Fötluð stúlka ekki fengið umönnun við hæfi í meira en sex ár Jóhann Óli Eiðsson skrifar 4. október 2017 06:00 Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður landssamatakanna Þroskahjálpar. VÍSIR/HANNA
Fötluð 24 ára stúlka, sem þarfnast umönnunar allan sólarhringinn, og foreldrar hennar hafa stefnt Reykjavíkurborg og íslenska ríkinu fyrir að synja stúlkunni um húsnæðisúrræði og fullnægjandi umönnun. Í rúm sex ár hafa foreldrarnir þurft að annast stúlkuna vegna þessa. Aðalmeðferð í málinu fór fram í síðustu viku. Formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar segir að um prófmál sé að ræða. Stúlkan hefur alla sína ævi þurft mikla aðstoð. Í stefnu málsins segir að eftir að hún varð átján ára hafi Reykjavíkurborg neitað að veita henni nauðsynlega þjónustu. Umönnun hennar hafi því lent á foreldrunum. Hefur móðir hennar af þessum sökum þurft að hætta á vinnumarkaði. „Okkur finnst þetta mál vera ákveðinn prófsteinn á það hvort það sé í raun svo að ábyrgð á þjónustu fatlaðra barna falli alfarið úr gildi við átján ára aldur,“ segir Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar. „Ef niðurstaðan er sú að ábyrgðin við umönnun er sett algerlega á foreldra við átján ára aldur þá þarf að breyta lagarammanum,“ segir Bryndís. Auk viðurkenningar á því að ákvörðun borgarinnar hafi verið ólögmæt krefst stúlkan tíu milljóna króna í miskabætur. Foreldrarnir krefjast skaðabóta, tæpra 30 þúsund króna fyrir hvern dag frá því að stúlkan varð átján ára.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Innlent Fleiri fréttir „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Sjá meira