Sport

Owen vill fara til Englands

Knattspyrnumaðurinn Michael Owen hjá Real Madrid, átti fund með forseta félagsins í gær þar sem framtíð hans var rædd og forsetinn hefur samþykkt beiðni framherjans um að fá að fara sem lánsmaður til Englands til að eiga betri möguleika á að tryggja sæti sitt í enska landsliðinu. Valið stendur milli gamla félags hans Liverpool og Newcastle, en talið er að skriður fari nú að komast á mál Owen, sem hefur ekki átt sjö dagana sæla í herbúðum Madrid í sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×