Lífið

Simon Cowell hrygg­brotinn eftir raf­hjóla­slys

Atli Ísleifsson skrifar
Simon Cowell býr í Malibu í Kaliforníu þar sem slysið varð.
Simon Cowell býr í Malibu í Kaliforníu þar sem slysið varð. Getty

Breski sjónvarpsmaðurinn og framleiðandinn Simon Cowell er hryggbrotinn eftir að hafa dottið af nýju rafhjóli sínu sem hann var að prófa á lóð sinni í Malibu í Kaliforníu í gær.

Hinn sextugi Cowell var fluttur á sjúkrahús og gekkst undir aðgerð í gærkvöldi.

Sky News greinir frá þessu, en haft er eftir talsmanni Cowell að hann sé í góðum höndum lækna og líði eftir atvikum vel.

Simon Cowell tók í síðasta mánuði yfir fulla stjórn framleiðslufélagsins Syco Entertainment, sem framleiðir meðal annars sjónvarpsþættina America‘s Got Talent og X Factor. 

Hann hefur áður starfað sem dómari í fleiri þáttum – þar á meðal American Idol.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.