Íslenski boltinn

Erlingur Jack tryggði Þrótturum sigur á Víkingum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Erlingur í leik gegn Val á dögunum.
Erlingur í leik gegn Val á dögunum. Mynd / Anton
Þróttur heldur áfram að rétta hlut sinn í 1. deild karla í knattspyrnu en liðið sótti þrjú stig í Víkina í kvöld. Erlingur Jack Guðmundsson skoraði eina mark gestanna.

Mark Erlings kom úr vítaspyrnu á 15. mínútu leiksins. Þetta var annar sigur Þróttar í röð í deildinni en þar er liðið taplaust í fjórum leikjum. Þá sló liðið Val út úr bikarnum á dögunum.

Þróttur skaust upp fyrir Víking í 7. sæti deildarinnar með sigrinum. Bæði lið hafa 10 stig líkt og Höttur sem vermir 6. sætið en hefur besta markahlutfallið.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara frá Úrslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×