframhaldandi útbreiðslu veirunnar er ljóst að grípa þarf til frekari aðgerða til hjálpar atvinnuleitendum. Það þarf að lengja tímabil atvinnuleysisbóta og hækka lágmarksgreiðslur, í hið minnsta tímabundið. Samfylkingin hefur einnig lagt til að hækka persónuafslátt til þeirra sem hefja störf að nýju eftir atvinnuleysi. Í fjórða lagi verður að vakta vel starfsemi fjölbreyttra fyrirtækja um allt land, og grípa til stuðningsaðgerða fyrir þau sem þess þurfa, sér í lagi lítil fyrirtæki og einyrkja. Markmiðið er betra atvinnulíf eftir faraldurinn. Þótt ferðaþjónustan muni áfram leika lykilhlutverk í íslensku hagkerfi gerum við okkur flest grein fyrir fyrir nauðsyn þess að fjölga stoðum undir atvinnulífið, m.a. til að dreifa áhættunni þegar áföll ríða yfir. Nærtækast og skynsamlegast er að virkja hugvitið og örva þekkingariðnað og nýsköpun. Í fimmta lagi er þessi mikla útbreiðsla Delta-afbrigðisins okkur mikilvæg áminning um að glíman við veiruna verður ekki unnin fyrr en jarðarbúar hafa upp til hópa verið bólusettir og við höfum náð tökum á faraldrinum um alla veröld. Stjórnmálaflokkarnir hafa gjörólíka sýn á þátttöku í alþjóðlegu samstarfi en jafnaðarmenn hafa alltaf lagt ríka áherslu á það. Mikilvægt er að íslensk stjórnvöld beiti sér fyrir því af öllu afli á alþjóðavettvangi að fátækari ríkjum heims verði tryggt bóluefni hratt og örugglega. Betri greiningu, meiri upplýsingar, skýrari aðgerðir Við í Samfylkingunni teljum nauðsynlegt að þjóðin fái sem skýrasta mynd af því hvernig bregðast skuli við stöðunni. Þess vegna mun þingmaður Samfylkingarinnar og formaður Velferðarnefndar Alþingis óska eftir því að nefndin komi saman á fund strax eftir helgi og kalla eftir upplýsingum frá færustu sérfræðingum og framlínufólki. Við teljum auk þess að aðrar nefndir þingsins sem fjalla um efnahags- og atvinnumál þurfi að koma saman til að ræða viðbrögð og aðgerðir. Fjölgun smita er bakslag. Þá er freistandi að vilja bara hætta baráttunni eða gefast sundurlyndisfjandanum á vald. En þótt við höfum svo sannarlega orðið fyrir vonbrigðum megum við ekki láta hugfallast. Næg eru verkefnin. Við erum rík þjóð og vel menntuð og kunnum vel að takast saman og skipulega á við krefjandi verkefni eins og dæmin sanna. Við erum þrátt fyrir allt í mun ákjósanlegri stöðu en mörg önnur lönd. Við skulum því berjast áfram við faraldurinn af krafti en hafa kjark til að miða aðgerðirnar við það sem er okkur þrátt fyrir allt dýrmætast. Það mun á endanum skila okkur farsælli framtíð. Höfundur er þingmaður og formaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samfylkingin Heilbrigðismál Logi Einarsson Skoðun: Kosningar 2021 Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar