„Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Margrét Helga Erlingsdóttir og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa 21. apríl 2026 20:30 Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, segir undirbúning fyrir almyrkvann kominn á fullt. Vísir/Bjarni Sveitarstjórn og viðbragðsaðilar í Vesturbyggð eru nú íóða önn að undirbúa komu mikils fjölda ferðamanna í tengslum við almyrkvann í sumar. Bæjarstjóri á segir erfitt að sjá fyrir hve margir leggi leið sína vestur til að berja almyrkvann augum.
Á Látrabjargi verður best hægt að upplifa almyrkvann en hann verður sýnilegur í tvær mínútur og þrettán sekúndur. Því er nærri öll gisting uppbókuð á svæðinu daginn sem almyrkvinn verður. Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar lýsir áhyggjum meðal bæjarbúa af ágangi á svæðið. „Þetta er náttúrlega viðkvæmt svæði sem þolir ekki mikinn fjölda fólks þannig að það þarf að huga að því þegar við skoðum hver þolmörk svæðisins eru,“ sagði Gerður en fréttamaður ræddi við hana í beinni á Patreksfirði í kvöldfréttum. Vegagerðin, Náttúruverndarstofnun, Lögreglan á Vestfjörðum, björgunarsveitir og fleiri koma að undirbúningnum en til skoðunar er meðal annars hvað svæðið þolir margt fólk. „Við vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum þannig að við þurfum að gera ráð fyrir því að það verði ansi margir sem komi á svæðið. Það er stór hópur fólks sem eltir uppi sólmyrkva þannig að við teljum að fólkið vilji fara þangað sem sólmyrkvinn er sem lengstur og það er hér. Ég held það sé betra að búast við fleirum en að vera vanbúin.“ Þetta er svakalegt aðdráttarafl fyrir örfáar mínútur, ert þú einhverju nær? Skilurðu af hverju fólk leggur leið sína hingað til þess að upplifa þetta? „Nei í raun ekki. Það er náttúrlega ákveðinn hópur þar sem þetta eru trúarbrögð og hann eltir þetta uppi um allan heim þannig að það er viðbúið að þeir komi hingað, sekúndurnar skipta máli.“ Hún segir marga á svæðinu hafa ákveðið að leigja út húsin sín og marga í slíkum hugleiðingum. Öll hótelgisting sé þó fyrir löngu uppbókuð.
Vesturbyggð Almyrkvi 12. ágúst 2026 Ferðaþjónusta Látrabjarg Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira