Innlent

Afla gagna úr myndavélum og símkerfum fyrir leitina

Sylvía Hall skrifar
Lýst var eftir Ílónu um miðnætti. 
Lýst var eftir Ílónu um miðnætti.  Vísir/vilhelm/lögreglan

Aðgerðastjórn björgunarsveita og lögreglu hafa fundað í morgun og unnið úr gögnum sem gætu hjálpað til við leitina að Ílónu Steinunni Körting Kristinsdóttur sem lýst var eftir í gærkvöldi. Ekkert hefur spurst til hennar síðan á mánudagskvöld.

Hermann Karlsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra segir leitarsvæðið hafa verið stækkað út eftir að lögregla fékk upplýsingar sem bentu til þess að hún gæti hafa farið austur á Húsavík. Leitarflokkar voru í kjölfarið kallaðir út og leituðu í nótt.

„Símaupplýsingar gáfu til kynna að síminn hennar hafi verið í notkun. Út frá því erum við helst að vinna, það eru okkar helstu hjálpartæki þegar við erum í þessari stöðu – með litlar aðrar upplýsingar. Þá hjálpar það okkur hvar fólk hefur verið að nota símana sína,“ segir Hermann í samtali við fréttastofu.

Leitarhópar leituðu í nótt og fram undir morgun en að sögn Hermanns var þá útséð að ekki væri hægt að leita meir þar til frekari upplýsingar lægju fyrir. Var öllu leitarfólki gefin hvíld á meðan frekari upplýsinga var aflað og er gert ráð fyrir því að leit hefjist aftur um hádegisbil.

„[Við erum] bæði að viða að okkur upplýsingum frá vegfarendum og úr ýmsum kerfum; myndavélum og slíku. Við sáum ekki ástæðu til að vera með fólk úti þannig við sendum alla í kvöld og væntum þess svo, þegar við fáum frekari upplýsingar um og eftir hádegi, að geta púslað saman menginu betur og fundið út hvar við skulum stíga niður fæti.“

Ílóna er þrítug og um það bil 170 sm á hæð, í meðallagi vaxin, með dökkt axlarsítt hár og með húðflúr á aftanverðum hálsi við hægra eyra. Hún er líklega klædd í dökkan fatnað samkvæmt upplýsingum frá lögreglu, þá helst í jogging föt, dökka dúnúlpu og með rauðbrúna prjónahúfu.

Engar ábendingar hafa borist frá almenningi enn sem komið er en lögregla hvetur fólk til þess að hafa samband hafi það upplýsingar um ferðir hennar í síma 112.


Tengdar fréttir

Lýst eftir Ílónu Steinunni

Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir Ílónu Steinunni Körting Kristinsdóttur, 30 ára, til heimilis á Akureyri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×