Viðskipti innlent

Afbókaður samdægurs vegna veirunnar með tilbúinn mat ofan í 200 manns

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Örn Garðarsson, veitingamaður.
Örn Garðarsson, veitingamaður. Aðsend

Veitingamaður sem fengið hefur tvær afbókanir vegna kórónuveirunnar, aðra með nokkurra klukkustunda fyrirvara, segir það ekki sanngjarnt að veitingamenn þurfi að bera tjónið af slíkum afbókunum. Launakostnaður sé stærsti útgjaldaliðurinn sem fari forgörðum í slíkum tilfellum en nú færist æ í aukana að stórum mannamótum sé aflýst vegna veirunnar.

Nú síðast á laugardag var ákveðið að fresta árshátíð Hafnarfjarðarbæjar sem til stóð að halda á laugardagskvöld vegna veirunnar og þar áður hefur íþróttamótum, háskóladögum, árshátíðum og ársfundum verið slegið á frest.

Veirunni hefur í þessu samhengi verið lýst sem „stórbruna“ fyrir verktaka í skemmtanabransanum. Veislustjórar og skemmtikraftar, sem hafa lifibrauð af því að annast skemmtanir, hafa lýst yfir miklum áhyggjum af væntanlegu fjárhagstjóni. 

Höggið minna með meiri fyrirvara

Fleiri hafa áhyggjur af slíku tjóni. Örn Garðarsson rekur Soho veisluþjónustu í Reykjanesbæ. Hann greindi frá því á Facebook í gær að hann hefði lent í tveimur afbókunum vegna kórónuveirunnar með stuttum fyrirvara – með tilheyrandi tapi. Örn rakti söguna í viðtali í útvarpsþættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun.

„Það komu tvær afbókanir. Ein afbókunin kom á miðvikudaginn, fyrir teiti sem átti að vera á laugardaginn þannig að það er í sjálfu sér allt í lagi. Það var flokksþing hjá Samfylkingunni sem átti að halda í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Það voru sem sagt tilmæli frá ríkisstjórninni að ráðherrar og starfsmenn Alþingis ættu ekki að fara á fjöldasamkomur til að sýkjast ekki, það var skýringin sem ég fékk,“ sagði Örn.

Hin afbókunin kom þó með öllu skemmri fyrirvara. Þar var um að ræða rúmlega 200 manna veislu hjá starfsmönnum Reykjavíkurborgar.

„Síðan voru það starfsmenn Reykjavíkurborgar eða ráðhús Reykjavíkurborgar. Það fékk ég ekki fyrr en um ellefu, tólfleytið á laugardeginum. […] Þetta eru ekki nema sex tímar. Við erum staddir í Reykjanesbæ og þurfum að vera tilbúnir allavega tveimur tímum áður en veisluhöld eiga að byrja,“ sagði Örn.

„Auðvitað erum við búin að vera að undirbúa það alla vikuna, gera klárt og gera það sem þarf að gera. Þannig að það er dálítið vont að fá þetta svona seint. Það hefði verið minna högg ef þetta hefði verið tveimur sólarhringum áður.“

Örn sagði að sér hefði verið gefin sú skýring á seinni afbókuninni að þar væri farið eftir tilmælum sóttvarnalæknis um að halda ekki stór mannamót. Engin slík tilmæli hafa þó verið gefin út af heilbrigðisyfirvöldum enn sem komið er.

Landhelgisgæslan naut góðs af veislumatnum

Örn situr nú uppi með talsvert tjón en hann kvaðst ekki viss um það hvort hann gæti sótt sér einhverjar bætur. Þá taldi hann það alls ekki sanngjarnt að veitingamaðurinn sæti uppi með tjónið í þessum aðstæðum.

„Við erum búin að kalla út fullt af mannskap til að vinna. Og þetta er miklu meiri handavinna fyrir svona veislur en nokkurn tímann í mötuneytismat. Það er aðallega þessi launakostnaður sem fer svolítið illa með mann í þessu,“ sagði Örn. „Maður stendur svolítið á gati. Hvar stendur maður eiginlega?“

Í dag stendur þó til að Örn ræði við aðstandendur veislunnar hjá Reykjavíkurborg um mögulega lausn á málinu.

„Við ætluðum að tala saman í dag, þeir sem pöntuðu þessa veislu, og við ætluðum að ræða málin. Þau spurðu einmitt hvað við gætum gert í þessu þegar hringt var.“

En hvað varð um allan matinn sem þarna fór forgörðum?

„Ég er það heppinn að við erum að sinna Landhelgisgæslunni með loftvarnareftirlitið, sjáum um matinn þar, og þar er töluverður fjöldi af hermönnum sem þurfa mat á hverjum degi í tvær til þrjár máltíðir. Þannig að það var rosa flottur matur hjá þeim um helgina.“

Viðtalið við Örn má hlusta á í heild í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Smitum fækkar hratt í Kína

Útbreiðsla kórónuveirunnar sem veldur Covid-19-sjúkdómnum hefur dregist saman og tilfellum fækkað í Asíu á síðasta sólarhring en ástandið í Evrópu og Bandaríkjunum heldur áfram að versna.

Þrjú ný smit úr Verónavélinni

Þrjú ný smit greindust af kórónuveirunni Covid-19 seinni part dagsins í dag. Öll sýnin voru úr aðilum sem komu til landsins í flugvélinni frá Veróna á Ítalíu í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×