Stjórnarskrárfélagið sendir Sameinuðu þjóðunum bréf um vanefndir ríkisstjórnarinnar

Mannréttindanefndin sendi frá sér álit um breytingar á fiskveiðistjórninni árið 2007 með bindandi tilmælum til ríkisstjórnarinnar. Þar var ríkisstjórn Íslands gert að breyta reglum um fiskveiðstjórn í landinu til að girða fyrir mismunun sem af þeim hljótast og einnig að greiða tveimur sjómönnum sem höfðuðu mál gegn íslenska ríkinu fyrir nefndinni bætur. Sjómennirnri eru þeir Erlingur Sveinn Haraldsson og Ernir Snævar Sveinsson. Mannréttindanefndin lét hins vegar málið niður falla með bréfi árið 2012 og vísaði til þess að ríkisstjórn Íslands hefði í bréfi árið 2009 gefið fyrirheit um nýja stjórnarskrá með ákvæði um auðlindir í þjóðareigu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu að auki.
Sjá einnig: Ósáttar við spurningarnar í þjóðaratkvæðagreiðslu
Meginforsenda nefndarinnar reyndist röng
„Stjórnarskrárfélagið minnir á að ný stjórnarskrá var samþykkt með 67 prósent atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2012 og ákvæði um auðlindir í þjóðareigu sérstaklega með 83 prósent atkvæða,“ segir í tilkynningunni. „Í ljósi vanefnda Alþingis í stjórnarskrármálinu hvetur Stjórnarskrárfélagið Mannréttindanefndina til að taka málið upp aftur og ítreka fyrri bindandi tilmæli sín til ríkisstjórnarinnar um að breyta fiskveiðistjórninni.“
Stjórnarskrárfélagið hvetur Mannréttindanefnd til að endurskoða málið í ljósi þess að „meginforsenda Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir ákvörðun hennar um að athuga mál þetta ekki frekar samkvæmt málsmeðferð um eftirfylgni“ reynst röng.“ Þetta segir í bréfi félagsins til Mannréttindanefndar.
„Við hvetjum því nefndina til að endurskoða mál nr. 1306/2004 og stuðla þar með að því að ríkisstjórn Íslands láti af mannréttindabrotum sínum á sviði fiskveiðistjórnar.“
Tengdar fréttir

Stjórnarskráin eina kosningamálið
Komið hefur fram sú hugmynd að einungis eitt mál verði á dagskrá í næstu þingkosningu.

Sigurður Ingi ræðir makrílfrumvarpið í Umræðunni í kvöld
Sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra verður gestur Heiðu Kristínar Helgadóttur í Umræðunni í kvöld strax eftir fréttir.

Tæp 28 þúsund hafa skrifað undir #þjóðareign
Grundvallarbreyting á eignarhaldi sem verður í raun ekki afturkölluð segir Jón Steinsson, hagfræðingur.

Vilja að heildarendurskoðun stjórnarskrár verði lokið á 70 ára afmælinu
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, Katrín Jakobsdóttur, formaður VG, og Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, leggja í dag fram frumvarp til breytingar á stjórnarskrá sem heimilar stjórnarskrárbreytingar á næsta kjörtímabili og tillögu til þingsályktunar um að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar á grundvelli tillagna stjórnlagaráðs verði lokið á 70 ára afmæli lýðveldisins árið 2014. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samfylkingarinnar. Þar kemur líka fram að formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa verið upplýstir um þennan tillöguflutning. Vonir standa til að unnt verði að mæla fyrir báðum málunum í dag og koma þeim til nefndar.

Stjórnarskrárferlið kostaði milljarð
Stjórnarskrárfrumvarpið hefur kostað skattgreiðendur um eitt þúsund milljónir króna en fjögur ár tók að undirbúa málið. Þingmenn eyddu fimmtíu klukkustundum í tala um frumvarpið sem var tekið af dagskrá í gær.