271 milljón vegna blóðsýna og greiningar vegna gruns um áfengis- eða fíkniefnaaksturs Aðalsteinn Kjartansson skrifar 28. apríl 2015 15:29 Samkvæmt gögnum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafi 2.484 sýnatökur farið fram á árinu 2013 og 2.627 á síðasta ári. Vísir/Getty Images
Áætlaður kostnaður lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna sýnatöku og greininga blóðsýna vegna gruns um ölvun við akstur eða akstur undir áhrifum fíkniefna á árunum 2013 og 2014 nemur yfir 271 milljón króna. Þetta kemur fram í svari Ólafar Nordal innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Birgittu Jónsdóttur. Mestur kostnaður er vegna sýnatöku vegna gruns um akstur undir ávana- og fíkniefnum, eða tæplega 182 milljónir króna. Sýnatökur vegna gruns um ölvun við akstur nemur 24 milljónum en greining á sýnunum úr báðum flokkum 65 milljónir. Í svarinu segir að gera megi ráð fyrir 5-10 prósenta skekkju varðandi kostnað vegna þeirrar aðferðar sem notuð er til að reikna út kostnaðinn. Ekki liggja fyrir upplýsingar um kostnað í hverju tilviki og því hafi tíðni kostnaðarliða verið áætluð og margfölduð með fjölda sýna til að svara fyrirspurninni. Ólöf upplýsir einnig að samkvæmt gögnum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafi 2.484 sýnatökur farið fram á árinu 2013 og 2.627 á síðasta ári. Samtals hafa því 5.111 blóðsýni verið tekin og greind á þessu tveggja ára tímabili. Í svarinu er gerður sá fyrirvari að sýni geta verið tekin úr fleiri en einum einstaklingi í hverju máli ef óljóst er hver var ökumaður og stundum eru tekin fleiri en eitt sýni úr sama einstaklingi.
Alþingi Mest lesið Stórir pollar leika bílstjóra grátt Innlent Trump leggur háa tolla á nágrannaþjóðirnar Erlent Sjúkraflugvél hrapaði í Fíladelfíu Erlent Ólöf Tara Harðardóttir er látin Innlent Læknir ákærður fyrir að ávísa þungunarrofslyfi Erlent Gunnar Bragi starfsmaður Miðflokksins Innlent Vonskuveður framundan Innlent Vatnsleki, fjúkandi þakplötur og ófærir ökumenn Innlent Óttast að evrópuför ríkisstjórnarinnar endi sem bjölluat Innlent „Búið að vera mjög mikið að gera síðasta sólarhringinn“ Innlent Fleiri fréttir „Búið að vera mjög mikið að gera síðasta sólarhringinn“ Vatnsleki, fjúkandi þakplötur og ófærir ökumenn Óttast að evrópuför ríkisstjórnarinnar endi sem bjölluat Stórir pollar leika bílstjóra grátt Hellisheiði opin á ný Vonskuveður framundan Gunnar Bragi starfsmaður Miðflokksins Um hundrað manns dvelja í Grindavík Snjóflóð féllu hjá Ólafsvík Sveitarfélögin samþykkja innanhússtillögu ríkissáttasemjara „Borgin átti að vita þetta fyrir löngu, löngu síðan“ Ólöf Tara Harðardóttir er látin Óveður í beinni, gímaldið og skemmdir eftir vatnstjón Hellisheiðin lokuð og óvissustig vegna snjóflóða Daði óskar eftir tillögum frá almenningi um blessað brennivínið Óvissustig vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu Fyrsti fulltrúi Íslands á minningarathöfninni í Auschwitz Refur með fuglainflúensu Kröfu foreldranna vísað frá Halda herberginu og ekkert verður úr setuverkfalli Ósakhæfur þegar hann olli árekstri og lagði líf konu í rúst „Við erum ekki að horfa á Excel-skjöl, við erum að horfa á börn“ Framkvæmdir stöðvaðar að hluta Kennarar óttist vanefndir „Búumst við hinu versta en vonum það besta“ Kennarar melta tillögu ríkissáttasemjara Minningargreinamálið fer ekki fyrir Hæstarétt Lá við árekstri á meðan flugumferðarstjórar horfðu á úrslitaleikinn Bein útsending: Er aukin kjöt- og próteinneysla leiðin að bættri heilsu? Lítið sem ekkert flug framundan Sjá meira