Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 30.4.2026 08:02
Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Tveir voru hætt komnir á Kópaskeri síðdegis í dag þegar bátur þeirra tók inn á sig sjó og fór að sökkva í höfninni. Vel gekk að koma mönnunum í land og voru sjúkrabílar afturkallaðir þegar ljóst var að þeir voru heilir á húfi. Innlent 28.4.2026 22:34
Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Framboðslistar Miðflokksins í fjórum sveitarfélögum hafa gefið út að þeir styðji fjölbreytileikann. Yfirlýsingarnar koma í kjölfar orða varaformanns flokksins sem líkti flöggun regnbogafánans við „hugmyndafræðilega kröfu um hugmyndafræðilega undirgefni“. Innlent 18.4.2026 15:16
Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Hópur nemenda í sjöunda bekk kom sér saman og fékk í gegn að allir á þrettánda aldursári fengju að vera lengur en til átta í sundlauginni, líkt og reglur um útivistartíma segja til um. Nokkrum dögum síðar var opnunartími laugarinnar skertur. Móðir nemanda og oddviti í sveitarstjórninni segir soninn hafa verið afar ósáttan með skerðinguna. Innlent 21. febrúar 2026 14:48
Nær altjón í iðnaðarhúsnæði eftir bruna á Húsavík Mikið tjón varð á iðnaðarhúsnæði við Haukamýri á Húsavík þegar eldur kom upp í húsinu í morgun. Um er að ræða nokkurra fermetra iðnaðarhúsnæði en mestur eldur logaði í og við kaffistofu húsnæðisins. Slökkvistarfi er að mestu lokið en húsið verður áfram vaktað í dag og slökkt í þeim glæðum sem enn kunna að loga. Innlent 28. janúar 2026 09:14
Ísland einn jaðar á einum stað? Umræða um jöfnun atkvæðavægis á Íslandi er bæði eðlileg og mikilvæg. Lýðræðislegt jafnræði er grundvallargildi og fá deila um að atkvæði landsmanna eigi að vega jafnt. Sú umræða verður að taka mið af því að horft sé til þess hvernig samfélagið er skipulagt og hvaða afleiðingar það hefur þegar vald, þjónusta og ákvarðanataka þjappast sífellt meira saman á einn stað. Skoðun 25. janúar 2026 09:02
Norðurþing og Heidelberg undirrita viljayfirlýsingu vegna uppbyggingar á Bakka Norðurþing og Heidelberg hafa undirritað viljayfirlýsingu í tengslum við uppbyggingu á Bakka. Í tilkynningu segir að um sé að ræða verkefni þar sem móberg verður þurrkað og unnið sem íblendiefni í sementsframleiðslu. Þar kemur einnig fram að Heidelberg kanni nú möguleika á staðsetningu slíkrar framleiðslu á Bakka. Innlent 17. desember 2025 18:35
Lögmannafélagið aðhefst ekki Stefán Andrew Svensson, formaður Lögmannafélags Íslands, segir félagið ekki hafa vitneskju um mál lögmanns sem er í gæsluvarðhaldi, grunaður um aðild að skipulagðri brotastarfsemi, umfram það sem komið hefur fram í fjölmiðlum. Innlent 26. nóvember 2025 21:41
Heimavinnu lokið – aftur atvinnuuppbygging á Bakka Þrátt fyrir mótbyr í samfélaginu eru tækifærin til byggja upp bæði augljós og skýr. Sterkir innviðir, öflugt samfélag og auðlindir í Þingeyjarsýslum. Trú á eigin getu og samfélag er lykilatriði. Betri tímar koma ekki af sjálfu sér heldur með markvissum aðgerðum, heimavinnu og sameiginlegri framtíðarsýn. Skoðun 23. nóvember 2025 12:00
Kanna fýsileika landeldis á Bakka Sveitarfélagið Norðurþing og fyrirtækið Bakkavík landeldi undirrituðu í dag viljayfirlýsingu vegna lóðar undir hugsanlega landeldisstöð á iðnaðarsvæðinu á Bakka norðan Húsavíkur. Innlent 21. nóvember 2025 16:37
Kári lætur af störfum sem forstjóri PCC á Bakka Kári Marís Guðmundsson mun láta af störfum sem forstjóri kísilverksmiðjunnar PCC á Bakka næstu mánaðarmót. Kristín Anna Hreinsdóttir mun taka við stöðunni á meðan rekstrarstöðvun félagsins stendur. Viðskipti innlent 14. nóvember 2025 12:48
Farþegagjald ólögmætt og höfnin skuldar tugi milljóna Hvalaskoðunarfyrirtækið Gentle giants á Húsavík hefur haft betur í áralangri deilu við Hafnasjóð Norðurþings um lögmæti farþegagjalds sem hafnasjóðurinn innheimtir. Hafnasjóðurinn hefur verið dæmdur til að greiða fyrirtækinu rúmar 36 milljónir króna auk vaxta. Deilur um gjöldin ná allt aftur til ársins 2008. Innlent 31. október 2025 11:27
