Um hundrað þúsund ónýttar ferðagjafir renna út á þriðjudag Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 27. maí 2021 12:47 Gjafabréfið er aðgengilegt á sérstöku appi. Vísir/Vilhelm Nú fer hver að verða síðastur að nýta ferðagjöf sína sem gefin var út í fyrrasumar. Ferðagjöfin rennur út um mánaðamótin, á þriðjudaginn eftir fimm daga, og enn eiga um hundrað þúsund Íslendingar eftir að nota sína gjöf.
Því til viðbótar hafa rúmlega 25 þúsund aðeins notað hluta ferðagjafar sinnar og eiga því einhvern ónýttan aur eftir af gjafabréfi sínu á ferðagjafarappinu. Hægt er að nýta stafrænt gjafabréfið hjá á annað þúsund þjónustuaðila á landinu. 550 milljónir eftir Gildistími ferðagjafarinnar var framlengdur í vetur en upphaflega stóð til að hann rynni út um áramótin. Þá áttu um 127 þúsund eftir að nota sína gjöf. Síðan hafa um 24 þúsund manns fullnýtt sína ferðagjöf. Ljóst er að stór hluti þess fjármagns sem stjórnvöld áætluðu í verkefnið mun sitja eftir ónotaður þegar gildistími gjafabréfsins rennur út um mánaðamótin. Ferðagjöfin stendur um 280 þúsund manns til boða og miðað við fimm þúsund krónur á haus ættu 1,4 milljarðar að fara í verkefnið. Samkvæmt tölfræði á vef Ferðamálastofu hafa þó aðeins 858 milljónir verið notaðar í gegn um ferðagjöfina og um 550 því væntanlega ónýttar. Þær hljóta að fara beint inn í næsta ferðagjafasjóð stjórnvalda en ríkisstjórnin kynnti það í lok síðasta mánaðar að allir landsmenn fengju aðra ferðagjöf nú 1. júní þegar sú fyrri rennur út. Elsti hópurinn? Óljóst er hvort eitthvað einkenni þann hóp sem á eftir að nýta ferðagjöfina, til dæmis hár aldur. Ferðamálastofa kveðst ekki hafa aðgang að þeim upplýsingum en í samtali við Vísi kannaðist Elías Bj. Gíslason vel við vandamál sem sumir með tiltölulega gamla farsíma hafa lenti í, að ferðagjafarappið er ekki aðgengilegt á þeirra símtæki. „Já, já, það hefur verið nokkuð um það en fólk getur þá annaðhvort sent gjöfina á einhvern nákominn sem getur verið með appið í sínum síma. Svo er oft hægt að skrá sig inn á ísland.is hjá sumum fyrirtækjum sem taka við gjöfinni og virkja svona kóða sem þau skanna,“ segir hann. Á annað hundrað fyrirtækja á landinu taka við fyrri ferðagjöfinni sem gildir út mánuðinn. Ferðamálastofa á enn eftir að sjá hvaða fyrirtæki vilji taka við þeirri næstu. Hún mun gilda út septembermánuð.
Ferðamennska á Íslandi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Neytendur Mest lesið Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira