Skoðun

Öflugt sam­starf nor­rænna Fab Lab smiðja

Frosti Gíslason skrifar

Stafrænar Fab Lab smiðjur eru mikilvægar við framkvæmd nýsköpunarstefnu og smiðjurnar hafa hlutverki að gegna í þróun iðnaðarstefnu. Samstarf Norðurlandaþjóða er gott innan alþjóðlegs nets Fab Lab smiðja þar sem nú eru yfir 1.800 smiðjur um víða veröld. Markmið samstarfsins er að auka þekkingu og deila henni út í samfélagið.

Vinnustofa í Eyjum

Í byrjun árs var haldin áhugaverð vinnustofa á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Fab Lab Íslands í Vestmannaeyjum. Áhersla var lögð á menntaverkefni, CAD/CAM-hugbúnað og samstarf. Fulltrúar allra Norðurlandanna, Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs, Finnlands, Færeyja, Grænlands og Íslands, auk fulltrúa frá Japan, Belgíu og Englandi, komu á staðinn til að taka þátt í norrænni vinnustofu, svokölluðu Nordic Fab Lab Bootcamp.

Hópurinn sem sótti Nordic Fab Lab Bootcamp í Eyjum.



Þátttakendurnir 34 eru flestir stjórnendur í Fab Lab smiðjum og mættu til þess að deila þekkingu, fræðast af hver öðrum og efla tengslanetið. Vinnustofan er hluti af verkefni sem nefnist á ensku Distributed Design Market Platform. Nýsköpunarmiðstöð Íslands tekur þátt í þessu verkefni sem styrkt er af Creative Europe, áætlun Evrópusambandsins.

Vinnustofan stóð frá mánudegi til föstudags og voru haldin fjölmörg áhugaverð námskeið og erindi þar sem megináherslan var á menntaverkefni og alþjóðlegt samstarf. Þátttakendur kynntu sér hagkerfi Vestmannaeyja, skoðuðu skip, fyrirtæki og stofnanir og ræddu um stafræna framleiðslutækni og á hvern hátt Fab Lab smiðjur geta búið okkur betur undir þátttöku í fjórðu iðnbyltingunni.

Sigurvegarar úr Nýsköpunarkeppni grunnskólanna í heimsókn í Fab Lab í Breiðholti.

Sköpunarsmiðjur

Haldnar voru fjölmargar sköpunarsmiðjur, kynnt hvernig nýta megi sköpun til stærðfræðikennslu og haldin námskeið í notkun CAD-hugbúnaðar og stýringu véla með CAM-hugbúnaði. Þá voru í boði námskeið í gerð tónlistar með forritun, skrásetningu, fjölbreyttri nýtingu leysiskera, fræsivéla, vínylskera, þrívíddarskanna, þrívíddarprentara, hönnun og gerð rafrása, gerð örtölva, stýringa og fleira.

Sigurvegarar úr Nýsköpunarkeppni grunnskólanna í heimsókn í Fab Lab í Breiðholti

FabLab á öllum skólastigum

Sérstaklega var farið yfir fjölbreytt menntaverkefni í Fab Lab smiðjunum en þær spanna allan skalann frá leik- og grunnskólastigi til háskólastigs. Í Fab Lab smiðjum landsins fer fram kennsla á vegum fjölmargra grunn- og framhaldsskóla og einnig á háskólastigi í gegnum Fab Academy, sem er alþjóðlegt nám í stafrænni framleiðslutækni. Fab Academy er kennt af prófessor Neil Gershenfeld hjá MIT-háskólanum í Boston, en auk þess eru fleiri námsleiðir í boði á borð við Fabricademy textíl-akademíuna, líftæknibraut, Fab Academy X og ýmiss konar námsleiðir á mismunandi skólastigum.

Höfundur er verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Þessi grein er hluti af ritröðinni Nýsköpun og rannsóknir sem varpar ljósi á fjölbreyttar vísindarannsóknir og nýsköpunarstarf sem unnið er að hérlendis. Greinarnar eru skrifaðar af starfsmönnum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og eru úr ársskýrslu miðstöðvarinnar. Nánari upplýsingar um Nýsköpunarmiðstöð Íslands eru á www.nmi.is.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×