Samfélag sem stendur saman Í Norðurþingi höfum við alltaf vitað að styrkur samfélagsins felst ekki í byggingum heldur í fólkinu. Það sem gerir staðinn okkar lifandi eru tengslin, samkenndin og viljinn til að taka höndum saman þegar á reynir. Skoðun 25. október 2025 11:01
Íslendingar meðal sakborninga en enginn í varðhaldi Rannsókn lögreglu á meintum fíkniefnahring á Raufarhöfn og víðar er enn í fullum gangi að sögn rannsóknarlögreglumanns sem sér enn ekki fyrir endann á málinu. Íslenskir ríkisborgarar eru meðal sakborninga en fjórum sakborningum hefur verið vísað til Albaníu. Á sumum stöðum hafi kannabisframleiðsla staðið yfir í nokkur ár. Innlent 24. október 2025 12:55
Að hafa trú á samfélaginu Við í sveitarfélaginu Norðurþingi stöndum frammi fyrir miklum áskorunum. Rekstrarstöðvun PCC Bakki Silicon hefur djúpstæð áhrif á samfélagið okkar – á atvinnulífið, tekjur sveitarfélagsins og trú fólks á framtíðina. Skoðun 21. október 2025 10:01
Framtíð PCC á Bakka ekki útséð Fimm fjárfestingaraðilar hafa áhuga á að fjárfesta í Norðurþingi að sögn forsætisráðherra. Tillögur stýrihóps ráðherrans um tillögur að viðbrögðun stjórnvalda vegna rekstrarstöðvunar PCC á Bakka voru kynntar í morgun. Meðal tillagna er að fá verkefnastjóra til að sjá um stór verkefni á svæðinu. Innlent 17. október 2025 13:56
ASÍ ítrekar ákall til stjórnvalda um að bregðast við lokun PCC á Bakka Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsir yfir þungum áhyggjum af atvinnuástandi á Húsavík og nágrenni vegna lokunar kísilmálmverksmiðju PCC á Bakka. Í ályktun miðstjórnar, sem samþykkt var á fundi þeirra í gær, hvetur stjórnin stjórnvöld til að bregðast við hið fyrsta þannig að unnt verði að hefja rekstur fyrirtækisins á ný. Viðskipti innlent 16. október 2025 10:17
Í örugga höfn! Eldsnemma á sólríkum morgni leggur skip að höfn á Húsavík. Þetta er ekki risaskip. Þetta skip er passlegt fyrir lítinn bæ eins og okkar. Um borð er 250 farþegar sem taka daginn snemma. Það er margt að sjá og skoða. Einhver rölta í Hvalasafnið, önnur í verslunina Ísfell. Skoðun 10. október 2025 15:01
Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hyggst ráðast tilraunaverkefni til tveggja ára þar sem drónar verða notaðir og sendir á vettvang á stöðum í umdæminu þar sem löggæsla er ekki mönnuð allan sólarhringinn. Innlent 21. september 2025 07:03
Eygir vonarneista í fyrsta sinn í marga mánuði Forstjóri PCC á Bakka segist eygja vonarneista í fyrsta sinn um langt skeið fyrir áframhaldandi rekstur fyrirtækisins í kjölfar ákvörðunar fjármálaráðuneytisins um að hefja rannsókn á meintu undirboði. Tíminn vinni ekki með fyrirtækinu og biðlar hann til stjórnvalda að setja á bráðabirgðatolla á meðan rannsókn stendur yfir. Innlent 6. september 2025 12:06
Ætla að rannsaka meint undirboð á kísilmálmi Samráðsnefnd á vegum fjármálaráðuneytisins hyggst hefja formlega rannsókn á meintum undirboðum á kísiljárni. Rannsóknin kemur í kjölfar kæru kísilvers sem stöðvaði rekstur í sumar. Innlent 5. september 2025 16:59
Engan sakaði þegar eldur kviknaði í bát út af Tjörnesi Skipverjum á fiskibát tókst að slökkva eld sem kviknaði í brú hans noður af Tjörnesi snemma í morgun. Björgunarsveitir voru kallaðar út á hæsta forgangi eftir að tilkynning um eldinn barst. Innlent 4. september 2025 09:31
Vonast til að uppsagnir leiði ekki til flutnings fólks af svæðinu Bæjarstjóri Norðurþings segist halda í vonina að starfsemi PCC á Bakka leggist ekki af fyrir fullt og allt. Hún vonast til að stjórnvöld bregðist við með einhverjum hætti og að uppsagnirnar leiði ekki til flutnings fólks af svæðinu. Innlent 2. september 2025 23:00
„Ég treysti því að stjórnvöld vakni og hjálpi okkur“ Aðeins átján starfsmenn eru nú starfandi hjá PCC á Bakka eftir að þrjátíu starfsmönnum var sagt upp til viðbótar við þá áttatíu sem sagt var upp í byrjun sumars. Formaður Verkalýsðsfélagsins Framsýnar vonast til að stjórnvöld fari að vakna og hjálpa samfélaginu á Húsavík. Innlent 2. september 2025 12:02