Þetta er niðurstaða verðkönnunar Verðlagseftirlits ASÍ sem fór fram þann 20. apríl. Minnsti munur var á þjónustunni fyrir smábíla á 14" dekkjum á ál- eða stálfelgum. Þar munaði 6.810 krónum eða 109%.
Í athuguninni voru Aðalbílar í Reykjavík með lægsta verðið fyrir allar gerðir bíla á ál- og stálfelgum, fyrir utan jeppa. Bifreiðaverkstæðið Stormur Patreksfirði var með lægsta verðið á þjónustunni fyrir jeppa á 18" dekkjum á ál- og stálfelgum og næst lægsta verðið fyrir aðrar tegundir bíla.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Mesti hlutfallslegi munur á hæsta og lægsta verði var á þjónustu fyrir jepplinga á 16" ál- eða stálfelgum. Þar var verðið hæst hjá Réttingaverkstæði Sveins, 15.500 en lægst hjá Aðalbílum Reykjavík, 5.990 krónur.
Munaði 11.740 krónum
Í krónum talið var munur á hæsta og lægsta verði mestur á þjónustunni fyrir jeppa á 18" dekkjum á ál- og stálfelgum, 11.740 krónur eða 143%. Hæst var verðið hjá Dekkjahöllinni, 19.940 krónur en lægst hjá Bifreiðaverkstæðinu Stormi, 8.200 krónur.
114% eða 6.810 krónu munur var á hæsta og lægsta verði fyrir minni meðalbíla á 15" dekkjum með ál- og stálfelgur og 143% eða 8.591 krónu munur var á hæsta og lægsta verði fyrir meðalbíla á 16" dekkjum með ál- og stálfelgur.
Costco býður upp á dekkjaskipti fyrir allar tegundir og stærðir bíla fyrir 4.400 krónur. Það er þó ekki talið að fullu sambærilegt þar sem viðkomandi þarf að vera á bíl á dekkjum frá Costco ásamt því að hafa Costco kort sem þarf að greiða fyrir.
Ekki allir vildu gefa upp verð
Eftirfarandi þjónustuaðilar vildu ekki upplýsa Verðlagseftirlit ASÍ um verð á þjónustunni: Hjólbarðaþjónustan Framnesvegi Reykjanesbæ, Höldur bílaverkstæði Akureyri, Hjólbarðaverkstæði Magnúsar Selfossi, Hjólbarðaverkstæði Óskars Sauðárkróki og Dekkjahöllin og B.V.A. Egilstöðum.
ASÍ kannaði verð á þjónustu við dekkjaskiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu á álfelgum og stálfelgum af stærðum 14",15", 16" og 18" á eftirfarandi stöðum: Höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Húsavík, Kópaskeri, Akranesi, Borgarnesi, Stykkishólmi, Grundarfirði, Ólafsvík, Ísafirði, Bolungarvík, Patreksfirði, Reykjanesbæ, Selfossi, Egilsstöðum, Neskaupstað, Höfn í Hornafirði og Sauðárkróki. Verðið í könnuninni er án afsláttar.
Nánari upplýsingar um niðurstöður og framkvæmd könnunarinnar, þar með talið tegundir þeirra bíla sem hún náði til má sjá á vef ASÍ.