Foksandur og rykagnir búa í þokunni Þórarinn Þórarinsson skrifar 21. apríl 2026 10:49 Þokan sem liggur yfir höfuðborgarsvæðinu ber með sér foksand og rykagnir þannig að fólki er ráðlagt að fylgjast með mengunarmælingum að minnsta kosti í dag og á morgun. Vísir/Vilhelm Margt býr í þokunni en að þessu sinni helst leifar af foksandi sem fauk út í hafsauga eftir að hafa mengað loftið yfir höfuðborgarsvæðinu á sunnudaginn en snýr nú aftur vestan úr hafi og liggur þungt yfir Reykjavík og nágrenni.
Veðurstofan telur víst að þétt þokan sem liggur yfir höfuðborgarsvæðinu komi vestan úr hafi og beri með sér restar af foksandinum á Suðurlandi sem gerði alla loftmæla á höfuðborgarsvæðinu rauða á sunnudaginn. Þétt þokuloftið verður líklega viðvarandi í dag og á morgun.Vísir/Vilhelm Umhverfisstofnun mat loftgæði á höfuðborgarsvæðinu óholl almenningi á sunnudaginn þegar foksandur barst af Suðurlandi með frekar stífri suðaustanátt. Óværan fauk síðan á haf út en snýr nú aftur með tilkomumiklu þokuloftinu sem ætla má að sé nokkuð þétthlaðin rykögnum. Mengunarmælar á höfuðborgarsvæðinu voru rauðir í morgun en standa nú flestir í appelsínugulu þannig að viðkvæmir hópar geta fundið fyrir áhrifum.Vísir/Vilhelm Gert er ráð fyrir að ástandið verði viðvarandi í dag og á morgun og eins og vera ber er fólki, sérstaklega þeim sem eru viðkvæm fyrir, ráðlagt að fara að gát í þokunni og fylgjast vel með mælingum loftgæða. „Út úr þokunni líður kynjamynd með egghvasst járn,“ kvað Bubbi á sínum tíma en að þessu sinni er það þó frekar foksandur sem leynist í þokunni.Vísir/Vilhelm
Loftgæði Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira